Fréttablaðið - 02.02.2007, Side 97
Skífan á Laugavegi státar væntan-
lega af bestu starfsmannahljóm-
sveit sem til er. Hana skipa meðal
annars Lovísa Elísabet Sigrúnar-
dóttir, betur þekkt sem Lay Low,
plötusnúðurinn Gísli Galdur, sem
einnig spilar með Trabant, Bene-
dikt Freyr Jónsson eða DJ B-Ruff,
og söngkonan Lára Rúnarsdóttir.
Níu manna sveitin, sem hlotið
hefur nafnið SKLA, leggur land
undir fót í dag og treður upp á
ísfirska kaffihúsinu Langa Manga
í kvöld.
„Ég er víst bossinn og þarf að
fara með þau í starfsmannaferð,“
sagði verslunarstjórinn og Vest-
firðingurinn Halldór Gunnar Páls-
son. „Við spilum á Langa Manga
og svo ætlum við að fara á þorra-
blót á Flateyri og skemmta okkur.
Tónleikarnir eru svona bónus, svo
þetta standi undir kostnaði,“ sagði
Halldór kíminn.
Hljómsveitin varð til fyrir
starfsmannagleði á vegum Skíf-
unnar. „Við áttuðum okkur á því
að allir sem voru að vinna hérna
voru í einhverjum hljómsveitum
og að spila úti um allt. Svo við
tróðum upp þar og þetta verður
gigg númer tvö,“ útskýrði Halldór,
sem segir fátt betur til þess fallið
að hrista starfsmannahóp saman
en að stofna hljómsveit. „Ég skora
bara á önnur fyrirtæki að reyna
þetta,“ sagði hann.
Nafngift hljómsveitarinnar lá
beint við, að sögn Halldórs. „Inni í
kerfinu hjá okkur er þetta skamm-
stöfun fyrir Skífuna á Laugavegi,
svo það kom eiginlega ekkert
annað til greina,“ sagði hann.
Starfsliðið mun hópast inn í rútu í
dag og keyra sem leið liggur á
Flateyri, þar sem góðvinur Hall-
dórs hefur lofað höfðinglegum
móttökum. Þó er ekki alveg allt
klappað og klárt, því enn á eftir að
úthluta eina starfsmanninum sem
ekki spilar á hljóðfæri eða er við-
riðinn tónlist hlutverki.
„Það er búið að prófa ýmis-
legt,“ sagði Halldór hlæjandi. „Við
höfum reynt tambúrínu og tromm-
ur og söng. Hún kemst ekkert
undan því að spila samt. Við látum
hana ekki sitja eina úti í sal, það er
ekki hægt í svona hópferð,“ sagði
hann.
Starfsmannahljómsveit Skífunnar stjörnum prýdd
The Flaming Lips, Kasabian, Soul-
wax og Metric eru á meðal þeirra
hljómsveita sem hafa hannað eigin
stuttermaboli fyrir erótíska tíma-
ritið Playboy.
Bolirnir verða sýndir á sex
blaðsíðum í tónlistartengdri
útgáfu Playboy sem kemur út í
mars. Bolirnir verða síðan seldir í
sumar í takmörkuðu upplagi og
mun allur ágóði renna til hjálpar-
samtaka sem berjast gegn
alnæmi.
Stutterma-
bolir fyrir
Playboy
Ný plata með Nick Drake er vænt-
anleg í sumar og mun hún heita
Family Tree. Á plötunni verða
sjaldheyrð lög eftir Drake auk
laga sem hafa aldrei komið áður
upp á yfirborðið.
Heimildarmynd um Nick
Drake verður jafnframt frum-
sýnd á South by Southwest hátíð-
inni hinn 17. mars. Nefnist hún A
Skin Too Few: The Days of Nick
Drake. Á hátíðinni verður einnig
umræðufundur um Nick Drake
þar sem systir hans Gabrielle,
fyrrverandi upptökustjóri hans
John Boyd, Paul Weller og Robert
Kirby munu flytja erindi.
Nick Drake, sem er þekktur
fyrir lágstemmda kassagítartón-
list sína, lést árið 1974 aðeins 26
ára að aldri eftir að hafa tekið inn
of stóran lyfjaskammt. Hann barð-
ist við þunglyndi og svefnleysi
alla sína ævi og endurspeglaðist
það víða í textum hans.
Drake gaf út þrjár hljóðvers-
plötur á ævi sinni sem fengu litla
athygli. Hafa vinsældir hans aukist
jafnt og þétt á undanförnum árum.
Nick Drake
snýr aftur