Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 62
{ Heima er best } 18
Sigríður Ásta, eða Sigga Ásta eins
og hún er oftast kölluð, er nýflutt í
glæsilegt einbýlishús við Suðurgötu
í Hafnarfirði. Húsið er þó ekki nýtt
af nálinni og á sér töluverða sögu.
Það var hannað af Einari Sveinssyni
og var byggt árið 1942. Valgarð
Thoroddsen, fyrrum rafveitustjóri
og athafnamaður í Hafnarfirði, lét
byggja húsið fyrir sig og var hann
kunnugur arkitektinum. Þetta er
eitt af fáum einbýlishúsum sem
Einar Sveinsson teiknaði. Hann var
borgararkitekt í Reykjavík og teikn-
aði aðallega opinberar byggingar
og fjölbýlishús í Reykjavík. Má þar
meðal annars nefna Heilsuvernd-
arstöðina við Barónsstíg og Laug-
arnesskóla. Einnig teiknaði hann
blokkir í Vesturbænum sem bera
greinileg einkenni hans sem arki-
tekts eins og bogadregnar svalir og
sérkennilega og fjölbreytta glugga.
Hús Siggu Ástu er til að mynda
nánast með enga eins glugga. Þeir
eru ýmist litlir og hringlaga, stórir
og opnir eða franskir.
Sigga Ásta var rótgróinn Vestur-
bæingur áður en hún flutti í fjörð-
inn. „Ég hef hingað til verið Vestur-
bæingur í húð og hár og tókst einnig
að gera Vesturbæing úr eiginmann-
inum. Svo var það að við ákváðum
að flytja hingað í Hafnarfjörðinn
og var það ekki síst vegna þess
að okkur langaði að eignast garð
meðan börnin væru ekki orðin allt
of gömul og að komast í meira prí-
vathúsnæði. Það er bara svo dýrt að
kaupa einbýlishús í Vesturbænum
og því hefðum við ekki getað kom-
ist í það draumahús fyrr en kannski
milli fimmtugs og sextugs. Okkur
fannst þetta því álitlegri kostur eftir
því sem við hugsuðum þetta meira.“
Sigga Ásta segir að á einhverju stigi
málsins hafi hún tekið ástfóstri við
gamla hluta Hafnarfjarðar og finnst
hún sjá þar margt af því sem hún
kann að meta við Vesturbæinn eins
og t.d. góða sundlaug, höfnina,
falleg gömul hús og gróin hverfi.
Þegar hún síðan leit húsið augum
á netinu fóru hjólin að snúast og
heilluðust þau hjónin af því strax
við fyrstu skoðun.
Litríkt og leikandi
Heimsókn til hönnuðarins og blaðamannsins, Sigríðar
Ástu Árnadóttur, í einstakt hús í Hafnarfirðinum.
framhald á næstu opnu