Fréttablaðið - 02.02.2007, Side 100
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ROCKY BALBOA kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
LITTLE CHILDREN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
KÖLD SLÓÐ kl. 8 B.I. 12 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
MÝRIN kl. 10.20 B.I. 12 ÁRA
ROCKY BALBOA kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.40, 8 og 10.20
KIRIKOU 2 ÍSL. TAL kl. 4
CHARLOTTE´S WEB ENSKT TAL kl. 3.40
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 5.20
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40, 8 og 10.20
APOCALYPTO kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45 og 8 B.I. 12 ÁRA
ROCKY BALBOA kl. 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
DREAMGIRLS kl. 5.40, 8 og 10.30 B.I. 7 ÁRA
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 6
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
Gagnrýni. baggalútur.is
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MEÐ BEN STILLER OG ROBIN
WILLIAMS
4 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
m.a sem besta myndin
Frábær mynd!
Óli Palli – Rás 2
3 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
Rocky er
mættur aftur í
frábærri mynd
sem hlotið
hefur mjög
góða dóma og
aðsókn í USA.
Ekki missa af
þessari!
...SÍÐASTA LOTAN!
Úrvalið í kvikmyndahúsum í
Reykjavík er óvenju gott þessa
dagana og framboð mynda sem
örva hugsun áhorfenda frekar en
sljóvga hana er með besta móti. Í
þessu sambandi má nefna Little
Miss Sunshine, Children of Men,
Babel, Blood Diamond og Little
Children.
Í Little Children segir Todd
Field sögu nokkurra einstaklinga
sem allir glíma við sína djöfla
innri og ytri og lýsir því hvernig
leiðir þeirra skerast með bæði
góðum og misskelfilegum afleið-
ingum.
Sarah (Kate Winslet) er vansæl
heimavinnandi húsmóðir sem
situr uppi með leiðinlegan eigi-
mann sem er háður netklámi. Á
róluvellinum kynnist hún hinum
fjallmyndarlega Brad, heimavinn-
andi húsbónda, sem hefur ekki
döngun í sér til að ljúka lögmanns-
prófi og er undir hæl frama-
gjarnrar eiginkonu (Jennifer
Connely). Yfir tilveru þessa fólks
vomir svo ógn í gervi Ronnies
(Jackie Earle Haley). Perverts
sem hefur gert sig sekan um að
bera sig fyrir framan börn. Hann
er nýkominn úr fangelsi og flytur
inn til aldraðrar móður sinnar í
rólegu hverfinu en tilkoma hans
sáir fræjum ótta og efasemda í
hjörtu foreldranna sem stunda
rólóinn með börnum sínum.
Styrkur þessarar litlu úthverf-
asögu er ekki síst fólginn í því að
hana má sprengja út í stærri vídd-
ir og í raun stendur þessi litli
heimur sem hverfist um einn rólu-
völl fyrir heiminn eins og hann
leggur sig. Firrta og sjúka veröld
sem er byggð fólki sem er fórnar-
lömb eigin fordóma, vanmáttar,
örvæntingar og ráðaleysis. Áhrifa-
máttur Little Children er fólginn í
því að myndin er að einhverju
leyti um okkur öll og á því skilyrð-
islaust erindi við samtímann.
Öflugir leikarar undir yfirveg-
aðri stjórn Fields reka síðan
smiðshöggið á þessa eftirminni-
legu mynd en þar fara þau fremst
í flokki Kate Winslet og Jackie
Earle Haley sem bæði uppskáru
Óskarsverðlaunatilnefnigu fyrir
frammistöðu sína.
Við allt þetta má svo bæta að
Little Children dettur inn í íslensk
kvikmyndahús á hárréttu augna-
bliki í miðri og heitri þjóðfélags-
umræðu um barnaníðinga en rétt
eins og Happiness og The Woods-
man nálgast hún einstaklinga í
þessum fordæmda hópi sem mann-
eskjur og neyðir áhorfandann til
að horfa á þá sem slíka. Djarfur
leikur en áhrifaríkur og gerir
myndinna erfiða á að horfa um
leið og hún minnir harkalega á að
barnaníð er mein sem ekki verður
upprætt með upphrópunum, múg-
æsingu og ofbeldi.
Heimurinn allur á
róluvelli
Tónlistarkonan Björk Guðmunds-
dóttir mun spila á Hróarskelduhá-
tíðinni í Danmörku í sumar. Þetta
verða einu tónleikar hennar á
Norðurlöndunum á þessu ári.
Áður hafði Kaliforníusveitin
Red Hot Chili Peppers boðað komu
sína á hátíðina. Björk kom síðast
fram á Hróarskeldu árið 2003 á
lokatónleikum hátíðarinnar. Hrif-
ust þá áhorfendurnir, sem voru 50
þúsund talsins, mjög af frammi-
stöðu hennar, auk þess sem dansk-
ir fjölmiðlar höfðu uppi stór lýs-
ingarorð um tónleikana. Töldu
viðstaddir að tónleikarnir hefðu
verið á meðal þeirra bestu í sögu
Hróarskeldu.
Björk, sem gefur út nýja plötu í
vor, mun einnig spila á Coachella-
tónlistarhátíðinni í Bandaríkjun-
um í lok apríl og á Glastonbury í
Bretlandi í lok júní.
Miðasala á Hróarskeldu fer
fram á midi.is og kostar miðinn
19.500 kr. Frekari upplýsingar má
finna á www.roskilde-festival.is.
Fer á Hróarskeldu
Dúettinn
Indigó heldur
tónleika á
Kaffi Babalú í
kvöld. Indigó
mun þann 19.
mars gefa út
samnefnda
plötu hjá
Smekkleysu
og er þetta í fyrsta sinn sem sveitin
gerir slíkan útgáfusamning. Áður
hefur hún gefið út tvær plötur á
eigin vegum. „Þetta er æfing fyrir
útgáfutónleika sem verða í lok
mars,“ segir Ingólfur Þór Árnason
úr Indigó. „Við ætlum að taka plöt-
una á tónleikunum og kannski tvö
til þrjú glæný lög.“ Tónleikarnir á
Kaffi Babalú hefjast um tíuleytið.
Hita upp
fyrir útgáfu
Nýjar vörur