Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 38
BLS. 2 | sirkus | 2. FEBRÚAR 2007
F egurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir hefur dvalið á Indlandi undanfarinn
mánuð við fyrirsætustörf. Óhætt er
að segja að Unnur Birna hafi slegið í
gegn og birtust meðal annars myndir
af henni á forsíðu Bombay Times,
sem er fylgirit eins víðlesnasta
dagblaðs Indlands, The India Times.
Unnur Birna kom heim á þriðju-
dagskvöldið með tilboð frá
Hollywood upp á vasann.
„Já, það er rétt. Ég er með tilboð
frá indverskum kvikmyndaframleið-
endum sem starfa í Hollywood. Þeir
eru risastórir í Bollywood-heiminum
á Indlandi og hafa flutt sig til
Hollywood. Ég get reyndar lítið tjáð
mig um þetta þar sem allt er á
byrjunarstigi. Ég á eftir að ráðfæra
mig við gott fólk hér heima áður en
ég tek einhverja ákvörðun en ég neita
því ekki að þetta er spennandi,“ segir
Unnur Birna í samtali við Sirkus.
Allar líkur eru á að Unnur Birna
muni taka að sér sitt fyrsta kvik-
myndahlutverk á næstunni, í
myndinni Stóra planið í leikstjórn
Ólafs Jóhannessonar, en hún vill sem
minnst um það mál segja, segir
aðeins að þau mál séu í skoðun.
Unnur Birna lét undirbúa sérstök
nafnspjöld áður en hún fór út til
Indlands enda snýst allt í Indlandi
um „show business“ eins og hún
orðar það. „Ég lét gera nafnspjöld
áður en ég fór út og tók með um
hundrað stykki. Þau fóru öll,“ segir
Unnur Birna en á nafnspjaldinu má
sjá að Unnur Birna er ekki bara
fyrirsæta heldur líka dansari og
leikari.
Eitt af því sem Unnur Birna ákváð
áður en hún fór út var að kynnast
hinu raunverulega Indlandi. „Ég bjó í
íbúð ásamt vinkonu minni í miðri
Bombay til þess að kynnast lífi hins
almenna Indverja. Það var mjög
lærdómsríkt að kynnast fátæktinni. Á
kvöldin þurftum við að klofa yfir
sofandi heimilislaust fólk og það var
ótrúleg lífsreynsla að fá hið rétta
Indland beint í æð, ekki bara það sem
fólk vill að maður sjái,“ sagði Unnur
Birna sem mun, ef að líkum lætur,
halda til Indlands í sumarfríinu, til
að sinna fyrirsætustörfum.
FEGURÐARDROTTNINGIN UNNUR BIRNA
VILHJÁLMSDÓTTIR NÝKOMIN FRÁ INDLANDI
VAKTI ÓMÆLDA ATHYGLI Það er
óhætt að segja að Indverjar séu yfir
sig hrifnir af Unni Birnu.
A uðvitað er ég rosalega spennt,“ segir Sólveig Kr. Bergmann,
fréttakona Stöðvar 2 en Sólveig er
komin rúma þrjá mánuði á leið af
sínu fyrsta barni. Sólveig segist
nokkuð sama hvort kynið verði og
ætlar ekki að fá að vita það fyrr en
barnið kemur í heiminn.
„Við ætlum að láta kynið koma
okkur á óvart. Ég er sett 1. ágúst svo
þetta verður verslunarmannahelgar-
barn,“ segir Sólveig brosandi.
Kærasti Sólveigar, Kristján
Haagensen, er að sama skapi
spenntur fyrir erfingjanum en
væntanlega barnið er einnig hans
fyrsta barn. „Ég vona að ég geti
starfað fram á síðasta dag og mér
líður vel. Finn ekki fyrir ógleði eða
öðru og allt er bara eins og það á að
vera,“ segir Sólveig sem virðist sverja
sig í fréttakonuættina því stöllur
hennar, Bryndís Hólm, Svanhildur
Hólm Valsdóttir, Brynhildur
Ólafsdóttir, Þóra Arnórsdóttir og
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir hafa allar
eignast börn á síðustu tveimur árum.
Á von á verslunarmannahelgarbarni
VERSLUNARMANNAHELGARBARN Fréttakonan
Sólveig Bergmann er ólétt af sínu fyrsta
barni.
MEÐ RÉTTU GRÆJURNAR Unnur Birna
lét hanna fyrir sig nafnspjöld áður en
hún fór til Indlands.
HAMINGJA Á NJÁLSGÖTUNNI Það
ríkir mikil hamingja í litla húsinu á
Njálsgötu þar sem Sólveig og
kærasti hennar, Kristján Haagensen,
hafa búið sér heimili.
Barnalán hjá frægum
Söng- og leikkonan
Selma Björnsdóttir
eignaðist sitt annað
barn með leikarnum
Rúnari Frey Gíslasyni
í síðustu viku.
Selma eignaðist
stúlku en fyrir
áttu þau einn
dreng, Gísla
Björn, sem er
fjögurra ára.
Atvinnuknatt-
spyrnumaður-
inn Heiðar Helguson, sem leikur með
enska úrvalsdeildarliðinu Fulham, og
eiginkona hans Eik Gísladóttir eignuðust í
vikunni dreng en fyrir eiga þau synina
Aron Dag, sjö ára, og Oliver, fimm ára.
Fyrrum Herra Ísland Páll Júlíus
Kristinsson og kærastan hans Birgitta
Rós Birgisdóttir eignuðust sitt fyrsta
barn fyrr í mánuðnum.
Parið eignaðist dreng
sem hefur fengið nafnið
Júlíus Laxdal og býr
fjölskyldan á Akureyri.
Páll Júlíus var valinn
Herra Norðurland árið
2004 og sama ár var
hann valinn
Herra Ísland.
Vel launaðir bankastjórar
Þegar fyrirtæki ganga vel er yfirmönnum
og stjórnendum oft umbunað. Það á við í
tilfelli bankanna fjögurra, Kaupþings,
Landsbankans, Glitnis og Straums-
Burðaráss sem skiluðu allir methagnaði.
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður
Kaupþings, toppar launalistann en hann
fékk 170 milljónir í laun og frammistöðu-
bónus á síðasta ári. Sigurjón Þ. Árnason,
annar bankastjóra Landsbankans, fékk
153 milljónir, Hreiðar Már Sigurðsson,
forstjóri Kaupþings, fékk rétt rúmar 140
milljónir og Halldór J. Kristjánsson hjá
Landsbankanum fékk 119 milljónir.
Restina ráku svo Þórður Már Jóhann-
esson, fráfarandi for- stjóri
Straums-Burðaráss, með
88 milljónir og Friðrik
Jóhannsson, núverandi
forstjóri sama banka,
með 63 milljónir.
MEÐ TILBOÐ
FRÁ HOLLYWOOD
UPP Á VASANN
Ef þú ert ekki enn búin að
uppgötva Dizu, þá er rétti
tíminn núna!
peysur 30-50% afsláttur
mikið úrval af bútasaumsefni
á 600 kr/m Ofl ofl.....
Sjón er sögu ríkari.