Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 110
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta var stórkostlegt afmæli. Ég
væri til í að verða fertugur aftur
bara upp á það,“ segir Gísli Ein-
arsson frétta- og Mýramaður með
meiru í samtali við Fréttablaðið.
Um síðustu helgi var slegið upp
heljarinnar veislu í tilefni dagsins.
Gísli varð fertugur og afmælis-
barnið forsýndi í Landnámssetr-
inu á Borgarnesi við það tækifæri,
hálfkláraða sýningu sem heitir
Mýramaðurinn. Gísli segir hana í
anda Davids Attenborough en þar
er vísindalega farið yfir þróun
Mýramannsins frá steinöld til
vorra daga. Verkið er flutt af Gísla
og inn á milli er brugðið upp kvik-
myndabrotum.
„Já, ég held að verkið varpi
nýju ljósi á þessa tegund þannig að
menn átti sig betur á hegðunar-
munstrinu sem einkennir menn á
borð við Magnús Scheving og Guð-
laug Þór Þórðarson svo dæmi séu
nefnd,“ segir Gísli sem sýnir verk-
ið um þessar mundir í Landnáms-
setrinu.
Afmælisbarnið er afskaplega
ánægt með hvernig til tókst enda
steig hin fornfræga hljómsveit
Upplyfting á svið og Gísli segir
uppnuminn: „Elton John hvað? Ég
hefði getað notað hann í dinnern-
um. En hann er ekkert á borð við
Upplyftingu.“
En þó sýning Gísla sæti tíðind-
um og fjörið í veislunni eru það
ekki síst afmælisgjafirnar sem
vekja athygli: Brot úr Lund-
areykjadal sem innihélt þrjár
þúfur, gaddavír og sitthvað fleira
en einmitt þar sleit Gísli barns-
skónum og forláta Land Rover
árgerð 1966. Gangfær og nýskoð-
aður. Ýmsir mektarmenn úr sveit-
inni gáfu Gísla þessa höfðinglegu
gjöf.
„Hann kemst upp í 70 km hraða,
þá niður brekku og í hagstæðri
vindátt,” segir Gísli sem kann að
lesa í skilaboðin sem felast í gjöf-
inni. Er þá ónefnd sú gjöf sem
Gísla þótti einna mest til koma.
Allir gestir í veislunni lögðu fram
á löggiltum skjalapappír yfirlýs-
ingu afsals á einum umferðar-
punkti hver til Gísla. Samtals 80
umferðarpunktar.
„Yfirfærsla á kvóta. Það er ekk-
ert leyndarmál að ökuferill minn
er ævintýralegur. Já, ég hef misst
prófið. Fyrir að fara yfir á punkt-
um. Ég er með hreinan skjöld núna
en gott að eiga 80 umferðarpunkta
upp á að hlaupa. Ég á eftir að þing-
lýsa þeim en veit ekki hvernig það
mun ganga.”
… fær Emiliano Monaco og
félagar hans í Reykjavík
Documentary Workshop, sem
hyggjast hefja heimildamyndir
til vegs og virðingar og kynna
þær almennilega fyrir lands-
mönnum.
„Þetta er mjög fínt, aðallega fjár-
hagslega,“ segir Barði Jóhannsson
en lagið hans Dream hljómar í
næstu þáttaröð The L-Word sem
sýnd verður Skjá einum í haust.
Söngkonan Noemi Brosset syng-
ur lagið en Barði segir að þau
hafi samið það saman. Tónlist-
armaðurinn vissi ekki undir
hvaða aðstæðum það myndi
hljóma. Og hafði sjálfur
ekki séð þættina. „Nei,
ég verð nú að viður-
kenna það en mikið af
fólki í kringum mig
horfir á þessa þætti og hefur
gaman af,“ segir Barði. Þetta er
reyndar ekki í fyrsta skipti sem
Barði á lag í bandarískum sjón-
varpsþætti því hann átti
lag í síðustu seríu af O.
C.
Fjöldi þekktra tón-
listarmanna hefur
komið við sögu í þátt-
unum og nægir
þar að nefna
Íslandsvininn
Peaches. Í þætt-
inum sem lag
Barða fær að
hljóma kemur
síðan Goldfrapp
fram. Barði hefur
töluverða reynslu
af tónsmíðum við leikið efni, á lög
í tveimur kvikmyndum um þessar
mundir en hann samdi sem kunn-
ugt er tónlistina ásamt Mínus við
kvikmyndina Strákarnir okkar.
Sem fjallaði líka um samkyn-
hneigð, hommalið í knattspyrnu.
The L-Word þættirnir hafa notið
töluverðra vinsælda hér heima og
vestanhafs en þeir þykja opinskáir
í umfjöllun sinni um lesbíurnar
tólf í Los Angeles. Barði er hins
vegar ekki eini íslenski tónlista-
maðurinn sem bandarískir sjón-
varpsframleiðendur hafa fallið
fyrir því Emilíana Torrini átti lag
við dramatískar aðstæður í Grey‘s
Anatomy og lag tónlistarmannsins
Eberg hljómaði einnig í unglinga-
sápunni O.C.
Barði með lag í lesbíuþættinum L-Word
„Nú eru allir fréttatímar komnir
með sama auðkennið,“ segir Óðinn
Jónsson, fréttastjóri Ríkisútvarps-
ins. Margir hlustendur hrukku í kút
þegar nýtt stef hljómaði á undan
hádegisfréttunum í gær. Hið gamla
er löngu orðið samgróið fréttaflutn-
ingi gömlu Gufunnar, hefur verið
spilað í nærri aldarfjórðung.
„Við vildum bara minna hlust-
endur okkar á að við erum nútíma-
leg og kjarkmikil fréttastofa og
þetta var eitt af þeim atriðum sem
við vildum breyta,“ útskýrir Óðinn
og segir að ekki hafi staðið á
viðbrögðunum en þau hafi
flest öll verið á jákvæðu
nótunum. „Við erum ekki
að biðla til fólks að það
hoppi um af kæti og
vissulega eru margir hugsi yfir
þessu,“ útskýrir Óðinn. „Fólk verð-
ur líka að fá tækifæri til að venjast
þessu nýja stefi.“
HÖfundur nýja stefsins er Ólaf-
ur Jóhannsson en hann starfar alla
jafnan sem tæknimaður hjá Útvarp-
inu. Ólafur naut liðsinnis Viðars
Hákons úr hljómsveitinni Trabant
og segir höfundurinn að þeir hafi
legið vel og lengi yfir stefinu. „Ég
forðast reyndar þá hugsun að stefið
eigi eftir að hljóma næstu 25 árin,“
segir Ólafur sem hafði fengið ólík
viðbrögð við þessari breytingu.
„Sumir hafa hugsað okkur þegjandi
þörfina fyrir að vera breyta lífi
þeirra enn einu sinni. Unga fólkið
tekur þessu hins vegar fegins
hendi.“
Nýtt fréttastef hjá RÚVGnoðavogi 44, s. 588 8686.
Opið alla laugardaga 11-14
SÚR HVALUR - SÚRT RENGI
HARÐFISKUR
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is