Fréttablaðið - 02.02.2007, Side 112
Þegar tveir Íslendingar hittast á förnum vegi er vaninn að
annar spyrji: „Hvað segirðu
gott?“, „Heyrðu, bara allt það
fína,“ er þá venjulega svarið og í
kjölfarið kemur iðulega spurning-
in: „Nóg að gera?“
er staðreynd. Okkur finnst
fátt mikilvægara en að vera
önnum kafin og viljum meðbróður
okkar ekkert minna. Ef ekki er
nóg að gera hjá einhverjum, þá er
eitthvað að.
er bara búinn að vera svo
bissí“ er afsökun sem flestir
Íslendingar taka með miklum
skilningi. Við kinkum sam-
þykkjandi kolli og segjum: „Sama
hér.“ Sá þykir skrítinn sem ekki er
eitthvað að vinna á kvöldin og um
helgar. „Er síminn kannski ekkert
að hringja hjá honum eða …?“
spurning; „Er nóg að gera?“
er svo samofin vitund minni að
það þurfti mann sem hefur búið í
Danmörku í fimm ár til að benda
mér á þetta. Meðan Danir heilsast
með því að metast um frítíma,
heilsast Íslendingar með metingi
um hvor vinni meira.
Danir eru nú engir snillingar.
Það er nú til gamalt og gott mál-
tæki sem segir að vinnan sé systir
hamingjunnar og með því að
spyrja hvort nóg sé að gera er
maður í raun að spyrja hvort við-
komandi sé ekki hamingjusamur.
Það er að segja ef viðkomandi er
karlmaður.
konur fá þessa spurningu
mun sjaldnar en karlar. Kannski
er það vegna þess að við vitum
innst inni að það er alltof mikið að
gera hjá flestum konum. Ef við
myndum aulast til að spyrja konu
þessarar spurningar þá kæmi
hrollvekjandi holskefla af upplýs-
ingum um barnauppeldi, Bónus-
ferðir og þvott, auk þess sem hún
skilar a.m.k. átta stunda vinnu-
degi og er líka í námi. En hún legg-
ur þetta á sig vegna þess að það er
svo mikið „nóg að gera“ hjá mann-
inum hennar, því sá sést varla
nema yfir blánóttina.
hann er hetjan í fjölskyldu-
boðunum. Hann er týndi sonurinn
sem sýndi og sannaði að hann er
enginn aumingi. Í dag hefur hann
svo mikið að gera að börnin hans
þekkja hann ekki. Þannig var það
líka með pabba hans, sem nú bætir
fyrir samskiptaleysið við soninn
með því að vera góður við barna-
börnin. „Það er fjör í sonarsynin-
um. Hann verður mikill vinnu-
maður þegar hann verður stór.
Það verður örugglega nóg að gera
hjá honum.“
Nóg að gera
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Á LÆKKUÐU VERÐI
Í FEBRÚAR
Flug til Færeyja
- brú milli bræðra og góðra granna
Viðskiptatækifæri - ferðaævintýri
Færeyjar eru heillandi heimur rétt við bæjardyr okkar
Íslendinga. Þar sem þær rísa úr hafi bíður okkar gestrisin
og vingjarnleg þjóð, litskrúðugt mannlíf, stórbrotin
náttúra og þróttmikið samfélag með ótal möguleikum og
opið fyrir nýjum hugmyndum.
Í samvinnu við Atlantic Airways býður Flugfélag Íslands
reglubundnar flugferðir milli Íslands og Færeyja allan
ársins hring. Fram til 24. mars er flogið tvisvar í viku, á
mánudögum og föstudögum. Frá 25. mars er flogið
þrisvar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum.
Verð frá 23.470 kr., báðar leiðir með sköttum.
Færeyjaflug í samvinnu við Atlantic Airways.
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
U
3
59
84
0
1.
20
07
MARKAÐURINN
Hafliði Helgason
í hádegisfréttum
Stöðvar 2 kl. 12:
alla virka daga