Fréttablaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 84
Það er mikilvægt að
vera töff. Þó ég hafi
snemma áttað mig á
þessum sannindum
hef ég aldrei náð al-
mennilegum tökum
á listgrein töffheit-
anna. Eitt stærsta skref mitt á leið
töffheitanna var að byrja að reykja.
Það var skömmu eftir að ég fermd-
ist sem ég byrjaði að dunda mér við
þessa vafasömu iðju. Margar fórnir
þurfti ég að færa fyrir hana. Fyrir
það fyrsta bjó ég úti í sveit og því fá
tækifæri sem gáfust til að hanga úti í
sjoppu eins og allar svölu stelpurnar
gerðu. Einu bæjarferðir mínar voru
verslunarleiðangrar, með móður
minni og þremur yngri systrum, og
þverflaututímar. Það varð úr að ég
byrjaði að skrópa úr blásturshljóð-
færatímunum til að æfa annan og
skaðlegri blástur í vafasömum fé-
lagsskap. Þeir tímar sem ég hafði
áður varið í að spila guðlega tónlist
fóru í að reykja og hlusta á tónlistar-
menn sem tortryggðu allt gott í ver-
öldinni.
Síðar komst ég að því að út úr
reykingarfélagsskapnum þyrfti ég
að losna hið fyrsta. Krökkunum í
hópnum þóttu nefnilega líkkistu-
naglarnir ekki duga einir sér til að
viðhalda töffheitunum. Það varð úr
að ég áttaði mig á því að ég gæti ekki
haldið í við töff þeirra. Við hópinn
sagði ég endanlega skilið á einhverju
guðsvoluðu götufylleríi í bland við
annan óþverra. Formlegur skilnaður
minn við ólifnað var eins klisjulegur
og hægt er, ég fór til afa og ömmu. Í
gestaherberginu var ritröð Laxness.
Alla nóttina las ég og fann að það var
mikið skemmtilegra en að norpa í
kuldanum með landabrúsa í hönd.
Ég sagði skilið við allt sem þessi
félagsskapur hafði upp á að bjóða.
Það eina sem ég hélt eftir var sígar-
ettupakki sem hefur verið endurnýj-
aður oftar en ég kæri mig um að hafa
tölu á.
Minninguna um hve gott var að
koma inn í hlýjuna til afa og ömmu
eftir að hafa reynt að norpa, eins og
aumingi með landabrúsa í hönd, ætti
ég að hafa í huga næst þegar ég fer
út í smók. Þó ég sé ráðsett húsmóðir
í Vesturbænum líður mér eins og úr-
hraki eða sjoppugellu á þeim stund-
um.
Ég er að hugsa
um að nota þig
sem varnarmann.
Í alvöru,
verð
ég þá á
fremst?
Nei! þú verður
varnarmaður,
þá ertu aftarlega
maður, ertu að
fylgja mér?
Ég skil
þig!
Strákarnir sem við
erum að fara að
keppa við eru nokkuð
góðir á miðjunni
þannig að í dag
leggjum við áherslu á
langa bolta!
Ætlum
við ekki
að nota
þennan
kringlótta
bolta?
Ég skil ekki
alveg ...
Ég skil, þú byrjar
á bekknum félagi!
Bekkurinn er svona
eins og í almennings-
görðum!
Yfirleitt er höfuðið á mér stútfullt
af hugsunum um allt milli himins
og jarðar. Svo mikið að ég á í
vanda með að muna þetta allt.
En svo byrja
prófin.
Ertu stressaður fyrir
morgundeginum?
Fljót á meðan ég held
honum, rotaðu hann!
Dýrabúð
Hæ! Til hamingju félagi! Nú eru bara 2.500 eftir
án heimilis!
Þú finnur lítinn
sting ... Á!
Fyrirgefðu, er
allt í lagi?
Já hafðu engar
áhyggjur, haltu
bara áfram.
Það er mjög
sjaldgæft að fá
svona viðbrögð
frá sjúklingum
þegar tekin er
blóðprufa.
Og enn sjaldgæfara
að viðbrögðin komi fá
eiginmanni sjúklingsins
Hann Hlynur
hefur alltaf
átt erfitt með
mína verki.
Er þetta
ekki að
verða
búið?
9. HVER
VINNUR
!
SMSLEIKUR
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.