Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 56
{ Dýrin okkar } 12
Snjólfur er myndarlegur köttur í
Reykjavík sem virðist við fyrstu sýn
jafnvel geta átt ættir að rekja til
ísbjarna. Hann er stór og stæðileg-
ur, með þykkan hvítan feld og örlít-
ið yfir kjörþyngd, eða um átta kíló.
Það stendur hins vegar allt til bóta
þar sem Snjólfur er í megrun og
kvartar hann mikið yfir því. Snjólf-
ur er þó alíslenskur fjósaköttur frá
Flúðum og var bjargað frá svæf-
ingu þegar hann var fjögurra mán-
aða. Þá skipti hann líka um kyn en
fram að fjögurra mánaða aldri hafði
hann verið kallaður Snæfríður þar
sem allir héldu að hann væri læða.
Nú er Snjólfur sex og hálfs árs og er
hann hinn hressasti.
Halla Sigrún Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs
Flugmálastjórnar Íslands, er stoltur
eigandi kattarins Snjólfs. Halla er
hins vegar ekki viss um að Snjólfur
átti sig á því, hann lítur frekar svo
á að þau séu sambýlisfólk og telur
Halla jafnvel óvíst að Snjólfur átti
sig á því yfirhöfuð að hann sé kött-
ur. Hann vill sofa í rúmi eigandans,
samkjaftar með mjálmi og vill fá
sérsæti í partíum.
Um sambýlinginn segir Halla:
„Snjólfur er einstaklega ljúfur og
félagslyndur kisi. Hann er tölu-
verður hefðarköttur, elskar hið
ljúfa líf og er afar heimaríkur. Það
hefur reyndar aukist með aldrinum
og verður hann sífellt vanafast-
ari. Hann vill stjórna sínu svæði
og eitt af fáum skiptum sem hann
reynir að vera ógnandi er í kring-
um hunda. Honum er rosalega illa
við hunda og gerir sjálfan sig enn
stærri þegar þeir eru nálægt og eltir
þá. Hann skilur því ekki alveg hver
á í raun að flýja. Hann umber börn
en er þó ekki yfir sig hrifinn af þeim
og reynir að forða sér en í kringum
fullorðna er hann hrókur alls fagn-
aðar.“
Snjólfur er líkt og flestir kett-
ir afskaplega forvitinn og fylgist
grannt með öllum framkvæmdum
á heimilinu. Hann er duglegur að
ferðast og slappar bara af í búrinu
sínu í ökuferðum, enda vanur þeim.
Hann hlýðir kalli og þekkir nafnið
sitt og er hann vel kunnugur fólk-
inu í hverfinu. Halla segir að sumir
þekki hana jafnvel á kettinum og
átti sig á því hver hún sé þegar hún
er tengd við stóra hvíta köttinn!
Snjólfur er því vinsæll kisi og vekur
athygli víða. Halla er afar ánægð
með sambýlinginn sem fylgt hefur
henni meira og minna í rúm sex ár:
„Það er mjög notalegt að koma heim
og fá blíðar móttökur. Það eina sem
ég gæti kannski sett út á Snjólf er
að hann mætti vera aðeins minna
frekur við að troða sér í rúmið en
annars er hann yndislegur.“ - hs
Húsbóndinn á
heimilinu
Að vera eða vera ekki köttur? Það er spurningin.
Undanfarin ár hefur gæludýrum
fjölgað gríðarlega og um leið hefur
verðið hækkað á ákveðnum teg-
undum hunda og katta. Ekki er óal-
gengt að fólk eigi hund og kött fyrir
3-400.000 krónur þannig að dýrin
eru orðin heilmiklar fjárfestingar.
Tryggingafélög hafa boðið upp
á gæludýratryggingar undanfarin
ár og var Tryggingamiðstöðin með
þeim fyrstu til að taka upp slík-
ar tryggingar hér á landi. Sigmar
Scheving, vörustjóri hjá TM, segir
félagið hafa boðið fyrst upp á gælu-
dýratryggingar árið 2003. „Það er
hægt að fá tryggingar fyrir allar
helstu dýrategundir eins og hunda,
ketti og fugla. Það er alveg hægt að
fá tryggingu fyrir músina sína líka
þótt fæstir séu nú í því,“ segir Sig-
mar og bætir því við að hestatrygg-
ingar séu í sérflokki.
„Við bjóðum upp á sjúkratrygg-
ingar fyrir kanínur, páfagauka og
hamstra en mest eru þó keyptar
tryggingar fyrir þau dýr sem kosta
50.000 krónur og þar yfir.“ Sigmar
segir dýratryggingarnar skiptast í
fernt. „Það eru líf- og sjúkdóma-
tryggingar ef dýrið drepst eða miss-
ir algerlega heilsu, sjúkratrygging
ef þarf að fara með dýrið mikið
til dýralæknis, ábyrgðartrygging
fyrir þeim skaða sem dýrið veldur á
eignum og loks gæslutrygging til að
greiða fyrir gæslu á dýrinu ef eig-
andi þess veikist það mikið að hann
geti ekki annast dýrið sjálfur.“
Að sögn Sigmars fer það algjör-
lega eftir verðmati á dýrinu hvað
kostar að tryggja það. „Síðan eru
náttúrlega ákveðin aldursmörk á
tryggingunum og fellur hunda-
trygging til dæmis niður við átta
ára aldur en kattatrygging við ell-
efu ára aldur,“ segir Sigmar. - sig
Tryggingar fyrir ferfætlinga
Þegar talað er um hundaól hugsa sjálfsagt flestir um stóra leðuról
með hring fyrir tauminn. Sumir ganga jafnvel svo langt að ímynda
sér gadda á ólinni eins og sumir pönkarar hafa tileinkað sér að ganga
með.
Úrval hundaóla hefur hins vegar aukist gríðarlega hin síðari ár með
tilkomu aukinnar hundaeignar og þá sérstaklega smáhundaeignar.
Litlar, mjóar og fínlegar ólar, settar gimsteinum og öðru skrauti. Hér
eru tvö dæmi um slíka skartgripi fyrir besta vininn.
Heyrðu snöggvast, Snati
minn, snjalli vinur kæri