Fréttablaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 35
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Björgunarsveitarbíllinn Ford Econline
350, árgerð 2004, er gífurlega öflugt
verkfæri og kemur sveitarmönnum á
Akureyri sífellt á óvart.
„Fordinn kom til okkar frá Bandaríkjun-
um síðla árs 2005 og var í breytingum hjá
pólfaranum Gunnari Egilssyni hjá Icecool
fram í ársbyrjun 2006,“ segir Gunnar Þór
Garðarsson, formaður tækjaflokks, hjá
Björgunarsveitinni Súlum á Akureyri.
Eftir breytinguna var bíllinn orðinn ná-
kvæm eftirmynd bílsins sem flutti Gunnar
Egilsson og félaga á Suðurpólinn, að frátal-
inni þriðju hásingunni.
„Bíllinn er búinn nýjustu tölvutækni
og fjarskiptabúnaði. Getur keyrt um á 46
tommu dekkjum, er með framdrif, milli-
kassa og loftpúða ásamt Xenon ljósum sem
eru margfalt öflugari en venjuleg ljós,“
segir Gunnar Þór.
Fordinn rúmar fjórtán manns og er not-
aður við fólksflutninga í ófærð, við æfing-
ar og útköll. Gunnar segir bílinn virkilega
hafa leynt á sér eftir breytingar og komið
sveitarmönnum skemmtilega á óvart.
„Hann var miklu öflugari en okkur grun-
aði. Síðasta sumar fórum við eftir endilöng-
um Vatnajökli vegna fjarskiptamála og þá
þurftum að éta ofan í okkur allar fyrri spár
um bílinn.“
Að hætti pólfara
Helgartilboð
T-Bone steik á pönnuna eða í ofninn
á aðeins 2990.- kr.kg
Grensásvegi 48 Búðarkór 1 gallerikjot.isOpið virka daga frá kl 10 -18:30 Laugardaga frá kl 11 -17
Veitufyrirtæki greiða
þriðju hæstu
meðallaun
á Íslandi
- ef horft er til átján
atvinnugreinaflokka Hagstofunnar