Tíminn - 19.07.1979, Side 11

Tíminn - 19.07.1979, Side 11
ÍÞRÓTTIR Fimmtudagur 19. júlf 1979. ÍÞRÓTTIR 11 SÍMON ... borinn af leikvelli I gærkvöldi. (Timamynd Tryggvi) Símon frá keppni... — meiddist ilia I gærkvöldi Simon Kristjánsson, bak- vörður Framliösins, varð fyrir þvi óhappi i byrjun leiks Fram og Breiðabliks, að hann fékk slæmt spark i læriö. Það blæddi inn á vöðva og verður Simon frá keppni í 4-5 vikur. Það er mikil blóðtaka fyrir Fram, þvi að Simon hefur átt góða leiki með liðinu i sumar. ,Ævintýramark’ Matthías- ar á elleftu stundu... —■ tryggöi bikarmeisturum Akraness sigur 1:0 yfir Keflvíkingum i gærkvöldi M ATTHtAS HALLGRtMS- SON...skoraöi þýðingarmikið mark. Matthias Hallgrimsson var hetja bikarmeistara Akraness þegar þeir unnu sigur (1:0) yfir Keflvikingum á Akranesi I gær- kvöldi I 8-liða úrslitum bikar- keppninnar. Matthias, sem kom inn á, sem varamaður, tryggði Skagamönnum sigurinn á siðustu sek. leiksins og var svo sannar- lega heppnisstimpill á markinu. Matthias brunaði upp völlinn og léká tvo Keflvlkinga — Þorsteinn Ólafsson kom Ut á móti honum og engin hætta virtist vera á ferö- inni. Matthias náði að vippa knettinum yfir Þorstein og siðan skoppaði knötturinn aö marki Keflvikinga — þrir varnarmenn Keflvíkingar stóðu við marklfn- una, en öllum til undrunar skopp- aði knötturinnfram hjá þeim og i netið. Þetta var sannkallað „ævintýramark.” Leiðindaveður var meðan leik- urinn fór fram — rigning og gjóla, og setti veðrið sinn svip á leikinn. Leikurinn fór mjög hægt af stað ogfóruleikmenn sérað engu óðs- lega. Skagamenn sóttu þó mun meira, án þess að skapa sér virki- leg marktækifæri. Fyrsta skot að marki kom á 32. min. og átti Sveinbjörn Hákonarson það, en Þorsteinn ólafsson varöi fyrir- hafnarlltið, Keflvikingar léku varnarleik með skyndisóknum. Rétt fyrir leikshlé átti Guðjón Þóröarson skot að marki Kefl- vikinga — Þorsteinn varði, en hann missti knöttinn aftur fyrir sig, Áöur ai knötturinn komst yfir marklinu, náði Þorsteinn aö kasta sér og bjarga meistaralega. Keflvikingar komu ákveðnir til leiks i' seinni hálfleik — þeir börð- ust og sóttu stift að marki Skaga- manna. A 58. min kom besta marktækifæri leiksins — Ólafur JUliusson átti þá góða fyrirgjöf fyrir markheimamanna, þar sem Steinar Jóhannsson, sem lék aö nýju með Keflvikingum, skallaði að marki, en Jón Þorbjörnsson náði að verja glæsilega. Stuttu siöar átti Kári Gunn- laugsson gott skot að marki Skagamanna, en knötturinn fór réttyfir þverslá.Á 71. min. komst Steinar aftur i dauðafæri, en skot hans fór rétt fram hjá stöng. Matthias Hallgrimsson kom inn á á 78. min. og hleypti hann miklu lifi i leik Skagamanna. Svein- björn átti skot, sem fór rétt fram hjá stöng Keflavikurmarksins á 89. min.ogslðanskoraöi Matthias sigurmark Skagamanna, eins og fyrr segir. Jón Alfreðsson var besti maður Skagamanna — baröist mjög vel og var alltaf á ferðinni. Þá var Sigurður Halldórsson mjög góður i vörninni. Steinar Jóhannsson átti góöan leik hjá Keflvikingum og skapað- ist alltaf mikill usli I vörn Skaga- manna, þegar hann fékk knöttinn Óskar Færseth var mjög góður i vörninni og hann tók virkan þátt i sóknarleiknum. Þá var Þorsteinn Ólafeson traustur aö vanda I markinu. — SE/ - SO Valur mætír KR — í Laugardalnum I kvöld — þegar Þróttarar unnu stórsigur 13:2 i Færeyjum Halldór Arason skoraði 4 mörk fyrir Þrótt, þegar Reykjavikur- liðið vann stórsigur 13:2 yfir Fær- eyjaliðinu Royn, sem Guðmundur Gislason, fyrrum fyrirliði Þrótt- ar, þjálfar I Færeyjum. Páll Ólafsson (2), Ársæll Kristjáns- son, Arnar Friðriksson, Sverrir Brynjólfsson, Þórður Theódórs- son, Ágúst Hauksson og Dáði Harðarson, skoruðu hin mörk Þróttar, sem er nú á keppnisferð um Færeyjar. „Anægður með sigur- inn gegn Blikunum... - þeir eru með skemmtilegt lið,” sagði Ásgeir Elíasson, fyrirliði Fram, sem vann Breiðabiik 3:1 i bikarkeppninni — Ég er mjög ánægður með sigurinn yfir Blik- unum> sem eru mjög skemmtilegt lið — baráttu- lið/ sem leikur góða knatt- spyrnu# sagði Ásgeir Elías- son/ fyrirliði Fram/ sem vann góðan sigur (3:1) yf ir Breiðabliki og tryggðu sér þar með rétt til að leika í undanúrslitum bikar- keppninnar. — Ég var ánægður með leik okkar miðað við aðstæður, en það er alltaf erfitt að leika á blautum velli/ sagði Ásgeir. Guðmundur Steinsson kom Fram á bragðið á 12. min. með þvi að skora glæsilegt skalla- mark. Guðmundur átti þá send- ingu út á kant til Hafþórs Svein jónssonar, sem gaf knöttinn siðan vel fyrir mark Breiðabliks, þar sem Guðmundur var kominn og skallaði knöttínn örugglega i netið. Guðmundur var sfðan aftur á ferðinni á 25 min., en þá skoraði hann aftur með skalla, eftir horn- spyrnu. Pétur Ormslev tók horn- spyrnuna og sendi knöttinn fyrir mark Blikanna, þar sem Marteinn Geirsson skallaði til Gunnars Bjarnasonar, sem skallaði siðan áfram til Guðmundar, sem skoraði með skemmtilegum skalla. Guðmundur átti allan heiðurinn af þriðja marki Framara, sem Baldvin Eliasson (áður KR) skoraði á 53 min. Guömundur, sem var þá sjálfur i mjög góðu skotfæri, sendi knöttinn til Baldvins, sem skoraði með föstu skoti. Eftir markið slökuðu Framarar á og Blikarnir komu þá meira ínn I myndina og náðu mörgum skemmtilegum sóknarlotum. Þeir náðu að skora á 61 mln. og var það mark skoraðieftir rang stöðu. Sigurður Halldórsson komst Inn i sendingu Gunnars Bjarnasonar, miðvarðar Fram, til Guðmundar Baldurssonar, markvarðar — lék með knöttinn fram og til Siguðar Grétarssonar, sem var rangstæður — hann skor- aði örugglega i mannlaust mark Framara— 3:1. Stuttu siðar fer Hreiðar Breið- fjörð illa að raði sinu fyrir framan mark Fram, en þá skaut hann fram hjá I dauöafæri. Undir lok leiksins fara Framarar aftur að sækja i sig veðrið og þá sköp uðu þeir sér mörg mjög góð marktækifæri, sem þeir náðu ekki að nýta. Tveir leikmenn voru bókaðir — þeir Trausti Haraldsson (Fram) og Helgi Helgason (Breiðabliki). — SOS Valsmenn mæta KR-ingum i 8-liða úrslitum bikarkeppninnar i knattspyrnu á Laugardalsvellin- um íkvöldkl. 20.00. Það má búast við fjörugum og skemmtilegum leik. Eyjamenn og Þróttarar leika á mánudaginn kemur — siðasta leikinn i 8-liða úrslitunum. (GUÐMUNDUR STEINS- SON...skoraði 2 mörk fyrir Fram og lagði það þriðja upp. (Tímamynd Tryggvi) Jóhannes tíl Winterslag? sem er 1. deildarlið i Belgiu i. Belgiska 1. deildarliðið WINTERSLAG hefur áhuga á að fá Jóhannes Eðvaidsson I sinar raðir. Tlminn hefur frétt eftir áreiðanlegum heimildum, að Robert Waisseige, þjálfari Winterslag hafi veriðað spyrja um Jóhannes. Waisseige þessi var þjálfari hjá félaginu fyrir nokkrum ár- um, en gerðist siðan þjálfari hjá Standard Liege, en var látinn fara þaðan, þegar Happell var ráðinn. Hann fór þá aftur til Winterslag, sem vann sér sæti I belglsku 1. deildarkeppninni 1976. Winterslag hafnaöi I ell- efta sæti af átján sl. vetur I belgisku 1. deildarkeppninni. Hvort Jóhannes fer til Belglu er enn ekki vitaö þvi að Winter- slag hefur ekki haft samband við Celtic. — SOS .1 HALLDÓR SK0RAÐ 1 4 MÖRK k

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.