Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 44
BLS. 8 | sirkus | 2. FEBRÚAR 2007
Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir hefur heldur
betur slegið í gegn á
skjánum undanfarið og er
nýjasta verkefnið hennar
að kynna í undankeppni
Eurovision-keppninnar.
Sigríður Hjálmarsdóttir
hitti Ragnhildi og fékk að
vita hvernig líf hennar
hefur gjörbreyst frá því
hún flutti frá Keflavík.
R agnhildur kemur svífandi inn á kaffihús í Kringlunni til fundar við blaðamann Sirkus.
Það er mikið að gera hjá sjónvarps-
konunni ungu en henni tókst að losa
sig í svolitla stund fyrir viðtalið. „Það
hefur mikið gerst frá því ég var lítil
stelpa í Keflavík,“ segir Ragnhildur og
brosir á meðan hún lítur á matseðil
kaffihússins. „Ég hef verið alveg
ótrúlega lánsöm og fengið að gera
alveg fullt,“ bætir hún við og fer yfir
það helsta sem hún hefur gert á
undanförnum árum. „Ég er að
mennta mig, hef leikið í söngleik og
bíómynd og er í einum stærsta
sjónvarpsþætti Íslands auk þess að fá
að kynna allar þessar skemmtilegu
hátíðir og nú síðast Eurovision-
forkeppnina,“ segir Ragnhildur.
„Þannig að það er alveg ótrúlegt að
horfa til baka. Ég hefði aldrei trúað
því þegar ég bjó í Heiðarhvamminum
í Keflavík að þetta ætti allt eftir að
gerast.“
Ragnhildur segir það rosalega
gaman að fara inn í stór verkefni sem
eiga hug hennar allan eins og er með
Eurovision. „Það verður svo mikil
stemmning í kringum þetta og þá
sérstaklega í hópnum sem vinnur að
þessu.“
Það er margt sem Ragnhildur þarf
að huga að fyrir hvern þátt af
Eurovision-forkeppninni en hún þarf
að finna fatnaðinn, skrifa handritið,
bóka viðmælendur og fleira auk þess
að funda um uppbyggingu hvers
þáttar ásamt öðru starfsfólki. „Ég
vildi vera sem minnst inni í þáttun-
um sjálf og leyfa lögunum að njóta
sín frekar en að vera kynnirinn sem
treður sér alls staðar,“ segir Ragnhild-
ur brosandi.
Trommaði í Fame
„Við Haukur Ingi, sambýlismaður
minn, fluttum til Reykjavíkur fyrir
þremur og hálfu ári til að fara í
Háskólann. Ég fór í sjúkraþjálfun og
hann í sálfræði,“ segir Ragnhildur og
bætir því við að það hafi verið
ofsalega skemmtilegt í náminu og
gengið vel.
„Síðan fékk ég hlutverk sem
dansari í söngleiknum Fame. Það var
æðislega gaman en ég var bara að
dansa á bak við aðalleikarana.“ Það
var síðan lán í óláni fyrir Ragnhildi
að ein stúlkan í sýningunni meiddist
en hún var með ágætt hlutverk. „Ég
fékk það krefjandi verkefni að hoppa
inn í hennar hlutverk í sýningunni
daginn eftir,“ segir Ragnhildur og
rifjar hlæjandi upp undirbúning sinn
fyrir hlutverkið. „Ég lærði textann um
nóttina og Haukur hjálpaði mér með
setningarnar á móti. Síðan átti ég að
vera á trommum í sýningunni en það
hafði ég aldrei prófað áður þannig að
við drógum fram potta og pönnur
sem ég barði með sleifum til að reyna
að ná smá tilfinningu fyrir trommun-
um. Þetta gekk að minnsta kosti
nógu vel til þess að ég fengi að halda
hlutverkinu þangað til hún kom inn
aftur.“
Eftir að sýningum lauk á Fame var
Ragnhildur boðuð í prufu fyrir
unglingaþáttinn Óp á Ríkissjónvarp-
inu og var valin til að stjórna
þættinum ásamt Þóru Tómasdóttur
og Kristjáni Inga. „Við vorum einn
vetur með þáttinn sem var mjög
skemmtilegt og alveg frábær reynsla.“
Útskrifast í vor
Eftir að Ópið hafði verið á skjánum
í eitt ár var ákveðið að setja saman
Magasín þátt í Ríkissjónvarpinu. „Þar
voru Mósaík, Óp og Kastljós
sameinuð í einn þátt og við Þóra
áttum að sjá um unglingaefni. Við
vorum ótrúlega heppnar að koma
beint inn í þessa hrúgu af reynslu-
miklu fólki,“ segir Ragnhildur.
„Það eru líka algjör forréttindi að
fá að klára námið sitt með fullri
vinnu en ég fæ alveg rosalega góðan
stuðning úr vinnunni. Þar eru allir í
því að stappa í mig stálinu og hvetja
mig áfram. Það er alveg ofboðslega
gott.“
Spurð hvort hún sjái það fyrir sér
að hún muni vinna sem sjúkraþjálfari
á næstunni segir Ragnhildur: „Þetta
er ein erfiðasta spurningin sem ég fæ
og ég fæ hana oft. Mér líkar alveg
ofboðslega vel í sjónvarpinu og finnst
þetta rosalega gaman. Ég get nýtt
þekkingu mína sem sjúkraþjálfari
líka í sjónvarpinu. Þannig að ég held
að ég verði eitthvað í sjónvarpinu í
einhver ár, annað hvort þangað til
fólk er orðið þreytt á mér eða ég
þreytt á sjónvarpinu.“
Ragnhildur segir sjúkraþjálfunina
nokkuð sem hún geti alltaf farið í en
sjónvarpið sé meira bara núna í dag,
ekki endilega eftir tvö ár.
Á hvíta tjaldinu
Eitt af því sem Ragnhildur
Steinunn hefur gert meðfram
náminu er að leika í kvikmyndinni
Astrópíu þar sem hún er í einu af
lykilhlutverkunum. Aðspurð hvernig
hafi verið að leika í kvikmynd segir
Ragnhildur: „Það var mjög skemmti-
legt en ég hef ákveðið að ég ætla
ekkert að tala um Astrópíu fyrr en að
henni kemur. Það er bara eitthvað
sem er ekki í gangi núna og mér
finnst eiga að koma bara seinna.“
Spurð út í Hostel 2, í leikstjórn Eli
Roth, sem hún hefur verið orðuð við
segir hún: „Hostel var bara einhver
hugmynd. Þeir töluðu við mig en á
þeim tíma var ég í Kastljósinu, sem
átti hug minn allan. Þannig að ég veit
ekki hvernig það hefði farið ef það
hefði gengið eitthvað lengra. Svo er
ég ekkert viss um að Hostel sé mynd
sem ég myndi vilja leika í. Maður
verður líka að passa sig á að velja sín
verkefni.“
Góðar barnapíur
Ragnhildur Steinunn og Haukur
Ingi eru búin að vera saman í tíu ár
en eru enn ógift: „Já, ég er bara enn
að bíða,“ segir Ragnhildur og hlær.
„Nei, nei. Við erum bara að reyna að
finna tíma. Okkur langar ekki að hafa
brúðkaupið meðan við erum svona
mikið upptekin heldur kannski
frekar þegar allt fer að róast aftur.“
Ragnhildur segir þau bæði vera
ofboðslega mikið barnafólk og fullt af
fólki í kringum þau sé komið með
börn. „Vinkonur mínar eru komnar
með börn og systir Hauks Inga er
með tvær stelpur. Eins og stendur
erum við bara alveg ofboðslega góðar
barnapíur. Við vonum náttúrlega að
Guð gefi að við getum eignast börn.
Ég hugsa stundum um það eftir þann
missi sem ég hef upplifað að það er
örugglega ekkert yndislegra en að fá
að takast á við að vera foreldri. En
það kemur bara þegar það kemur.“
sigridur@frettabladid.is
SJÓNVARPSDROTTNINGIN RAGNHILDUR STEINUNN JÓNSDÓTTIR ER UPPTEKIN UNG KONA
STÓRGLÆSILEG Það er óhætt að segja að Ragnhildur Steinunn hafi verið stórglæsileg þegar hún kynnti annan riðil í forkeppni
Eurovision um síðustu helgi. SIRKUSMYND/VALGARÐ
GÓÐAR BARNAPÍUR Ragnhildur Steinunn segir að hún og Haukur Ingi séu góðar barnapíur nú um stundir. Barneignir komi
seinna.
BRÚÐKAUP OG BARNEIGNIR
VERÐA AÐ BÍÐA BETRI TÍMA
„ÉG HEF VERIÐ
ALVEG ÓTRÚLEGA
LÁNSÖM OG FENGIÐ
AÐ GERA ALVEG
FULLT.“