Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 54
{ Dýrin okkar } 10
„Ég kynntist Rottweiler fyrst sem
krakki í Noregi og heillaðist gjör-
samlega. Síðan fékk ég minn fyrsta
úti í Kaliforníu og á núna þrjá með
kærastanum,“ segir Árdís Péturs-
dóttir Rottweilereigandi.
Þegar Árdís sneri aftur til Íslands
varð fyrsti Rottweilerinn eftir í
Bandaríkjunum en þá kynntist hún
Ísis. „Það var ekki á stefnuskránni
að eignast hund þegar ég sneri
aftur til Íslands. En þegar ég sá Ísis
fyrst, þriggja daga gamla, var hún
svo yndisleg að það varð ekki aftur
snúið,“ segir Árdís.
Síðan eru liðin tvö og hálft ár og
hundarnir orðnir þrír. „Ég og kær-
astinn minn eigum sitt hvorn hvolp-
inn úr sama goti sem heita Diablo
og Nikita og það má segja að hund-
arnir hafi komið okkur saman,“ segir
Árdís brosandi.
Það er mikið fjör í kringum
hundana, sem eru í eðli sínu vinnu-
hundar. „Þeir þurfa mikla hreyfingu,
lágmark klukkutíma á dag. Ég fer
oft með þá út fyrir bæinn eða niður
í fjöru til að hleypa þeim. Annars
verða þeir eirðalausir og líður illa,“
segir Árdís.
Rottweiler-hundar þurfa mikinn
aga enda mjög ákveðnir en eru líka
blíðir og góðir barna- og fjölskyldu-
hundar. „Rottweiler-hundar þurfa
strangt uppeldi enda getur verið
auðvelt að missa þá út í vitleysu
ef maður er óvanur hundahaldi. Ég
mæli ekki með Rottweiler fyrir byrj-
endur,“ segir Árdís.
Hvolpanámskeið er góð leið fyrir
Rottweiler og aðra hunda til að
læra æskilega hegðun frá upphafi
en Árdís hefur síðan sjálf tekið að
sér að þjálfa Ísis í sporaleit og víða-
vangshlaupi.
Hún segir það mikinn misskilning
að hundarnir séu rífandi óargadýr
og aðeins notaðir sem varðhundar.
„Misskilningurunn um hundana á
sín upptök í amerískum bíómyndum
þar sem hundarnir sjást sem æstir
varðhundar en það á við í fæstum
tilvikum og alls ekki á Íslandi,“ segir
Árdís.
Þeir sem hafa áhuga á Rottweil-
er ættu að kynna sér vel tegundina,
heilsufar foreldra, geðslag og ætt-
erni. „Mikilvægast er að fólk finni
rétta hundinn fyrir sig og fái sér
ekki Rottweiler bara af því að því
finnst hann kúl. Það er hörkuvinna
að sinna þeim, en ef þeir alast upp
í æskilegu umhverfi eru þetta blíð-
ir og góðir hundar sem gefa manni
mjög mikið mikið,“ segir Árdís
Árdís er í forsvari fyrir netsíð-
una www.rottweiler.is þar sem er að
finna miklar og góðar upplýsingar
um Rottweiler-hunda ásamt spjall-
vef þar sem fólk getur leitað ráða og
komið með spurningar.
rh@frettabladid.is
Heilluð af Rottweiler
frá fyrstu stund
Árdís Pétursdóttir á þrjá Rottweiler-hunda og segir þá
blíða og barngóða ef þeir alast upp við réttar aðstæður.
„Þegar kalt er eru lopapeysur alveg
dásamlegar fyrir litlu hundana, rétt
eins og fólkið. Þeir eru það skinn-
kaldir og gjarnir á að skjálfa,“ segir
Guðbjörg Þorvarðardóttir dýra-
læknir, sem rekur stofuna Dag-
finn dýralækni. „Þessi litlu kríli
eru líka svo mikið inni við að þau
þurfa helst einhvern galla þegar
þau fara út í íslenskt vetrarveð-
ur. Þá er fátt betur viðeigandi en
lopapeysan,“ bætir hún við. Spurð
um tilurð peysanna upplýsir hún
að móðursystir hennar, Beta Ein-
arsdóttir, prjóni þær og segir þær
vekja athygli og aðdáun viðskipta-
vina. „Fólki finnst gaman að hafa
hundana þjóðlega klædda um leið
og því er varnað að þeir fái kvef og
jafnvel lungnabólgu,“ segir Guð-
björg. - gun
Hlýlegar hundapeysur
Lopapeysur á litla hunda fást í Dagfinni dýralækni á Skólavörðustíg 35.
Tilboðsdagar
10-50% AFSLÁTTUR
Sængurfataverslun, Glæsibæ sími 5520978
www.damask.is
Opið mán.-fös. Kl. 10-18, kl. 10-16
Tilboðsdögum lýkur
laugardaginn 3. feb.