Tíminn - 15.08.1979, Qupperneq 13
Miðvikudagur 15. ágúst 1979
Fornsagnaþing
IMunchen
150 fræði-
menn fjölluðu
um ísl.
fornsögur
Dagana 30. júlitil 4. ágúst komu
fræðimenn viða Ur heimi saman í
Munchen til ráðstefnu um is-
lenskar fornsögur. Fyrir ráð-
stefnunni stóð Institut fur nord-
ische Philologie der Universitat
Munchen. Fundinn sóttu um 150
fræðimenn frá ýmsum löndum
Evrópu og Bandarikjunum og
Kanada. Þetta var fyrsta forn-
sagnaþingið i Þýskalandi. Hið
fyrsta var haldið i Edinborg 1971,
annað i Reykjavik 1973, og hið
þriðja i Osló 1976. I lok þessa
þings var ákveðið að næsta þing
skyldi vera i Kaupmannahöfn.
Að þessu sinni hafði verið
ákveðið að höfuðumræðuefnið
skyldi vera fornaldarsögur, en
ekki var fast við það bundið, og
komu bæði Islendingasögur og
konungasögurtilumræðu, og auk
þess riddarasögur.
Alls voru fluttir 30 fyrirlestrar
um margvisleg vandamál is-
lenskra fornbókmennta, t.d. um
„sannleika” i fornsögum, um efni
týndra fornsagna samkvæmt
öðrum heimildum, um kveðskap i
fornaldarsögum, um hugsanleg-
an boðskap vissra fornsagna, og
þá var að þessu sinni eins og á
fyrriþingum margrættum tengsl
islenskra fornsagna og evrópskra
samtima bókmennta og um
leið um menningartengsl
Skandinaviu og Islands annars
vegar og meginlands Evrópu
hinsvegar.
Umræður fóru einkum fram á
ensku og þýsku. Þeir sem tóku
þátt i ráðstefnunni höfðu
nokkrum vikum fyrr fengiö
fyrirlestra senda fjölritaða og
höfðu þannig átt þess kost að
kynna sér efni þeirra og búa sig
undir umræður.
A siðari helmingi nitjándu ald-
ar og á öndverðri hinni tuttugustu
áttu Þjóðverjar marga ágæta vis-
indamenn á þessu sviði. Meðal
þeirra var Konrad Maurer, sem
kunnur er á tslandi fýrir sam-
vinnu sina við Jón Arnason og ó-
metanlegan stuðning við þjóð-
sagnaútgáfu hans* Á dögum
Þriðja rikisins voru norræn fræði
misnotuð i áróðursskyni. En eftir
að heimstyrjöldinni lauk hafa á
ný hafist visindalegar rannsóknir
i Þýskalandi á norrænum forn-
bókmenntum og eiga Þjóðverjar
hina merkustu fræðimenn i þess-
um efnum.
Allur undirbúningur þingsins
var með ágætum og skipulag til
fyrirmyndar. Visindafélagið
þýska, fririkiö Bayern, Munc-
henarborg, háskólinn i Munchen
og ýmsir aðrir höfðu veitt ráð-
stefnunni fjárstyrk. Eins og áður
segir var það Institut fur
Nordische Philologie i háskól-
anum i Munchen sem stóð fyrir
fornsagagnaþinginu. Forstöðu-
maður þeirrar stofnunar er próf.
Kurt Schier, sem hefur haldið
fyrirlestra hér heima og mörgum
tslendingum er að góðu kunnur,
og annaðist hann ásamt öðru
starfsfólki sofnunarinnar allan
undirbúning ráðstefnunar. Meðal
starfsmannamánefna dr. Hubert
Seelow sem hefur ásamt konu
sinni Kolbrúnu Haraldsdóttur
innt af höndum mikið starf til að
ráðstefnan gæti tekist sem best,
og veittu þau hjónin islensku ráð-
stefnugestunum frábærar viðtök-
/ .. "V
A uglýsið
í Tímanum
^mmmmmmmmmmmmmmmmmmm^
starfsmaður óskast
Samband grunnskólakennara og Land-
samband grunnskóla- og framhaldsskóla-
kennara óska eftir að ráða starfsmann í
hálft starf.
Umsóknir sendist SGK-LGF, pósthólf 616,
121 Reykjavik fyrir 20. þ.m.
Rauðblesóttur hestur
mark blaðstift aftan vinstra.
Ungur hestur er i óskilum i Nýjabæ, Sand-
vikurhreppi. Verður seldur að tveim vik-
um liðnum, gefi eigandinn sig ekki fram.
Hreppstjóri Sandvikurhrepps.
TOPPURINN
í litsjónvarpstœkjum
SJÓNVARPSBÚÐIN
BORGARTÚNI 18 REYKJAVIK SÍMI 27099
13
Fjármálaráðuneytið,
1. ágúst 1979
Sendimaður óskast til starfa allan daginn fyrir fjármála-,
félagsmála- og dómsmálaráðuneyti.
Æskilegt er að hann hafi réttindi til aksturs létts bifhjóls.
Lágmarksaldur 15 ára.
Skriflegar umsóknir sendist fjármálaráðuneyti fyrir 20.
ágúst n.k.
Vitavörður Hornbjargsvita
óskar að ráða konu sem aðstoðarvitavörð.
Má hafa með sér 1-2 börn.
Upplýsingar á Vitamálaskrifstofunni,
Seljavegi 32.
Uppboð
Vegna slita á sameign verða jarðirnar
Litli-Kálfalækur, Hraunhreppi og 1/2 jörð-
in Hvalseyjar, Hraunhreppi, seldar á
uppboði, sem hefst á sýsluskrifstofunni,
Borgarbraut 61, Borgarnesi, laugardag-
inn 18. ág. 1979 kl. 14.
Uppboðshaldarinn i Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu.
Eg hélt, að við gætum bjargað
björnunum, ef við héldum
þeim i einum hóp,
þetta verk verður æ erfiðara.