Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 106
Danir og Pól-
verjar áttust við í æsi-
spennandi viðureign í
undanúrslitum heims-
meistaramótsins í
Þýskalandi í gær. Rétt
eins og í hinum undan-
úrslitaleiknum þurfti að
tvíframlengja leikinn. Pólverjar
keyrðu svo yfir Dani á síðustu
mínútum seinni framlengingar-
innar og unnu sætan sigur, 36-33.
Pólverjur stjórnuðu leiknum
lengst af í venjulegum leiktíma.
Danir létu hins vegar aldrei segj-
ast og undir lokin tókst þeim að
jafna metin og áttu meira að segja
möguleika á því að gera út um
leikinn.
Pólverjar gáfust hins vegar
ekki upp, jöfnuðu leikinn sem var
þá framlengdur.
Þegar tvær mínútur voru eftir
af fyrri framlengingunni höfðu
Pólverjar eins marks forystu en
misstu svo mann af velli vegna
brottvísunar. Danir jöfnuðu metin
tvívegis á lokamínútunum í kjöl-
farið. Pólverjar áttu hins vegar
lokasókn framlengingarinnar en
misstu marks.
Danir komust yfir snemma í
síðari framlengingunni, 31-30 en
fóru illa að ráði sínu eftir það.
Klaufaleg mistök kostuðu þá dýr-
mætar sóknir og Pólverjar skor-
uðu fyrir vikið næstu þrjú mörk-
in.
Þeir dönsku náðu að vísu að
minnka muninn en Pólverjar héldu
ótrauðir áfram og tryggðu sér að
lokum þriggja marka sigur, 36-33.
Vonbrigði frænda okkar því
mikil, svo skömmu eftir þá gríðar-
miklu gleði sem greip dönsku
þjóðina eftir sigurinn á Íslandi í
fjórðungsúrslitum.
Pólland og Þýskaland eigast því
við í úrslitum HM en Danir og
Frakkar í leik um bronsið.
Ítalski knattspyrnumað-
urinn Gennaro Gattuso hefur
framlengt samning sinn við AC
Milan til ársins 2011. Það þykir
því líklegt að Gattuso muni ljúka
ferli sínum á San Siro en hann er
nú 29 ára gamall. Hann hefur
verið hjá AC Milan síðan 1999.
Fyrr í vikunni samdi hinn
hollenski Clarence Seedorf við
Milan til ársins 2011.
Framlengir
samning sinn
Samningur Javier
Saviola við Barcelona rennur út í
sumar en forseti félagsins, Juan
Laporta, hefur ekki áhyggjur af
framtíð hans. Saviola hefur farið
á kostum með Barcelona undan-
farið í fjarveru Samuels Eto‘o og
Lionels Messi. Hefur hann haldið
Eiði Smára Guðjohnsen úr
byrjunarliðinu undanfarið.
„Ég er gífurlega ánægður með
þau mörk sem Saviola hefur
skorað. Hann reynist alltaf vel
þegar mest á reynir. Við erum
ánægðir með hann og ég óttast
ekki að hann fari í sumar, þótt
hann óski þess. Verði hann áfram
hjá Barca verður það vegna þess
að hann langar til þess sjálfur.“
Ánægður með
Saviola
John Terry, fyrirliði
Englandsmeistara Chelsea, hefur
náð sér af meiðslum sínum og
verður með liðinu um helgina er
liðið mætir Charlton. Jose
Mourinho viðurkenndi að hans
hafi verið sárt saknað undanfarn-
ar vikur.
„John Terry er okkur mikil-
vægur leikmaður. Við höfum
saknað hans og er mikilvægt að
hann sé orðinn klár í slaginn,
sérstaklega nú þegar við höfum
misst marga leikmenn vegna
meiðsla.“
Verður með um
helgina
Iceland Express deild karlaPólland áfram í úrslitaleikinn
Grindavík hefndi taps-
ins í undanúrslitum bikarsins með
því að vinna öruggan tólf stiga
sigur, 81-93, á ÍR í Seljaskólanum í
gær. Grindvíkingar mættu grimm-
uir til leiks og voru greinilega í
miklum hefndarhug. Þeir unnu
frákastabaráttuna og sóttu grimmt
á ÍR-inga. Grindavíkurliðið fór
kannski óvanalegar leiðir að þessu
því liðið skaut aðeins þremur
þriggja stiga skotum í seinni hálf-
leik og skoraði ekki þrist fyrr en
eftir 25 mínútur.
ÍR-liðið mátti lítið við því að
missa Hreggvið Magnússon út af
eftir aðeins sex mínútna leik.
Hreggviður varð fyrir meiðslum
aftan í læri í bikarleiknum á
sunnudaginn og þau meiðsli tóku
sig upp strax í upphafi leiks.
Hreggviður yfirgaf völlinn í stöð-
unni 16-12 fyrir ÍR og þrettán min-
útum seinna þegar liðin gengu til
hálfleiks voru Grindvíkingar
komnir tíu stigum yfir, 37-47.
Í seinni hálfleik komu ÍRingar
muninum niður í sjö stig en kom-
ust ekki nær og leikurinn var
búinn þremur mínútum fyrir
leikslok þegar munurinn var kom-
inn upp í 21 stig, 66-87. ÍR-liðið
bjargaði andlitinu í lokin en það er
áhyggjuefni fyrir Breiðhyltinga
ef að þeir eru komnir með hugann
við bikarúrslitin strax því liðið er
langt frá því að vera öruggt inn í
úrslitakeppnina.
„Menn lögðust á eitt að breyta
nokkrum áherslum frá því í síð-
ustu leikjum og það virkaði. Það er
leiðinlegt að segja það að það þurfi
tap í undanúrslitunm í bikar til
þess að vekja okkur en kannski var
það þannig. Við vorum með bikar-
leikinn en svo byrjuðum við að
verja boltann og hættum að sækja.
ÍR-ingarnir gengu á lagið og stálu
þeim leik frá okkur. Í þessum leik
héldum við okkar striki, keyrðum
upp hraðann og vorum grimmir
allan leikinn,“ segir Páll Axel, fyr-
irliði Grindavíkurliðsins sem von-
ast til að þessi leikur sé boðberi
þess sem koma skal hjá liðinu. „Við
höfum verið að spila mjög illa og
það er það sem þurfum fyrst og
fremst að laga. Við leggjum aðalá-
hersluna núna á það að koma nýjum
manni inn og vera komnir á réttan
kjöl þegar í úrslitakeppnina er
komið,“ segir Páll Axel sem vill sjá
meira frá liðinu en í undanförnum
leikjum. „Við höfum verið að spila
langt undir getu. Við byrjuðum
tímabilið á að spila mjög vel með
hraðan og skemmtilegan bolta en
síðan stoppaði það og við fórum að
spila hægan og leiðinlegan bolta.
Við höfum verið að vinna í þessum
hlutum og erum að reyna að setja
líf í þetta aftur,“ sagði Páll Axel að
lokum.
Páll Axel Vilbergsson geymdi
þriggja stiga sýninguna sína þang-
að til í seinni hálfleik þegar hann
setti fimm þrista niður en framan
af leik lögðu Grindvíkingar upp
með að fara inn í teig með góðum
árangri. Páll Axel endaði leikinn
með 25 stigum þar af komu 19
þeirra í seinni hálfleik. Grindvík-
ingurinn Calvin Clemmons var ill-
viðráðanlegur inn í teig og endaði
leikinn með 23 stig og 15 fráköst.
Nýi bandaríski leikmaðurinn Jon-
athan Griffin reyndi mikið og skil-
aði 25 stigum en 20 skot og 8 tap-
aðir boltar var kannski of mikill
fórnarkostnaður fyrir þau stig.
Nate Brown var aðalmaður í
liði ÍR og barðist eins og ljón allan
leikinn. Aðrir voru langt frá sínu
besta og þurfa að gera betur ætli
liðið sér inn í úrslitakeppnina.
Grindavík hefndi tapsins í undanúrslitaleiknum með því að vinna ÍR-inga á þeirra eigin heimavelli. ÍR-
ingar misstu Hreggvið Magnússon meiddan af velli og virtust vera komnir með hugann við bikarúrslitin.
Það fór eins og flestir
bjuggust við á Ásvöllum í gær og
Keflvíkingar sóttu bæði stigin úr
viðureign sinni gegn Haukum.
Keflavík vann 95-70 sigur á úti-
velli og er liðið því komið með
átján stig í fimmta sæti deildar-
innar.
„Við höfum spilað illa í vetur og
eins og staðan er í dag þá erum við
miðlungslið sem ætlar að toppa á
réttum tíma. Við stefndum á að
fara í gang í þessum leik og spiluð-
um vel. Við fengum mörg stig á
okkur í byrjun en löguðum vörn-
ina svo sannarlega í seinni hálf-
leik,“ sagði Sverrir Sverrisson,
leikmaður Keflavíkur, eftir leik.
Það voru tíu stig sem skildu
liðin að fyrir þennan leik en
Haukar voru í næstneðsta sæti
deildarinnar og þurfa nauðsyn-
lega að fara að ná sér í stig. Kefl-
víkingar mættu án bandarísks
leikmanns í leikinn í gær og því
væntanlega einhverjir Hafnfirð-
ingar sem voru bjartsýnir á að ná
fram óvæntum úrslitum.
Haukar byrjuðu leikinn betur
en Keflvíkingar voru alltaf á
hælunum á þeim í fyrsta leikhluta
og staðan 29-28 að honum loknum.
Keflavík náði tökum á leiknum í
öðrum leikhluta en Wayne Arnold
í liði Hauka sá til þess að forysta
gestanna var aðeins sex stig í hálf-
leik.
Í seinni hálfleik náðu Keflvík-
ingar fram góðum varnarleik og
náðu tökum á leiknum. Sigur
þeirra var aldrei í hættu, þeir voru
einfaldlega betri, náðu öruggri
forystu og virtist sigur þeirra
heldur fyrirhafnarlítill.
„Við höfðum gaman af hlutun-
um í þessum leik og við spiluðum
vel sem lið. Það vantaði menn í
okkar lið og við vissum að þetta
yrði hörkuleikur enda Haukar í
mikilli baráttu á botninum. Nú
þarf bara að halda þessu áfram,“
sagði Sverrir en Sebastian
Hermenier var stigahæstur í liði
Keflavíkur með 24 stig, þar af 18 í
fyrri hálfleik.
Fyrirhafnarlítill sigur Keflvíkinga á Haukum