Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 48
{ Heima er best } 4
„Þetta er eikarskrifborð sem er
smíðað í Svíþjóð 1947. Það er merkt
SMV sem stendur fyrir Skandinavisk
möbelverk,“ segir Kolbeinn Bjarna-
son flautuleikari brosandi um leið
og hann sýnir gamalt skrifborð sem
stendur undir súð á heimili hans í
Þingholtunum. Það erfði hann eftir
föður sinn, Bjarna Benediktsson rit-
höfund frá Hofteigi á Jökuldal sem
dó árið 1978, aðeins 46 ára að aldri.
Borðið er með djúpum skúffum,
einni í miðjunni og fjórum hvorum
megin. Aftan til í þeim eru nokkurs
konar leynihólf því allar eru þær
tvöfaldar. Einnig eru útdraganlegar
plötur sitt hvoru megin við miðju,
líkastar skurðarbrettum í eldhúsi.
„Ef maður er búinn að hlaða drasli
á borðið sjálft getur maður enn bætt
við með því að draga þessar plötur
út,“ segir Kolbeinn og hlær.
Borðið er Kolbeini kært enda
hefur það tilfinningalegt gildi fyrir
hann auk þess að vera mjög eigu-
legt. „Pabbi var náttúrlega ekki
ríkur en hlutir voru bara svo vand-
aðir á hans tíð. Hann keypti þetta
borð þegar hann var í námi í bók-
menntafræði við Uppsalaháskóla
eftir stríð og kom með það heim,“
lýsir hann og strýkur af natni yfir
borðplötuna. „Hann vann á þessu
borði allt sem eftir hann liggur. Var
með Erica-ritvél sem ég á ennþá og
er í nothæfu ástandi en hefur ekki
verið notuð eftir að tölvurnar tóku
yfirhöndina,“
Kolbeinn kveðst hafa fengið
skrifborðið fljótlega eftir lát föður
síns. Lært við það þegar hann var
í Laugarnes- og Laugalækjarskóla,
Menntaskólanum við Tjörnina og
síðar Háskólanum en notað það
minna eftir að hann sneri sér að
tónlistinni. Um tíma hafði hann
heimilistölvuna á því og geymdi
lyklaborðið í miðskúffunni. „Ég
íhugaði meira að segja að gera
breytingar á borðinu svo það nýtt-
ist betur. Taka framstykkið af skúff-
unni til að geta dregið þar tölvu-
borð út en svo áttaði ég mig á að
það væri fullkomin eyðilegging á
þessari ágætu mublu,“ viðurkennir
hann. „Nú erum við búin að hag-
ræða þannig á heimilinu að tölvan
hefur verið færð og gamla borðið
heldur sínum virðuleik.“
gun@frettabladid.is
Aukaplötur og leynihólf
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari á forláta skrifborð sem hann erfði eftir föður sinn,
Bjarna Benediktsson rithöfund frá Hofteigi.
Það getur verið notalegt að
sitja við kertaljós á köldum
vetrarkvöldum og dreypa á
rauðvíni. Þá er nú ekki verra
að glösin séu falleg en það ýtir
bara enn frekar undir stemning-
una. Víða má finna falleg rauð-
vínsglös og má segja að almennt
sé einfaldleikinn ráðandi í glösun-
um í dag. Þá er bara að finna hvað
fólki líkar best því úr nógu er að
velja. Hér má líta eitthvað af því
úrvali sem er í boði í verslunum um
þessar mundir. - sig
Rauðvín á vetrarkvöldi
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum.
Spar Þín Verslun Kópavogi, Fjarðarkaup Hafnarfirði og Lipurtá.
NÝTT
Fáðu fæturnar mjúkar
og fínar á aðeins
2 vikum með nýja
, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur