Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 22
Tákn með tali er tjáningar-
máti sem skilað hefur góðum
árangri hjá börnum með frávik
í málþroska.
„Tákn með tali er tjáningarform,
ætlað heyrandi einstaklingum sem
eiga við mál- og talörðugleika að
stríða,“ segir Eyrún Ísfold Gísla-
dóttir, talmeinafræðingur og
frumkvöðull.. „Farið er í kringum
hindranir í máli með því að nota
tákn samhliða tali og þannig fá
þessir einstaklingar verkfæri til
að tjá sig,“ segir Eyrún og útskýr-
ir að Tákn með tali byggist á nátt-
úrulegri tjáningu líkamans og
grundvallist fyrst og fremst á lát-
bragði og svipbrigðum sem kalla
má náttúruleg tákn.
„Það er okkur eðlilegt að tjá
okkur með fleiru en orðum. Við til
dæmis bendum og gefum til kynna
hvort okkur er heitt eða kalt. Sam-
ræmdu táknin koma síðan til við-
bótar. Táknin eru oft mjög mynd-
ræn og auðvelda barninu að gera
sig skiljanlegt,“ segir Eyrún.
Notkun þeirra hefur því í för með
sér meiri og markvissari boðskipti
og eflir það sjálfstæði og eykur
lífsgæði. Eyrún segir í raun auð-
veldara að tala með höndunum en
talfærunum þar sem byggt sé á
virkjun sjónskyns sem sé áhrifa-
meira en heyrnarskyn og unnt sé
að leiðbeina barninu með hand-
stýringu.
„ Útfærsla táknanna tekur mið
af taltakti sem auðveldar fram-
burð lengri eða erfiðari orða. Þetta
er auðveld og árangursrík boð-
skiptaleið sem hefur hjálpað
mörgum, ekki síst börnum með
mikil frávik í málþroska og fjöl-
skyldum þeirra.“
Táknin á alltaf að nota með tal-
máli en aldrei ein og sér þar sem
þau eru viðbót við talað mál en
koma ekki í staðinn. „Þetta er ekki
það sama og táknmál heyrnar-
lausra. Tákn með tali styður við
þróun máls og tals og því fyrr sem
farið er af stað því betra, en það er
aldrei of seint,“ útskýrir Eyrún og
leggur áherslu á að þátttaka og
virkni umhverfisins (t.d. heimilis
og skóla) séu lykilatriði.
„Lokatakmarkið er talað mál
og er þetta því hugsað sem nokk-
urs konar brú. Tákn með tali er
mjög auðvelt að nota og oftar en
ekki ber aðferðin fljótt árangur.“
Mikilvægt er fyrir foreldra og
fagfólk að sækja námskeið í notk-
un Tákna með tali til að öðlast
meira öryggi og fá nánari leiðsögn
um notkun.
Námsgagnastofnun hefur gefið
út sérstaka Tákn með tali orðabók
eftir Björk Alfreðsdóttur og Sig-
rúnu Grendal og bent er á vefsíðu
Vigdísar Einarsdóttur www.tmt.is
þar sem táknin eru sett fram á lif-
andi hátt með viðeigandi hreyf-
ingum.
Dýrmæt boðskiptaleið
Laugavegi 67 · 101 Reykjavík · Sími: 551 8228
ÚtsölulokAllt á að seljast!
Lokað í Kringlunni vegna breyting
a
opnum aftur 15.mars kl.10
Opið á Laugarvegi 17
alla daga
Iðu-húsinu • Lækjargötu 2 • sími 552 7682 • www.glingglo.is
NOSE & BLOWS
Fæst í verslunum og apótekum um land allt.
Ofnæmisprófuð lína sem er sérstaklega hönnuð fyrir kvefaða
litla nebba. Mild formúla sem svíður ekki undan.
Nebbaþurrkur og nebbakrem
Blautklútar sem hjálpa til við að hreinsa nefgöngin. Inniheldur rakagefandi B5 vítamín og
náttúrulegt mentol til þess að auðvelda öndun. Inniheldur hvorki litarefni né alkohól.
Kremið inniheldur ilmkjarnablöndu af piparmyntu og eucalyptus auk nornaheslis sem er
mjög græðandi.
Fæst í apótekum um land allt
Fæst í apótekum um land allt
Ofnæmisprófuð og mild lína sem er sérstkalega þróuð fyrir
viðkvæma húð ungbarna
Ungbarna andlitskrem – Verndar húðina gegn óæskilegum áhrifum umhverfis og útfjólubláum geislum. Sólarvörn SPF 18, vítamín A&E.
Bossakrem – Mýkir og verndar bleyjusvæðið gegn ertingu, útbrotum og þurrki. Býr til verndandi lag á húðina. A&B5 vítamín. Mjög gott á bruna.
Bossablautklútar – Handhægir klútar í ferðapakkningu. Húðlæknisfræðilega prófaðir. Úr 100% trefjum. Alkóhól- og litefnalausir. Ph gildi 5,5.
Ungbarna baðsápa – Sérlega mild og rakagefandi kremsápa “sápulaus”. Innih. A&E vítamín.
Ungbarna sjampó – Milt sjampó (tearless). Hefur góðan ilm og gerir hárið silkimjúkt.
Ungbarna húðmjólk – Mild og rakagefandi húðmjólk. Inniheldur E&B5 vítamín. Ph gildi 5,5.
Ungbarna olía – Mild olía sem mýkir og hefur róandi áhrif á húðina. Inniheldur A&E vítamín.
Sensitive
ungbarnalína