Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 94
30 31 1 2 3 4 5
Leikarar og aðstandendur söng-
leiksins Grettis mættu á fyrsta
samlestur á verkinu í gær. Söng-
leikur þessi eftir þá Ólaf Hauk
Símonarson, Þórarin Eldjárn og
Egil Ólafsson var frumsýndur árið
1980 og naut þá mikilla vinsælda.
Aðalsöguhetjan er hinn lánlausi
Grettir sem leikarinn Halldór
Gylfason lýsir sem kærulausum,
hugmyndaríkum en dálítið utan-
gátta ungum strák. „Það er ýmis-
legt á hann lagt og annað fólk not-
færir sér sakleysi hans – hann
lendir á glapstigum og verður allt
í einu gífurlega vinsæll,“ segir
Halldór og vísar þar til frama
Grettis á sjónvarpssviðinu þegar
hann tekur að sér hlutverk í seríu
byggðri á Íslendingasögunum. Þar
kemur forn fjandvinur til
sögunnar en glíman við
Glám, sem leikinn er af
Magnúsi Jónssyni, leik-
ur unga manninn grátt,
hann sér óvin sinn í
hverju horni og átök
þeirra enda með ósköp-
um.
Halldór segir að
verkið um Gretti
eigi ekki síður
vel við nú á
dögum þegar
sýndar-
mennskan
veður uppi og
fjölmiðlar
noti fólk
markvisst til
eigin fram-
dráttar.
„Hvern hefði
til dæmis grunað
að gullkálfur
Skjás eins ætti
eftir að verða sveitaballasöngvari
að austan,“ spyr leikarinn sposk-
ur. „Þetta verk fjallar um hvernig
enginn vill vera meðal-maður,
enginn vill vera venjulegur – það
vilja allir vera frægir og ríkir og
æðislegir.“
Halldór Gylfason er ekki
ókunnur hljóðnemanum þó að
hann hafi ekki gert sig mjög gild-
andi á söngleikjasviðinu fyrr.
Hann er til að mynda forsöngvari
hljómsveitarinnar Geirfuglarnir
og félagi í skemmtidúettinum
Reynistaðabræður. „Þetta er mjög
skemmtileg áskorun fyrir mig og
músíkin hans Egils Ólafssonar er
alveg frábær,“ segir leikarinn að
lokum.Meðal annarra leikara í
sýningunni eru Jóhann Sigurðar-
son, Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Marta Nordal, Bergur Þór
Ingólfsson og Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir.
Leikstjóri sýningarinn-
ar er Rúnar Freyr Gísla-
son, tónlistarstjóri Hallur
Ingólfsson, leikmynd gera
Egill Ingibergsson og Móeið-
ur Helgadóttir en bún-
ingahönnuður er Fil-
ippía Elíasdóttir.
Grettir verður
frumsýndur 23.
mars.
Samtímastríð Grettis
Hin þekkta leikkona
Sylvia Kristel hefur
gefið út ævisögu sína
sem heitir á frum-
málinu Nue – Nakin.
Undrar það svo sem
engan sem þekkir til
starfa hennar á hvíta
tjaldinu en Sylvia
varð fræg á sínum
tíma fyrir leik sinn í
Emmanuelle-mynd-
unum. Talið er að
aðdáendur hennar, sem flestir
eru komnir yfir miðjan aldur,
telji hátt í 500 milljónir og hugsa
því útgefendur víða um lönd sér
gott til glóðarinnar. Þegar mun
ákveðið að tóna niður lýsingar
Sylvíu á raunum
sínum í enskum
útgáfum verksins en
hún hefur lengi hald-
ið því fram að ljótir
kallar hafi vélað sig
til leiks í ljósbláum
kvikmyndum. Það er
útgáfan Harper og
Collins sem sér um
ensku útgáfuna en
hún gefur líka út
Biblíuna. Hjá henni
mun bókin heita „Emmanuelle
klædd úr“. Nú er bara spurning
hvort íslenskir útgefendur Biblí-
unnar – JPV útgáfa – hafa tryggt
sér útgáfuréttinn á æviraunum
Sylvíu hér á landi.
Ævisaga Sylvíu
Unaðslegar
stundir
Rauða Húsið · Sími: 483-3330
Búðarstíg 4 · 820 Eyrarbakkka
www.raudahusid.is
með spennandi fjögurra
rétta kvöldverði á aðeins
3.900.- allar helgar
í janúar, febrúar og mars
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR