Tíminn - 15.08.1979, Síða 2
2
! !1
Miövikudagur 15. ágúst 1979
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtak fyrir gjald-
föllnum og ógreiddum þinggjöldum ársins
1979 álögðum i Kópavogskaupstað, en þau
eru: tekjuskattur, eignaskattur, kirkju-
gjald, slysatryggingagjald v/heimilis-
starfa, iðnaðargjald, slysatryggingagjald
atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr.
67/1971, lifeyristryggingagjald skv. 9. gr.
laga nr. 11/1975, atvinnuleysistryggingar-
gjald, almennur og sérstakur launaskatt-
ur, kirkjugarðsgjald, iðnlánasjóðsgjald og
sjúkratryggingagjald. Ennfremur fyrir
skipaskoðunargjaldi, lestargjaldi og vita-
gjaldi, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bif-
reiða og slysatryggingjagjaldi ökumanna
1979, vélaeftirlitsgjaldi, áföllnum og
ógreiddum skemmtanaskatti og miða-
gjaldi, söluskatti af skemmtunum, vöru-
gjaldi af innl. framl. sbr. 1.65/1975, gjöld-
um af innlendum tollvörutegundum, mat-
vælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktar-
sjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbygg-
ingum, söluskatti, sem i eindaga er fall-
inn, svo og fyrir viðbótar og aukaálagn-
ingum söluskatts vegna fyrri timabila.
Verða lögtök látin fara fram án frekari
fyrirvara á kostnað gjaldenda en ábyrgð
rikissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu
úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki ver-
ið gerð.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
10. ágúst 1979.
Frá Fjölbrautarskólanum
á Akranesi
Skólinn óskar eftir upplýsingum um
hugsanlegar leiguibúðir fyrir kennara
næsta vetur.
Þá vill skólinn kanna hvaða ibúðaeigend-
ur vilja leigja nemendum herbergi á
hausti komanda. Upplýsingar eru veittar
á skrifstofu skólans simi 93-2544.
Skólameistari.
Tæknifraeðingur
Iðnaðardeild Sambandsins, Akureyri ósk-
ar að ráða tæknifræðing hið fyrsta.
Reynsla i sambandi við vinnurannsóknir
og launakerfi æskileg.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri i
sima 96-21900.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
lönaóardeild-Akureyri
Óskilahestur
1 Stafholtstungnahreppi er i óskilum jarð-
skjóttur hestur, sennilega 4ra—6 vetra.
Mark blaðstift framan hægra og sneitt aft-
an vinstra.
Hreppstjóri.
Laus staða
Staða skattendurskoðanda á Skattstofu Suðurlandsum-
dæmis, Hellu, er laus til umsóknar.
Umsóknir, er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf, þurfa
aö berast skattstjóra Suðurlandsumdæmis, fyrir 12. sept.
n.k.
Fjármálaráðuneytið, 13. ágúst 1979.
Þaö vakti mikla athygli þegar stórfyrirtækið Chrysler leitaði nú fyrir nokkru á náðir stjórnvalda vegna
þeirra rekstrarerfiðleika sem þetta fyrirtæki á við aö striða. Teiknarinn sá ekki betur en þessi auð-
hringur væri kominn i röðina hjá Tryggingastofnuninni að leita sér ásjár og bóta, ásamt öðrum miður
virðulegum umsækjendum. Nú geta fjármálamennirnir þó hrósaö þvl láni að þurfa ekki að fara á sveit-
ina þvi að helstu keppinautar þeirra hafa heitið þeim góðri aðstoð.
General Motors hleypur undir bagga með Chrysler:
/ *
SÆKJAST SER UM LIKIR
Detroit/ Reuter — í Detroit, höfuðborg bflaiðnaðarins, þóttu það óvænt tlðindi I gær, að Chrysler sam-
steypan hlaut hjálp úr óliklegustu átt, en samsteypan hefur barist viö mikil f járhagsvandræði að undan-
förnu.
Fjárhagsaðstoðin kemur frá helsta keppinaut Chrysler samsteypunnar, en þaö er General Motors
samsteypan.
General Motors er sem kunnugt
er stærsti bilaframleiðandi
Bandarikjanna, en Chrysler
þriðji stærsti. Nú hefur sam-
steypa þessi fallist á að veita
keppinaut sinum, Chrysler, að-
stoð, sem nemur allt að 230 mill-
jónum Bandarikjadala. Fer að-
stoðin fram á þann hátt, að Gene-
ral Motors kaupa til sin óinn-
heimtar kröfur, sem fjármögnun-
arfyrirtæki Chryslers liggur með
á hendur öðrum.
öll helstu bilaframleiðslufyrir-
tæki Bandarikjanna reka slik
fjármögnunar- og lánafyrirtæki,
en starfsemi þeirra felst i þvi að
lána kaupendum til skamms
tima, jafnt einstaklingum sem
sjálfstæðum bflasölum.
Chrysler samsteypan stendur
frammi fyrir þvi að mikill halli
hefur orðið á rekstrinum og sala
hefur minnkað verulega. Eru all-
ir skálar fyrirtækisins fullir af ó-
seldum bifreiðum.
Að undanförnu hefur samsteyp-
an þvi beitt öllum áhrifum sem
hún má til þess að fá Bandarikja-
þing til þess að ábyrgjast með
rikisábyrgð lán aö upphæö 750
milljónir Bandarikjadala.
Þegar fulltrúar General Motors
voru spurðir um greiðvikni þeirra
og örlæti sögðu þeir, að þeir hefðu
áður veitt bilaframleiðslufyrir-
tækjum svipaða aðstoð i tima-
bundnum erfiðleikum.
Andrew Young fær á baukinn:
Fær ákúrur
fyrir viðræður við Palestínumann
1 gær sá Cyrus Vance utanrlkis-
ráðherra sig til þess knúinn að
veita sendiherranum hjá Sam-
einuðu þjóðunum ákúrur fyrir
einkaviðræður við fulltrúa
Palestinumanna.
Washington/Reuter — Cyrus
Vance, utanrikisráöherra Banda-
rlkjanna, veitti I gær Andrew
Young, sendiherra Bandarikj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum,
ákúrur fyrir að hafa átt i leyfis-
leysi viöræður við fulltrúa
Frelsissamtaka Palestinumanna.
Þær einkaviðræður sendiherrans
áttu sér stað I New York i siðasta
mánuði.
Áminning utanrikisráöherrans
kom I framhaldi af opinberum
mótmælum Israelsstjórnar af
þessu sama tilefni. Andrew
Young varð þannig enn einu sinni
miðdepillinn i hörðum pólitiskum
deilum, en honum hefur veriö
einkar sýnt um að vekja uppþot
með ummælum sinum og atferöi I
starfi.
Sendiherrann hefur gefið þá
skýringu á viðræðunum að þær
hafi átt sér stað af tilviljun og
engin alþjóðamál hafi borið á
góma. ísraelsstjórn heldur þvi
hins vegar fram að sannast hafi
að „viss atriði” hafi verið rædd
sem snerta réttindi Palestinu-
manna innan Israélsrikis.
GANGAN MIKLA
virðist að engu orðin
Dacca/Reuter — Svo virtist I gær sem öflugur lögregluvörður á landa-
mærum Bangladesh og Indlands hefði komið i veg fyrir hina boðuð
göngu 50 þúsunda Pakistana yfir þvert Indland, frá Bangladesh til
heimalands þeirra Pakistan.
Þetta fólk lokaðist inni i Bangla-
desh þegar Pakistanriki klofnaði
og sjálfstætt riki var stofnað I
austurhluta þess. Æ siðan, eða frá
1971, hefur þetta fólk lifað við sult
og seyru i Bangladesh og hefur
mátt sæta hvers kyns þreng-
ingum.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar er það talið hugsanlegt
að göngunni hafi veriö frestaö eða
horfið frá henni með öllu þar sem
allir helstu leiðtogar fólksins hafa
verið hnepptir I fangelsi á undan
förnum dögum. Eftir
fangelsanirnar urðu uppþot við
lögreglustöðvar þar sem meira
en fimmtiu manns meiddust og
122 voru handteknir. Yfirvöld i
Bangladesh hafa lýst yfir þvi aö
allir hinir handteknu veröi
dregnir fyrir rétt fyrir óspektir.
Hin opinbera fréttastofa
Bangladesh sagði I gær að fólkið,
sem safnast hafði viö landamær-
in, væri tekið að snúa aftur til
búða sinna.
Indversk yfirvöld hafa einnig
haft mikinn viðbúnað vegna
hinnar fyrirhuguöu göngu, sem er
örþrifaráð Pakistananna, en þeir
sjá sina sæng útbreidda ef engin
breyting verður til hins betra á
högum þeirra.
Klofningi Pakistanrikis árið
1971 fylgdu miklar óeiröir og
sættu Pakistanar I Bangladesh
miklum árásum og hafa slöan
lifað sem flóttamenn eöa land-
leysingjar I búðum sem hrófað
var upp.
Milli Bangladesh og Pakistans
er óravegur yfir Indland sem
reyndar verður fremur kallað
heimsálfa en þjóðriki. Hefur þaö
verið talið lýsa örvæntingu fólks-
ins að það skuli geta hugsað sér
þær hörmungar sem slikri göngu
mundu fylgja yfir mjög óvinveitt
land, en Indverjar eru sem kunn-"
ugt er litlir vinir Pakistana.
Persía:
Mótmæli
alþjóöastofu
London/ Reuter — Alþjóðlega
fréttastofan IPI mótmælti þvi i
gær að yfirvöld i Persiu væru að
brjóta niður fréttafrelsi I landinu,
einkum að þvi er lýtur að þeim
takmörkunum sem nýsett lög i
Persiu setja erlendum frétta-
mönnum.
Að mati fréttastofunnar fela
lögin i sér brot á mannréttindum
almennt og hindrun við ritfrelsi
og fréttafrelsi sérstaklega.
I mómælaorðsendingu sem
fréttastofan sendi forsætisráð-
herra Persiu I gær kemur fram að
aðilar IPI, sem eru meira en tvær
þúsundir fjölmiðla i mörgum
löndum, minnast þess ekki að svo
harkalegar takmarkanir hafi
verið settar við fréttafrelsi fyrr.
Sérstaklega tók fréttastofan
það fram að hún heföi orðiö fyrir
miklum vonbrigðum yfir þvi að
stjórnvöld I Persiu hafa þannig
tekið undir orð og æði öfgamanna
I landinu.
erlendar fréttir - erlendar fréttir - erlendar fréttir - erlendar fréttir