Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 104
Króatar unnu átta
marka sigur á Spánverjum, 35-27,
í leik um að fá að spila um 5.
sætið á morgun. Króatar voru
fjórum mörkum yfir í hálfleik,
16-12, en misstu átta marka
forskot niður í 3 mörk þegar tólf
mínútur voru eftir. Spánverjar
komust hins vegar ekki lengra og
spila því um 7. sætið á morgun.
Ivano Balic átti frábæran leik
með Króatíu, skoraði 9 mörk úr
11 skotum og gaf 6 stoðsendingar.
Victor Tomas Gonzalez var
markahæstur Spánverja með sex
mörk en þetta er slakasta
titilvörn heimsmeistara síðan að
Sovétmenn urðu í 10. sæti á HM í
Sviss 1986.
Átta marka sig-
ur Króata
HM í handbolta
„Tapið gegn Dönum sat
enn í mönnum og svo er liðið orðið
frekar þreytt þar sem við getum
ekki skipt eins mikið og aðrar
sterkari þjóðir. Í dag var það samt
þannig að við vorum komnir með
þennan leik í hendurnar og ég veit
ekki hvað við klúðrum mörgum
dauðafærum á síðustu mínútun-
um. Það var með hreinum ólíkind-
um. Það er hundfúlt að hafa kastað
leik sem við vorum með frá okkur.
Við gáfum þetta hreinlega,“ sagði
Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari
eftir leik en hann var eðlilega
frekar þungur á brún.
„Við erum ekki að fá nein mörk
af bekknum í leiknum. Ásgeir
finnur sig ekki sem var slæmt því
við þurftum á því að halda er Rúss-
arnir tóku Óla úr umferð. Síðan
koma nánast engin mörk úr vinstri
skyttunni og á móti svona liði er
það dauðadómur,“ sagði Alfreð
sem gat ekki neitað því að það
væri erfitt að kyngja niðurstöð-
unni á mótinu eftir að hafa verið
hársbreidd frá því að komast í
undanúrslit.
„Það er mjög fúlt en þetta er
þannig að með hverjum leik verð-
ur þetta erfiðara og þeir sem
minna hafa spilað verða að skila
meiru en þeir gerðu í dag. Róður-
inn þyngist með hverjum leik út af
álaginu. Það er verðugt verkefni
að koma mönnum á lappir fyrir
Spánverjaleikinn því hann verður
mjög erfiður enda Spánn með mun
betra lið en Rússland. Menn verða
bara að rífa sig í gang á ný,“ sagði
Alfreð en efstu sjö sætin á HM
gefa rétt á sæti í riðlakeppni fyrir
Ólympíuleikana en líklegt er að
áttunda sætið muni einnig gefa
sæti í riðlakeppninni en þá í erfið-
um riðli með tveim öðrum Evr-
ópuþjóðum.
Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari var þungur á brún eftir Rússaleikinn enda nið-
urstaðan gríðarleg vonbrigði. Fyrir vikið leikur Ísland um 7. sæti mótsins.
Markvörðurinn Birkir
Ívar Guðmundsson átti mjög
góðan leik í gær og hann hefur
staðið sig alveg frábærlega á
þessu móti.
„Mér fannst þetta vera mjög
slakur leikur hjá okkur og það
vantaði allan neista. Menn virtust
ekki vera búnir að jafna sig eftir
Danaleikinn. Það er ömurlegt að
enda mótið svona eftir að hafa
verið búnir að gera góða hluti,“
sagði Birkir Ívar.
Vantaði neista
„Það var svakalega
þungt í okkur og þreytan er
klárlega farin að segja til sín,“
sagði Logi Geirsson sem gat ekki
neitað því að hann væri orðinn
örmagna.
„Ég er alveg búinn á því og
rétt svo dríf á markið. Álagið er
orðið það mikið og svo taka
meiðslin líka sinn toll. Þetta eru
tvö áföll í röð en vonandi náum
við okkur á strik gegn Spánverj-
um.“
Ég er alveg bú-
inn á því
Ólafur Stefánsson var
einna best stemmdur í íslenska
liðinu í gær og dró vagninn lengi
vel en þegar hann var tekinn úr
umferð hrundi leikur íslenska
liðsins.
„Þetta var næstum því jafn
slappt og gegn Úkraínu. Rússarnir
voru ekki góðir og Birkir varði vel
í markinu. Við gáfum þennan leik í
dag. Það er ekkert öðruvísi,“ sagði
Ólafur sem var augljóslega mjög
vonsvikinn.
„Það er vissulega búið að vera
erfitt eftir Danaleikinn en þetta er
það sem þessar keppnir ganga út
á. Þær eru ekki auðveldar og í
svona leik kemur í ljós hvaða lið
hefur meiri vilja og þol. Þetta var
mjög dapurt,“ sagði Ólafur sem er
ekki hættur að leika með landslið-
inu.
„Ég stefni ótrauður á Ólympíu-
leika með landsliðinu og vil halda
áfram að spila með landsliðinu á
meðan ég spila með Ciudad. Á
meðan menn vilja nýta krafta
mína þá býð ég mig fram í lands-
liðið.“
Held áfram ef krafta minna er óskað
Henning Fritz var hetja
þýska landsliðsins í gær. Hann
varði skot Frakka á síðustu sek-
úndu síðari framlengingar leiks-
ins í undanúrslitunum gegn Frökk-
um. Þar með unnu Þjóðverjar
leikinn, 32-31.
Eins og gefur að skilja var leik-
urinn ævintýralega spennandi.
Grípa þurfti tvívegis til framleng-
ingar og ekki mátti miklu muna að
leikurinn hefði ráðist í víta-
keppni.
Frakkar voru þó með pálmann í
höndunum. Þegar tæpar tvær mín-
útur voru til leiksloka var staðan
jöfn og Þjóðverjar manni færri.
Bæði lið skoruðu þó sitt markið
hvort og Frakkar héldu í sókn
þegar þrjátíu sekúndur voru til
leiksloka.
Klaufaleg mistök urðu til þess
að Frakkar misstu boltann en náðu
honum þó aftur fimmtán sekúnd-
um síðar. En Þjóðverjar vörðust
vel og héldu út til leiksloka.
Gríðarlegur fögnðuður var í
höllinni í Köln þar sem nítján þús-
und áhorfendur voru viðstaddir.
Heiner Brand, landsliðsþjálfari
Þjóðverja, virtist merkilega róleg-
ur á hliðarlínunni og hann hafði
skýringu á því í leikslok.
„Ég einfaldleg naut þess að
horfa á leikinn. Fyrir tveimur
vikum hefði mig aldrei órað fyrir
því að við kæmumst í þessa stöðu,“
sagði Brand kampakátur.
Henning Fritz enn á ný hetja Þjóðverja