Fréttablaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 24
Synti 1500 metra,
hef aldrei á ævi
minni synt svo langt.
Ekki af neinni sér-
stakri ástæðu, bara
vegna þess að mér
leið vel í lauginni og
ég hafði ekkert annað að gera.
Fyrstu ferðirnar milli bakka
eru tilbreytingarlausar og leiðin-
legar en svo gleymir maður smám
saman stund og stað og kemst í
leiðslukennt ástand sem er ótrufl-
að af hugsunum. Það kalla sumir
hugleiðslu.
Ég er að reyna að
breyta matarvenj-
um mínum úr því
að borða sjaldan
og mikið í einu í að
borða oft og lítið
í einu. Það tekur
þrjár vikur að gera
eitthvað að vana. Verst hvað þess-
ar fyrstu þrjár vikur eru lengi að
líða.
Bókin sem ég er að skrifa er
smám saman að taka á sig mynd.
Allar þær rannsóknir sem ég hef
lagst í eru nú að skila sér. Reynd-
ar er það synd hversu miklu af
góðum og merkilegum upplýsing-
um maður verður að henda af því
að þær eiga ekki heima í skáld-
sögu.
Svonefnd „skipulögð glæpa-
starfsemi“, „organized crime“,
kemur við sögu í bókinni. Út-
breiðsla hennar og velgengni
verður skiljanlegri þegar maður
gerir sér grein fyrir því að hér
er um að ræða atvinnugrein sem
veltir stjarnfræðilegum upphæð-
um; eiturlyfjasala ein og sér veltir
meira en 4 billjónum (fjögur þús-
und milljörðum) íslenskra króna á
ári – en greinar eins og vopnasala,
fjárkúgun, fjárhættuspil, þræla-
sala og vændi gefa mun meira af
sér.
Ef einhver heldur að þrælasala
og þrælahald heyri sögunni til rétt
eins og sjórán er það mikill mis-
skilningur. Á hverju ári eru meira
en 10 milljónir manna, aðallega þó
konur og börn, seldar mansali.
Til samanburðar má geta þess
að samanlagður fjöldi þræla sem
Evrópumenn seldu til Bandaríkj-
anna á meira en einni öld er talinn
hafa verið milli 10 og 12 milljónir.
Í hinu yndislega Taílandi einu
starfar meira en ein milljón kyn-
lífsþræla við að svala fýsnum
Vesturlandabúa – nær eingöngu
konur og börn.
Sjórán eru ekki heldur úr sög-
unni, öðru nær. Árið 2003 voru
framin 344 sjórán sem vitað er um,
en nútímasjóræningjar víla ekki
fyrir sér að hertaka flutningaskip,
ræna farminum og heimta lausn-
argjald fyrir þá farþega eða áhafn-
armeðlimi sem þeir ekki drepa.
Samanlögð
útgjöld allra
ríkja heims
til lög-
reglumála
og tollgæslu
eru agnar-
smá í samanburði við þá fjármuni sem
glæpasamtök hafa yfir að ráða. Og
ofan í kaupið hefur engu löggjaf-
arþingi enn þann dag í dag tekist
að skilgreina nákvæmlega hvað
orðin „skipulögð glæpastarfsemi“
merkja nákvæmlega, og lagasetn-
ing um illa skilgreinda hluti verð-
ur eðli málsins samkvæmt tals-
vert götótt.
Í Evrópusambandinu einu eru
starfandi meira en 4.000 skipu-
lögð glæpasamtök með um það
bil 50 þúsund meðlimi í mismun-
andi miklum tengslum við önnur
glæpafélög í öllum heimsálfum.
Ég veit ekki hvort ég er sam-
mála heilögum Ágústínusi sem
sagði á sínum tíma: „Hvað eru ríki
annað en stór glæpafélög, og hvað
eru glæpafélög annað en lítil ríki?“
Hann var barn síns tíma, fædd-
ur árið 354 dáinn 430. Við skul-
um vona að þjóðríkjum hafi farið
fram með tilkomu lýðræðis, jafn-
vel þótt það sé naumt skammtað.
En alla vega lít ég svo á að glæpa-
starfsemi sé krabbamein hvers
þjóðfélags, og ég trúi því að ég
sé að gera eitthvert gagn ef mér
tekst að búa til bækur sem fólk les
sér til skemmtunar – en fræðist í
leiðinni um að veröldin er miklu
hættulegri og grimmari staður en
við kærum okkur um að horfast í
augu við.
Krummi fór á
grímuball í Kvenna-
skólanum klæddur
sem sá ágæti sjó-
ræningjaskipstjóri
Jack Sparrow.
Ég er búinn að
vera hálfslappur í dag. Sennilega
vegna þessa breytta mataræðis.
Ég er einfaldlega ekki vanur því
að vera sí og æ að fá mér í gogg-
inn. Mínar matarvenjur hingað til
hafa verið svipaðar og hjá ljón-
um sem ekki nenna á veiðar nema
af og til og taka þá hressilega til
matar síns.
Setti persónulegt
met í bekkpressu
í dag. Það virðist
borga sig að gera
eins og manni er
ráðlagt og borða
fimm sinnum á dag
en ekki einu sinni
eða tvisvar.
Í kvöld var síðasti tíminn á
frönskunámskeiðinu. Þetta hefur
verið ákaflega skemmtilegt. Kenn-
arinn, Jacques Melot, er útsmog-
inn tungumálamaður og snilldar-
kennari. Ég væri svo sannarlega
til í að læra meira hjá honum.
Síðasta verkefnið var að þýða
úr frönsku smásöguna „La photo
de la classe“ sem þýðir „Bekkjar-
myndin“.
Ég var með myndavél í vasan-
um og gat smellt af bekkjarmynd
– á henni eru að vísu aðeins Frosti,
Finnbjörn, Jacques og Soffía, tveir
nemendur voru fjarverandi.
Á námskeiðinu rumskuðu gaml-
ar og rykfallnar málfræðireglur
sem ég lærði fyrir löngu í mennta-
skóla og voru orðnar stirðar af
notkunarleysi.
Á hverju kvöldi stauta ég mig
fram úr einni síðu í franskri bók
og fletti upp öllum þeim aragrúa
orða sem ég skil ekki. Tilgangur-
inn er tvíþættur, annars vegar að
ná tökum á þessu fallega tungu-
máli og hins vegar að reyna að
halda heilanum í mér í sæmilegu
formi, hann þarf á þjálfun að halda
og nám er heilsurækt heilans.
Tilgangurinn er ekki endilega
sá að vita meira í dag en í gær –
takmarkið er að vita ekki minna.
Það hlýtur að telj-
ast til stórtíðinda að
í dag var stofnað-
ur nýr stjórnmála-
flokkur, Íslands-
hreyfingin.
Þetta er fyrsti
græningjaflokk-
ur Íslands, það er að segja fyrsti
stjórnmálaflokkurinn sem setur
umhverfismál á oddinn. Aðrir
flokkar hafa efnahagsmál fyrir
sitt faðirvor en vilja gjarna bregða
yfir sig grænni kápu við hátíðleg
tækifæri og spýta sjálfkrafa út úr
sér frösum um hvað náttúran sé
dýrmæt ef einhvers staðar glittir
í hljóðnema eða fréttamann.
Það sem skilur milli venju-
legra stjórnmálaflokka er fyrst og
fremst hvort samúð þeirra liggur
hjá sauðkindinni, rúningsmannin-
um eða eiganda ullarverksmiðj-
unnar. Nú fær grasið sem sauð-
kindin kroppar loksins sinn mál-
svara á þingi.
Ég sá að Ólafur Hannibalsson,
Jakob Frímann og Bubbi Mort-
hens voru allir á fundinum hjá Ís-
landshreyfingunni eins og vitr-
ingarnir þrír við vistvæna vöggu
Frelsarans.
Kannski verða þeir allir ásamt
Margréti Sverrisdóttur og Ómari
Ragnarssyni orðnir ráðherrar í
maí. Það þætti mér mikil framför.
Það verður reyndar fróðlegt að
fylgjast með því hvernig Ómari
Ragnarssyni vegnar í pólitíkinni.
Hann er hugsjónamaður og eld-
hugi en hugsjónir á okkar efnis-
hyggju tímum hafa verið álíka
mikið í tísku og sauðskinnskór.
Reyndar hafa margir farið í pólit-
ík vel nestaðir með hugsjónir í far-
angrinum en þær hafa því miður
ekki reynst endingarbetri en sauð-
skinnsskórnir voru í gamla daga.
Ég dáist að Ómari margra hluta
vegna og vona að það sem hann
segir með hjartanu verði til þess
að verstu stóriðjufíklarnir verði
settir í afvötnun ef svo má að orði
komast, þó ekki væri nema vegna
okkar hinna, aðstandenda landsins
sem afkomendur okkar munu erfa
innpakkað í raflínur.
Hugsjónir og sauðskinnsskór
Kæra
Dagbók
Þráinn Bertelsson skrifar
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá leiðslukenndu ástandi og skipulagðri glæpastarfsemi.
Einnig er minnst á heilagan Ágústínus, Ómar Ragnarsson, Jack Sparrow, Ólaf Hannibalsson, Jakob
Frímann, Bubba Morthens, frábæran frönskukennara og matarvenjur ljóna.