Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 70
BLS. 10 | sirkus | 2. FEBRÚAR 2007
G uðbjörg Hilmardóttir er yngsti keppandinn í X-factor. Guðbjörg
hefur, eins og aðrir keppendur sem
komnir eru í Vetrargarðinn í
Smáralind, lifað af niðurskurð
dómaranna og er nú komin í hóp
Ellýjar þar sem hún hefur heillað
dómara þáttarins og áhorfendur
heima fyrir með söng sínum.
Guðbjörg fæddist árið 1990 og er því
aðeins 16 ára. Hún er fædd og
uppalin á Seltjarnarnesi og er elst í
hópi systkina sinna en mamma
hennar er flugumferðarstjóri og
pabbi hennar viðskiptafræðingur.
Guðbjörg gekk í Mýrarhúsaskóla og
Valhúsaskóla en stundar í dag nám í
Menntaskólanum í Reykjavík þar
sem hún er á fyrsta ári.
Alltaf verið músíkölsk
Þeir sem þekkja hana best segja að
hún hafi alltaf verið músíkölsk og að
hún hafi sungið frá því hún byrjaði að
ganga. Guðbjörg hefur stundað
fiðlunám frá fimm ára aldri og
stundar enn í dag auk þess sem hún
hóf söngnám í unglingadeild
Söngskóla Sigurðar Demetz fyrir
tveimur árum svo hún er enginn
nýgræðingur í tónlist.
Eins og áður sagði hefur Guðbjörg
alltaf verið músíkölsk. Hún hefur
alltaf átt auðvelt með að læra texta
og þeir sem þekkja hana best segja
að hún hafi til dæmis kunnað öll
versin af Maístjörnunni þegar hún
var afar ung að árum. Eins og margir
unglingar á hennar aldri hlustar
Guðbjörg á popptónlist og sam-
kvæmt mömmu hennar er söngkon-
an Christina Aguilera í sérstöku
uppáhaldi hjá henni. Tónlistin og
skólinn hafa átt hug hennar allan
upp á síðkastið enda nóg að gera í
fiðlu- og söngnámi með tónfræði,
hljóðfræði, strengjasveit og öðru sem
tilheyrir tónlistinni.
Með mjög þroskaða rödd
Hallveig Rúnarsdóttir, sem kennir
henni söng, þekkir Guðbjörgu
sennilega betur en flestir enda hefur
hún kennt henni undanfarin tvö ár.
„Guðbjörg er alveg frábær stelpa.
Hún er skynsöm, klár og með mjög
þroskaða rödd. Hún veit að það þýðir
ekkert að ofmetnast enda hefði hún
aldrei fengið að taka þátt í þessari
keppni ef slíkt hefði verið upp á
teningnum. Hún þurfti leyfi frá
skólanum til að taka þátt og ég hefði
aldrei leyft henni að vera með ef hún
væri þessi týpíski 16 ára unglingur.
Hún er mjög þroskuð, öguð og klár,
og ég þakka það bæði tónlistinni og
uppeldinu sem hún hefur fengið. Hún
er með forgangsröðina á hreinu og
sækir bæði skólann og söngtíma hjá
mér ásamt því að taka þátt í
keppninni,“ segir Hallveig, sem horfði
á fyrsta þáttinn í Smáralindinni og
kaus að sjálfsögðu sína manneskju.
Aldurinn skiptir ekki öllu
Söngkonan Brynja Valdimarsdóttir
tók á sínum tíma þátt í Idol-
stjörnuleit. Brynja var yngsta stelpan
sem komst í tíu manna hópinn en
segir að ungur aldur hafi ekki
skemmt fyrir henni.
„Ég hafði alveg ofsalega gaman af
þessu og held að í rauninni hafi bara
verið gott hversu ung ég var. Þessi
lífsreynsla þroskaði mig mikið og
reynslan sem ég fékk var ómetanleg
og hefði ekki getað komið á betri
tíma. Aldurinn skiptir heldur ekki
öllu heldur það hversu þroskað fólk
er,“ segir Brynja sem líst vel á
Guðbjörgu.
„Mér finnst hún alveg rosalega
efnileg, allavega það sem ég hef séð af
henni,“ segir Brynja.
Hörkutöggur í henni
Einari Bárðarsyni, einum af
þremur dómurum X-factor, líst vel á
Guðbjörgu þrátt fyrir að hún sé ekki í
hans hópi. „Guðbjörg er lítil og sæt
stelpa sem syngur af
öllum krafti og það
er hægt að hafa
gaman af henni,“
segir Einar og
bætir við að
allur hópurinn
sé afar flottur.
„Þetta er mjög
gott lið sem er
þarna að
keppa og þótt
mínir
keppendur skari fram úr eru hinir að
gera fína hluti líka,“ segir Einar og
hlær.
Aðspurður hvort hann hafi
áhyggjur af ungum aldri Guðbjargar
segir hann það fljótlega koma í ljós
hvort hún þoli pressuna sem
keppninni fylgi. „Það er undir Ellý
komið að hjálpa henni í gegnum
þetta en það fer eftir fólki hversu
mikla pressu það þolir. Ég hef fylgst
með ungum krökkum í Idolinu sem
hafa náð langt í þeirri keppni en
fipast svo allt í einu vegna stress og
taugaveiklunar. Ég veit samt ekki
hvernig þetta verður hjá henni, það
verður að koma í ljós. Mér líst vel á
þessa stelpu, það er hörku töggur í
henni og það verður gaman að sjá
hvernig hún fótar sig í þessu öllu
saman.“
Hvort Guðbjörg nái langt í X-factor
keppninni er erfitt að segja enda
sterkur hópur saman kominn.
Guðbjörg hefur þó allt til brunns að
bera til að slá í gegn í tónlistinni.
Þrátt fyrir ungan aldur er röddin
ótrúlega flott og framkoman
einnig svo gaman er að horfa á
þessa flottu stelpu.
indiana@frettabladid.is
oskar@frettabladid.is
SIRKUS-NÆRMYND AF GUÐBJÖRGU HILMARSDÓTTUR Í X-FACTOR
Mjög þroskuð, öguð og klár
YNGSTI KEPPANDINN Þrátt fyrir að vera aðeins sextán ára hefur Guðbjörg Hilmarsdóttir vakið verðskuldaða athygli í X-factor.
SÖNGKENNARINN Hallveig
Rúnarsdóttir kennir Guðbjörgu söng
og segir hana hafa mjög
þroskaða rödd.
Í UPPÁHALDI Christina Aguilera er í sérstöku uppáhaldi hjá Guðbjörgu.
„HÚN ER MJÖG ÞROSKUÐ,
ÖGUÐ OG KLÁR OG ÉG
ÞAKKA ÞAÐ BÆÐI TÓN-
LISTINNI OG UPPELDINU
SEM HÚN HEFUR FENGIÐ.“
nærmynd
sirkus