Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 59
15
„Kisan mín heitir Ragnheiður og er
nefnd eftir biskupsfrúnni sem er á
fimmþúsundkallinum,“ byrjar Anna
frásögnina af sinni fallegu kisu sem
er svört með hvíta bringu. „Við grín-
umst stundum með það að hún hafi
verið fædd í peysufötum því það er
eins og hún sé með slifsi um háls-
inn,“ segir hún hlæjandi. Svo lýsir
hún uppruna læðunnar. „Við feng-
um Ragnheiði hjá góðri konu sem
tók hana að sér um stundarsakir.
Það var reyndar þannig að kærast-
inn minn gaf mér hana í afmælis-
gjöf alveg óvænt. Hún er um fimm
mánaða núna en við vitum ekki
alveg hvenær hún er fædd því hún
fannst í ruslageymslu í Hlíðunum,
ásamt mömmunni og fimm öðrum
kettlingum.
Allri fjölskyldunni var komið fyrir
í Kattholti í stuttan tíma. Þá tók góð
kona hópinn að sér því það er erf-
itt að hafa smáa kettlinga í Kattholti
vegna fjölskrúðugrar bakteríuflóru.
Mamman virtist frekar húsvön en
þó var það þannig að fyrst þegar hún
slapp út á nýja staðnum fór hún í
næstu ruslafötu og kom til baka með
hálfétnar kótelettur eða kjúklingabita
í búið. Var ekki alveg búin að venjast
siðmenningunni.“
„Ragnheiður biskupsfrú er kona
sem ljómar af gjöfulum dyggðum,“
er þýðing úr latínu á fornu brúð-
kaupskvæði. Það kemur því ekki á
óvart þegar Anna upplýsir að henn-
ar Ragnheiður sé fyrirmyndarköttur.
„Hún er svona að læra á lífið. Er
aðeins farin að fara út. Þorir bara rétt
upp úr kjallaratröppunum núna en
fer alltaf lengra og lengra. Hún lenti
samt í smá slysi hérna heima, við
vitum ekki alveg hvernig. Kettling-
ar á þessum aldri eru svolitlir kjánar
og hún fór með skottið sitt einhvers
staðar á milli og rófubrotnaði en nú
er hún eiginlega gróin sára sinna.“
Uppeldið virðist ganga býsna vel
eftir því sem Anna lýsir. „Ragnheið-
ur er fjörug en ágætlega hlýðin. Hún
er dálítill miðpunktur á heimilinu
um þessar mundir og mikið uppá-
hald. Sefur til dæmis alltaf uppi í
hjá okkur. Það átti nú bara að vera
í byrjun og við sjáum til hvort það
gengur upp þegar hún fer að fara út.“
gun@frettabladid.is
Biskupsfrúin fæddist í ruslageymslu
Anna Tryggvadóttir laganemi fékk lifandi afmælisgjöf fyrir tveimur mánuðum. Það er læða sem fljótlega var skírð
Ragnheiður eftir biskupsfrú á Hólum á 17. öld.
Gæludýraspjall
á vefnum
Á vefnum Gæludýraspjall er ýmis
fróðleikur um gæludýr. Þar er að
finna fróðleik um fiska, vatnadýr,
hunda, ketti, fugla, nagdýr, hesta
og framandi dýr.
Á vefnum er spjallrás þar sem
einnig er að finna myndir af dýrum
og ýmsar hagnýtar upplýsingar. Þar
er hægt að hitta aðra gæludýraeig-
endur sem deila reynslu sinni og
veita ráð. www.dyraspjall.com
fróðleikur }
Hundaþjálfun-
arskólinn K-9
býður upp á
hvolpaskóla og
hlýðni- og hús-
þjálfun þar sem
einnig er tekist
á við hegðunar-
vanda hunda.
Við skólann
er einnig starfrækt hótel þegar
hundaeigendur þurfa að bregða
sér í frí. Hundaskólinn býður upp á
ráðgjöf um val á hvolpum auk þess
að veita alhliða ráðgjöf.
Atli Þorsteinsson, eigandi skól-
ans, er viðurkenndur hundaþjálfari
með próf frá National K9 School for
Dog Trainers í Columbus í Ohio-ríki
í Bandaríkjunum. Nánari upplýs-
ingar: http://k9.mitt.is
Hundaþjálfun
{ dýrin okkar }
úrval af hunda- og kattarúmum í öllum stærðum
járngrindur í þremur stærðum
Alpine Járnbúr í öllum stærðum
plastbúr í öllum stærðum
Cat’s Best
kattasandur
Solid Gold kattafóður
hundakex margar gerðir
Solid Gold hundafóður
pulsur
Plaque Off tannhreinsiefni fyrir hunda og ketti