Fréttablaðið - 02.02.2007, Síða 92
! Kl. 11.00Í Gerðarsafni stendur yfir samsýn-ing Gullpenslanna svokölluðu. Á
sýningunni Indigo sýna Birgir Snæ-
björn Birgisson, Daði Guðbjörnsson,
Eggert Pétursson, Helgi Þorgils Frið-
jónsson, JBK Ransu, Jóhann Ludwig
Torfason, Kristín Gunnlaugsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir, Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson og Sigurður Árni
Sigurðsson. Sýningin stendur til 11.
febrúar.
Það verða ljúfar ballöður og þekkt-
ir slagarar á efnisskrá næstu
TÍBRÁR-tónleika í Salnum. Á
morgun koma félagarnir Bjarni
Thor Kristinsson bassasöngvari
og Jónas Ingimundarson píanó-
leikari fram á tónleikum Salarins
og flytja hlustendum íslensk söng-
lög eftir Sigfús Halldórsson, Karl
Ottó Runólfsson og Svein-
björn Sveinbjörnsson,
þýskar ballöður eftir
Carl Loewe og
enska og amer-
íska slagara.
Jónas
Ingimund-
arson þarf
vart að
kynna
fyrir
íslenskum
tónlistarunn-
endum en hann
er sérlegur tón-
listarráðu-
nautur Kópavogsbæjar og einn af
frumkvöðlum TÍBRÁR-tónleikar-
aðarinnar.
Bjarni Thor sló eftirminnilega í
gegn á haustmánuðum í hlutverki
Osmins í margrómaðri uppfærslu
Íslensku óperunnar á Brottnám-
inu úr kvennabúrinu eftir Mozart.
Hann hefur tvímælalaust unnið
sér sess í landsliði íslenskra
söngvara á erlendri grundu og
hefur sungið undir stjórn
heimskunnra hljómsveitarstjóra
víða um Evrópu. Næstu verkefni
Bjarna eru Rósariddarinn í Berl-
ín, Hollendingurinn fljúgandi í
Barcelona og Fáfnir í Fen-
eyjum.
Tónleikarnir á morg-
un hefjast kl. 16.
Strákarnir okkar
Ungskáld á Andarunganum
Á laugardag verður Sjón-
þing í Gerðubergi um verk
og feril listakonunnar
Rúríar. Umsjónarmaður
þess er Laufey Helgadóttir
listfræðingur en spyrlar
eru Gunnar J. Árnason list-
heimspekingur og Halldór
Björn Runólfsson listfræð-
ingur.
Sjónþingið hefst kl. 13 en að því
loknu verður opnuð sýning á sýnis-
hornum verka frá 33 ára listferli
Rúríar – allt frá fyrstu verkunum
er hún kom af fullum krafti fram á
sjónarsviðið árið 1974, að verki
sem gert er á þessu ári og tileinkað
einum af Íslands fögru fossum,
sem ef til vill á þá framtíð að
hverfa komandi kynslóðum sjón-
um. Sýningin stendur til 15. apríl.
Rúri er löngu landsþekkt fyrir
listaverk sín og gjörninga: Regn-
bogann við Flugstöðina í Keflavík
þekkja allir, færri vita að hún á
verkið Fyssu í Grasagarðinum í
Reykjavík. Í fersku minni er gjörn-
ingur hennar frá í fyrra við Drekk-
ingarhyl og stórverk hennar á
Kirkjulistahátíðinni í Hallgríms-
kirkju 2005: Ljós heimsins – Salt
jarðar, ásamt Röddun. Hún vakti
mikla athygli strax í upphafi ferils
síns tuttugu og þriggja ára gömul
þegar hún átti stórt verk á útisýn-
ingu Myndhöggvarafélagsins á
Lækjartorgi: gylltan Mercedes
Benz sem hún eyðilagði með
sleggju. Ári síðar tók hún þátt í
samsýningu SÚM og náði þá
athygli allra viðstaddra: Framan
af opnuninni sat hún í hvítum gifs-
hjúp í stól eins og stytta, en stóð
svo upp og gekk út.
Verk hennar eru því hugmynda-
fræðilegs eðlis, en eru sett fram
með margvíslegri tækni, og má
þar finna skúlptúr, innsetningar,
margmiðlunarverk, gjörninga,
bókverk, kvikmyndir, vídeó, hljóð-
verk, blandaða tækni, tölvuvædd
og gagnvirk verk. Hún hefur unnið
í margs konar form en verk henn-
ar öll eiga sér skýran hugmynda-
legan bakgrunn. Hún var fulltrúi
Íslands á Tvíæringnum í Feneyj-
um og hefur það verk farið víða,
Archive – endangered waters.
Fram undan eru einkasýningar
í Bandaríkjunum og Þýskalandi
hjá Galerie Dorothea van der Koe-
len; nýtt útilistaverk á Íslandi er í
vinnslu og stórt inniverk í vinnslu
fyrir einkaaðila. Auk þess tekur
Rúrí brátt þátt í samsýningu með
Ólafi Elíassyni og bandarísku lista-
konunni Pat Steir í vestursal Kjar-
valsstaða þar sem viðfangsefnið
er fossar.
Yfirskrift sýningarinnar, Tími
– afstæði – gildi, vísar til viðfangs-
efna Rúríar á liðnum 33 árum, við-
fangsefna sem eru sígild en einnig
áríðandi á hverjum tíma. Mynd-
hverfast þessi hugtök í samspili
fyrstu verka Rúríar og hinna síð-
ari, eins og sjá má á sýningunni, og
einnig í meðfylgjandi fléttumynd,
þar sem afstæði tíma og gildis
framkallar á óvæntan hátt tíma-
leysi góðra hugmynda og spurn-
inga sem maðurinn verður ávallt
að spyrja sjálfan sig, um það hver
hann er, hvaðan hann kemur og
hvert hann stefnir.
Um verk sín og feril segir Rúrí:
„Fyrir mér er list heimspeki, verk
mín fjalla um tengsl manns og
jarðar sem og alheims. Manninn í
óratíma veraldar – mannlegar
skynjanir. Verk mín eru aðeins
brot af heildinni. Það hefur stund-
um verið sagt að listamenn séu
skynjarar þjóðfélagsins – að þeir
nemi breytingar á ástandi þess og
komi þessum upplýsingum frá sér.
Listamenn eru þannig sífellt að
velta upp nýjum flötum á sama
veruleikanum og skoða þá frá
nýjum sjónhornum. En hversu
frumleg sem við viljum vera þá
vinnum við í raun ávallt út frá
sömu grunnforsendunum, sem eru
jörðin í alheiminum og tilvera
mannanna á jörðinni. Maður og
menning í tengslum við náttúru,
jörðu og alheim.“
Það er skammt stórra högga á
milli: sjónþingið gefur mönnum
gott tækifæri til að heyra listakon-
una rekja eitt og annað frá ferli
sínum sem síðan má sannreyna á
því yfirliti sem sett er upp í Gerðu-
bergi.
Möguleikhúsið hefur nú nýhafið
sýningar á hinu vinsæla barna-
leikriti Langafa prakkara sem
byggt er á sögum Sigrúnar Eld-
járn. Leikritið var fyrst sýnt á
vegum Möguleikhússins á árun-
um 1999 til 2001 og urðu sýning-
ar þá rúmlega 150 talsins.
Bækur Sigrúnar Eldjárn um
Langafa prakkara hafa um ára-
bil notið mikilla vinsælda meðal
yngstu lesendanna. Í þessari
leikgerð er stuðst við bækurnar
Langafi drullumallar og Lang-
afi prakkari.
Í leikritinu segir frá lítilli
stúlku og langafa hennar. Þó að
langafi sé blindur og gamall er
hann alltaf til í að taka þátt í ein-
hverjum skemmtilegum uppá-
tækjum með Önnu. Hann passar
hana á daginn þegar pabbi henn-
ar og mamma eru í vinnunni og
hefur nægan tíma til að gera
ýmislegt skemmtilegt. Langafi
og Anna eru leikin af Bjarna
Ingvarssyni og Aino Freyju
Järvelä, leikstjóri og höfundur
leikgerðar er Pétur Eggerz,
búninga gerði Katrín Þorvalds-
dóttir, leikmynd er eftir leik-
hópinn og tónlist er eftir Vil-
hjálm Guðjónsson.
Fyrsta sýningin verður í
Möguleikhúsinu við Hlemm
næstkomandi sunnudag kl. 14,
en sýningum verður síðan fram
haldið í leik- og grunnskólum.
Prakkari
snýr aftur
Sjón er sögu ríkari!
Hárný