Fréttablaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 104
Nú skilst mér að fjölskylduboð-in suður í Hafnarfirði logi í
rökræðum á milli stuðningsmanna
stækkunar í Straumsvík og þeirra
sem eru alfarið á móti. Sjálfur er
ég á móti þessari stækkun af alls
kyns ástæðum og þar sem ég er
jafnframt í framboði í kjördæminu
hef ég fengið minn skerf af heit-
um umræðum í heimahúsum, sem
sjálfsagt eiga eftir að færast í vöxt
á næstu dögum, því eftir viku verð-
ur kosið.
hvað mönnum kann að finn-
ast um stækkunina – en mér sýn-
ist að bæjarfélagið skiptist í tvær
nokkurn veginn jafnstórar fylking-
ar í afstöðu sinni með tilheyrandi
áhrifum á fjölskylduboð – þá mark-
ar þetta hitamál í Hafnarfirði stór-
kostleg tímamót sem mér finnast
ansi hreint merkileg og full ástæða
er til að halda á lofti: Hér er verið
að hrinda hugsjóninni um beint
íbúalýðræði í framkvæmd. Hvorki
meira né minna.
tala um svoleiðis lýð-
ræði á hátíðarstundum, en hér er
semsagt hugsjónin orðin að veru-
leika. Hafnarfjörður er eina sveit-
arfélagið á Íslandi sem hefur það
inni í samþykktum sínum að íbúar
skuli ganga til atkvæðagreiðslu um
öll stærri mál sem varða bæjarfé-
lagið. Núna kom slíkt mál inn á borð
bæjarstjórnar. Það varðar tillögu
að nýju deiliskipulagi, sem felur
í sér stækkað álver í Straumsvík.
Það er risastórt mál. Í samræmi
við samþykktina er því farið með
málið í atkvæðagreiðslu.
Íslendingar eigum að gera
meira af þessu. Í þessu tiltekna
máli – stækkun álversins – hafa
alls kyns ákvarðanir verið teknar
af landsstjórninni, á ýmsum stjórn-
sýslustigum, um leyfi og samninga
sem allar eru liðir í því að heim-
ila stækkun. Það er hins vegar
ekki fyrr en málið kemur til bæj-
arstjórnar Hafnarfjarðar að fólkið
fær rödd. Þá er það loksins spurt
álits. Ekki man ég eftir því til sam-
anburðar að allar hinar ákvarðan-
irnar hafi fengið mikla umræðu, þó
svo að mikilvægi þeirra hafi ekki
verið síðra.
er auðvitað vandmeð-
farið. Stundum vilja ýmis grund-
vallaratriði skolast til í umræð-
unni, sérstaklega þegar hiti er
kominn í hana. Til dæmis halda
sumir að atkvæðagreiðsla af þessu
tagi sé komin til vegna þess að yf-
irvaldið viti ekki sjálft hvað það
eigi að gera. Það er mikill og stór
misskilningur. Yfirvaldið spyr íbú-
ana út af ákveðinni lýðræðishug-
sjón, en ekki vegna þess að það viti
ekki sjálft hvað það vill. Yfirvald-
ið segir: „Í svona málum viljum
við að valdið sé hjá fólkinu.“ Þessi
fagra hugsjón var orðuð ágætlega
hér í eina tíð á ensku: Power to the
people.
er kosið um
skipulagstillögu. Ef íbúar segja
nei, verður – blessunarlega að
mínu mati – engin stækkun. Ef
þeir segja já, er stór áfangi tekinn
í átt að stækkun. Aðrar ákvarðanir
á þá eftir að taka, eins og um virkj-
un í Þjórsá og fleira. Ef til þess
kemur vona ég að þær fái jafnlýð-
ræðislega meðferð og þessi í Hafn-
arfirði, því málsmeðferðin þar er
bæði söguleg og til fyrirmyndar.
Straumsvík
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18.00
12.00 - 18.00
Morgunmatur
IKEA Restaurant & CaféIKEA Restaurant & Café
með graslaukssósu, kúskús
og grænmeti
frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga - laugardaga
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
Grænmetisbuff
1.990,-
BARNSLIG rúmfatasett 150x200/50x60cm, ýmsir litir
1.190,-
KORALL KRABBA
mjúkdýr L30 cm
595,-
195,-
BARNSLIG DJUR púði
43x43 cm, ýmsir litir 795,-
KORALL órói
Ø20 cm, marglitað 795,-
BARNSLIG RUND motta Ø80 cm
KORALL SKÖLDPADDA
karfa Ø35, H45 cm
GULLIVER ungbarnarúm B55xL112 cm
Rúmbotninn má hafa í tveimur
mismunandi hæðum 7.950,-
LEN ungbarnasæng B110xL125 cm 995,-
LEN koddi f/barnarúm B55xL35 cm 495,-
ATOLL himnasæng
B142xL142 cm, marglit 1.690,-
SAGOSTEN skjaldbaka
m/SAGOSTEN loftpúða
Ø71 H30 cm 2.490,-
SPÖKA náttljós
ýmsir litir 1.490,-
KORALL BLACKFISK
mjúkdýr L49 cm 595,-
BARNSLIG LEJON
mjúkdýr L20 cm 395,-
695,-
290,-
Bjart og ferskt
Tilefni til breytinga
Dagana 8. mars - 22. apríl
Ennþá til miðar í stæði
28. mars