Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 96
Nýverið sá ég áhugaverða heimildarmynd um gerð meistarverks
hljómsveitarinnar Pink Floyd, Dark Side of the Moon.
Síðan platan kom út árið 1973 hefur hún selst í tugum milljónum
eintaka og ekkert lát er á sölunni. Í myndinni kom fram að platan hafi
ekki selst mikið til að byrja með, sérstaklega í Bandaríkjunum.
Plötufyrirtæki sveitarinnar sá samt eitthvað við plötuna og ákvað að
ráða mann til að auglýsa hana og hljómsveitina upp á hinum gríðar-
stóra Bandaríkjamarkaði, þar sem Pink Floyd hafði áður farið í vel
heppnaða tónleikaferð. Smáskífan Money var gefin út og við það
brustu allar flóðgáttir. Meðlimum Pink Floyd hafði tekist ætlunarverk-
ið, sem var að þeirra eigin sögn
að verða ríkir og frægir. Hvaða
lag hentaði betur til þess að láta
drauminn rætast en Money?
Eftir vinsældir Dark Side of the
Moon sátu þeir Pink Floyd-liðar
eftir í tilvistarkreppu með
spurninguna; „hvað næst?“
Miðað við það sem kom fram í
myndinni áttu þeir erfitt með að
fóta sig eftir þessar vinsældir
og virtust í raun vera orðnir
saddir, enda markmiðinu náð.
Það er ekki oft sem maður heyrir það hreint út að meginmarkmið
hljómsveita sé að verða ríkar og frægar. Vafalítið er þetta raunin með
flestar hljómsveitir en fáar eru tilbúnar að viðurkenna það hreint út.
Meðlimir Pink Floyd voru snemma á ferlinum búnir að ákveða þetta
sín á milli og þá hlýtur maður að spyrja sig hvar tónlistarlegi metnað-
urinn liggi, ekki nema hann sé bara aukaatriði í stóru heildarmyndinni.
Hvað sem þessu líður þá er Pink Floyd einn af risunum í tónlistarsög-
unni og mun verða það um ókomna tíð. Vitaskuld var mikill metnaður
að baki plötunum þeirra en spurningin er bara hvort rétt sé að stofna
hljómsveit einungis með þeirri forsendu að verða rík og fræg.
Hvað næst?
Sænski tónlistarmaðurinn Jens Lekman
leggur Benna Hemm Hemm lið í einu lagi á
vínylútgáfu plötu hans, Kajak, sem kom út
nýverið hjá Morr Music. Umrætt lag heitir
Aldrei og er á Kajak. Á vínylútgáfunni er
lagið líka í annarri útgáfu og þar syng-
ur Lekman með Benna á íslensku.
Tónlistarvefurinn Pitchforkmedia
greinir frá þessu og segir raddir
Benna og Lekman passa vel saman.
„Lagið er á íslensku svo við getum
ekki greint hvort sungið er um
hjólastóla eða sætar stelpur,“
segir í greininni.
Jens Lekman spilaði á Air-
waves-hátíðinni í Reykjavík í
október á síðasta ári. Þá
aðstoðuðu meðlimir Benna
Hemm Hemm hann lítil-
lega í einu lagi. Jens Lek-
man tók upp söng sinn í
Aldrei í þessari heimsókn
sinni hingað í október.
Benni og Lekman
syngja saman
Hin alþjóðlega Bloc Party
mun senda frá sér sína aðra
breiðskífu í næstu viku.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
skoðaði gripinn og komst í
leiðinni að ýmsu sem ekki
hefur áður komið fram hjá
þessari fínu sveit.
Hljómsveitin Bloc Party gerði
fyrst usla í bresku tónlistarlífi
með smáskífum sínum, Banquet
og She’s Hearing Voices. Snemma
árs 2005 kom síðan út fyrsta breið-
skífan, Silent Alarm. Platan seld-
ist gríðarlega vel í Bretlandi og
náði platínumsölu auk þess að
vera valin plata ársins af NME.
Margir urðu hins vegar fyrir von-
brigðum með plötuna og náði Bloc
Party ekki alveg að standast þær
væntingar sem gerðar höfðu verið
til sveitarinnar.
Hinn nígeríski aðalmaður
bandsins, Kele Okereke, ásamt
gítarleikaranum Russel Lissack,
bassaleikarunum Gordon Moakes
og trommuleikaranum Matt Tong,
sem er hálf kínverskur, stefndu að
því að gera betur á næstu plötu
sinni. Strax um hálfu ári eftir
útgáfu Silent Alarm sagðist sveit-
in eiga nógu mikið af efni fyrir
tvær nýjar breiðskífur.
A Weekend in the City heitir grip-
urinn sem er ætlað að fylgja eftir
vinsældum Silent Alarm og kveða
niður gagnrýnisraddir í leiðinni.
Nafnið á plötunni endurspeglar
vel innviði plötunnar. „Fyrir mér
er platan algjörlega um lífið í
borginni og ég held að mörg af
þeim þemum sem óma á plötunni
séu að miklu leyti um hversdags-
legt líf í stórborginni,” sagði Oker-
eke í viðtali á síðasta ári þegar
platan var enn í vinnslu.
Þemað um lífið í stórborginni
kemur bersýnilega fram í textum
plötunnar. Fjallað er meðal annars
um eiturlyf, líf innflytjenda og
lífsstíl úthverfakrakka. Nokkur
lög, til dæmis Kreuzberg og I Still
Remember bera síðan með sér
augljósan keim af samkynhneigð.
Kynhneigð Okerekes hefur lengi
verið umfjöllunarefni bresku
pressunnar og verður vafalaust
enn fyrirferðarmeiri eftir þessa
plötu.
Í nýlegu viðtali við The
Guardain sagði Okereke ekki með
berum orðum að hann væri sam-
kynhneigður en ýjaði samt nokkuð
að því. „[...] það eru lög á þessari
plötu sem virðast fjalla um þrá,
löngun,” sagði Okereke meðal ann-
ars í viðtalinu.
Platan var tekin up af Jacknife
Lee sem áður hefur til dæmis
unnið með U2, Snow Patrol og
Kasabian. Lee á að hafa gert
mixteip handa strákunum áður en
þeir mættu í upptökuverið og inni-
hélt það meðal annars teknóhaus-
inn Isolée, lög með ungverska tón-
skáldinu György Ligeti og lagið
One Thing með r&b gellunni
Amerie og segir Okereke að það
lag hafi haft sérstaklega mikil
áhrif á sig. Aðrir áhrifavaldar
voru víst einnig Philip Glass og
Timbaland.
Hljómurinn á nýju plötunni er
vissulega frábrugðinn þeim sem
heyrðist á Silent Alarm. Tónninn
er mun alvarlegri og rólegri en
jafnframt væminn, tilraunkennd-
ari og ekki eins rokkaður. Þannig
fær hinn frábæri trommari sveit-
arinnar Matt Tong ekki að njóta
sín nógu vel. Tong lenti reyndar í
því eftir tónleika sveitarinnar í
Atlanta í nóvember síðastliðnum
að lungu hans féllu saman. Hvað
sem því líður verður hins vegar að
viðurkennast að platan er örlítil
vonbrigði. Ekkert lag heltekur
mann líkt og Banquet gerði eða
gefur manni gæsahúð eins og Like
Eating Glass. Sæmilegur gripur
engu að síður en það býr meira í
Bloc Party.
– Vel lesið
Vertu inní
Fréttablaðinu
með þitt
kynningarefni
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
Notaðu mest lesna* blað landsins til að
dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina
*Gallup maí 2006