Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 95
Bókaforlagið Veröld hefur gengið
frá samningum við China Times í
Taívan um útgáfu á Þriðja tákninu
eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þar
með er ljóst að þessi frumraun
Yrsu á glæpasagnasviðinu kemur
á markað á 26 tungumálum um
víða veröld, auk þess sem þýskur
framleiðandi hefur tryggt sér
kvikmyndaréttinn á henni. Þá mun
önnur glæpasaga Yrsu, Sér grefur
gröf, koma út á þrettán tungumál-
um en samningaviðræður standa
nú yfir um útgáfu á bókinni í fleiri
löndum.
Það er China Times, sem er eitt
öflugasta bókaforlag Taívan, sem
hefur keypt réttinn á Yrsu en það
gefur meðal annars út bækur Dans
Brown, höfundar Da Vinci lykils-
ins. Forlagið festi kaup á útgáfu-
réttinum á bók Yrsu fyrir Taívan
og Hong Kong en samningavið-
ræður standa nú yfir við forlög í
Kína um útgáfu á Þriðja tákninu
þar í landi.
Yrsa í Kína
Fyrr í vetur frumsýndi Lincoln
Centre tvö verk úr þríleik breska
leikskáldsins og handritahöfundar-
ins Tom Stoppard. Verkið heitir
Coast of Utopia – Strönd staðleys-
unnar og lýsir hugmyndahræring-
um um aldamótin 1900 í andlegu lífi
Rússlands. Það spannar þrjátíu ára
sögu og þótti mönnum vonlítið að
það kæmi aftur á svið eftir að það
var frumflutt í London fyrir fáum
árum: persónur eru feikimargar og
það er ekki á færi nema auðugustu
leikhúsa að setja slíkar sýningar á
svið. Í verkinu rekur Stoppard
þróun í hugmyndalegum átökum
um þriggja áratuga skeið og um leið
sögu Rússlands. Hann byggir á
frægu safnriti ritgerða eftir Isaiah
Berlin, Russian Thinkers, en þar er
frægust ritgerða
The Hedgehog
and the Fox –
Broddgölturinn
og hérinn.
Sala á þessu
safni hefur verið
heldur dræm
um margra ára
skeið: Penquin
segist hafa selt
36 eintök á mán-
uði í Bandaríkjunum öllum. En eftir
að fyrri verkin tvö í þríleiknum hafa
komið á svið, það þriðja verður
frumsýnt í þessum mánuði, hefur
salan rokið upp. Nú er bókin upp-
seld og 2.000 pantanir liggja fyrir.
Er nú verið að flytja 3.500 eintök
yfir hafið til að mæta eftirspurn.
Kannast menn ekki við álíka smit
síðan English Patient leiddi til vax-
andi áhuga á verkum Heródótusar
og Il Postino vakti áhuga fólks á
ljóðum Pablo Neruda.
Strönd staðleysunnar er gríðar-
lega stórt verk í umfangi hvað varð-
ar svið, búninga og fjölda leikara.
Það tæpir á andstæðum hugmynd-
um um lýðræði, einræði og stjórn-
leysi og var Stoppard heillengi að
koma því saman. Því hefur verið
feikilega vel tekið vestanhafs, en
sýningin er af slíkri stærðargráðu
að vonlítið er að það fari víða.
Það vekur svo umhugsun um
stöðu bókarinnar í Bandaríkjunum
að það skuli talið fréttnæmt að bók
seljist í par þúsundum eintaka.
-
Um rússneska hugsuði
Jakob Jóhannsson heldur sína
fyrstu einkasýningu hér á landi og
opnar sýningu á Kaffi Sólon á
morgun, laugardag. Á sýningunni
sýnir listamaðurinn myndir sem
hann hefur málað á undanförnum
fjórum árum í Svíþjóð og á Íslandi
en þær eru ýmist málaðar með
akríl eða olíu á striga.
Jakob stundaði nám við Mynd-
listaskólann á Akureyri og á mynd-
listarbraut MA og útskrifaðist
þaðan árið 1986. Þaðan lá leiðin í
grafíska hönnun í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands.
Yfirskrift sýningarinnar er
„Listin að lifa“ en Jakob leggur
mikið upp úr því að myndir hans
sýni augnablik sem geta komið
áhorfandanum skemmtilega á
óvart og vakið upp jákvæðar og
ánægjulegar tilfinningar hjá sem
flestum.
Sýningin stendur til 2. mars og
er opin á þjónustutíma veitinga-
staðarins.
Listin að lifa
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhusid.is
..."Ófagra veröld er að mínu mati besta
leiksýningin sem sést hefur á stóra sviði Borgar-
leikhússins um nokkurt skeið..." ÞES/Víðsjá
“Ekki missa af þessari”
SA/Tímarit Máls og menningar
“Ef þér finnst gaman að Lísu í Undralandi en
finnst ekki nóg af kynlífi og ofbeldi í henni þá er
Ófagra veröld leikritið fyrir þig”
Anthony Neilson höfundur verksins
“Þetta er falleg sýning, samstillt, skopleg, grimm
og grátleg” PBB/ FBL
“Flott frammistaða LR” PBB/FBL
ÓFAGRA VERÖLD
ÓFAGRA VERÖLD
EFTIR ANTHONY NEILSON
SÝNING LAUGARDAG 3.FEB
áður 31.000
núna á 19.800
Sófi + stólar 3+1+1, áður 269.800
nú 199.800
Sófi 3ja sæta, áður 129.800
nú 99.800
Leður. Litir: Svart og hvítt.