Tíminn - 23.09.1979, Qupperneq 21
Sunnudagur 23. september 1979
21
Chicago - 13
/Steinar
★ ★ ★ ★ ■+■
Talan 13 ætlar aö reynast
hljómsveitinni Chicago hin
mesta happatala, þvi aö nýlega
sendi hljómsveitin frá sér sina
13. plötu á rúmlega 11 ára ferli
og best gæti ég trúaö þvi aö
þessi plata væri sá besta sem
hljómsveitin hefur sent frá sér.
Meölimir Chicago viröast nú
vera komnir yfir þaö mikla
áfall, sem hljómsveitin varö
fyrir á siöasta ári, er gitarleik-
arinn Terry Kath lést á voveif-
legan hátt og nýi maöurinn
Donnie Dacus, sem m.a. hefur
leikiö meö Stephen Stills viröist
falla einstaklega vel inn í heild-
ina.
A plötunni „Chicago 13” eru
10 lög, öll eftir hljómsveitar-
meölimi ogmá segjaaö þetta sé
i fyrsta skipti sem hljómsveitin
hættir sér eitthvað af marki út
fyrir gamla Chicago-stilinn.
Platan er rökrétt framhald af
plötunni „Hot Streets”, en
breiddin er þó miklu meiri aö
þessusinni. A „Chicago 13” eru
áhrif úr öllum áttum og
sterkustu áhrifavaldarnir eru
tvimælalaust „latin rock” tón-
list í anda manna eins og t.a.m.
Sergio Mendes og létt „Jazz
rock”, eins og gefur t.d. aö
heyra á siöustu plötum Edgar
Winter group. Þaö er einn
stærsti kosturinn viö þessa
plötu, aö nú i fyrsta sinn fá blás-
ararnir aö leika lausum hala og
ein bestu lög plötunnar eru
einmitt samin af þeim. bá er
þaö athyglisvert, aö Chicago
viröist aö sumu leyti vera komin
nokkuð inn á svipaöa tónlistar-
linu og Billy Joel og hliðstæö-
urnar meö þessari plötu og
nýjustu plötu Joel eru margar.
Þó aö á þessariplötu sé slegiö
á ýmsa nýja strengi er gamla
Chicago-,,sándiö” þó ekki alveg
látið fyrir róöa, en Robert
Lamm viröist þó sá eini i hljóm-
sveitinni sem bundinn er af þvi.
Söngurinn á þessari plötu er
sérkapituli út af fyrir sig og
bágt á ég með að tnla að
margar hljómsveitir hafi á aö
skipa jafn mörgum góöum
söngvurum og einmitt Chicago.
Bestu lög þessarar plötu eru
mörg, en ef ég ætti aö nefna ein-
hver sérstök, þá koma fyrst upp
1 hugann „Street Player”, „Life
is what it is”, „Aloha Mama”,
og „Loser with a broken heart”
— og þannig er platanyfirfuD af
góöum lögum.
—ESE
Ellen Foley
- Nightout
/Steinar
★ ★ ★ ★
Hún heitir Ellen Foley og þó
hún sé mjó eins og býantur, þá
er röddin kraftmikil eins og átta
strokka Ford vél og jafnvel
Guörún A. gæti verið fullsæmd
af henni. — En hver er svo þessi
Ellen Foley? Fuiltrúar Epic
hljómplötuútgáfunnar halda þvl
fram aö rödd Eilen Foley sé ein
best þekkta röddin I rokkinu I
dag, en hún vann sér þaö meöal
annars til frægöar aö syngja
meö Meatloaf á metsöluplötunni
„Bat out of hell”.
Ellen Foley á sem sagt heiö-
urinn af kvenmannsröddinni i
lögunum „Paradise by the dash
board light” og „You took the
words right out of my mouth”
og þeir sem heyrt hafa þau lög
skilja því vafalaust af hverju
Ellen Foley er upprennandi
stjarna i dag.
Forráöamenn Epic voru held-
ur ekki seinir á sér eftir gerö
„Bat out of hell” og skömmu
siöar undirritaöi Ellen Foley
samning viö fyrirtækiö. Arang-
ur þessa samstarfs er nú kom-
inn i ljós, þvi nýlega sendi Ellen
Foley frá sér sina fyrstu plötu,
„Nightout” og veröur ekki ann-
aö sagt en aö sú plata lofi góöu.
Á plötunni eru 9 lög, flest kraft-
mikil rokklög, og meöal höfunda
eru ekki ófrægari aöilar en Roll-
ing Stones, og Graham Parker.
Upptökustjórná plötunni var i
höndum Ian Hunter og Mick
Ronson, sem báöir eru löngu
þekktir fyrir störf sin meö
David Bowie og Mott the Hopple
— og er greinilegt að þeir hafa
unniö gott verk. Allar útsetning-
ar eru til fyrirmyndar og ekki er
hljóöfæraleikurinn siöri. Mick
Ronson á heiöurinn af gitar-
leiknum, en i öörum hlutverkum
eru margir af bestu „session”
mönnum New York borgar.
Ekki þarf aö fara mörgum orö-
um um söng Ellen Foley, þvi aö
hún hefur allt það sem góöa
söngkonu þarf aö prýöa, og ekki
er ótrúlegt aö stjarna hennar
eigi eftir aö fara hækkandi á
ókomnum árum.
—ESE
Megas - Drög
að sjálfsmorði
/Iðunn
★ ★ ★ ★ ★
Siðast liðinn vetur voru
haldnir I hátlðarsal Mennta-
skólans við Hamrahlið, tvennir
hljómleikar, sem báðir verða að
teljast með þeim betri sem
islenskir listamenn hafa staðið
fyrir, fyrr og siðar. Flytjendur
á þessum frábæru hljómleikum
sem voru hljóðritaðir um leið,
voru Megas og sjálfsmorös-
sveitin og „verkið” sem hópur-
inn flutti var „Drög að sjálfs-
morði” eftir Megas.
Nú rúmum 10 mánuöum eftir
hljómleikana hefur „sjálfs-
moröiö” veriö framiö á ný, þvi
aö i siöustu viku kom út hjá Iö-
unni hljómplatan „Drög aö
sjálfsmorði”, afrakstur titt-
nefndra hljómleika. Eins og áö-
ur greinir varplatan hijóörituö á
tvennum hljómleikum og munu
þeir seinni vera uppistaöa þess-
arar plötu. Undirritaöur var
þeirrar gæfu aönjótandi aö vera
meöal hljómleikagesta á um-
ræddum hljómleikum og eftir
aö hafa hlýtt á plötuna er óhætt
að fullyröa aö hún er eins og
þeir — hreint frábær.
Þetta lýsingarorö á aö visu
einungis um efniö á plötunni,
hljóöfæraleikinn, sönginn og
kynningarnar, en „sándiö”
veröur aö teljast I öörum og
lægri gæöaflokki. „Sándiö” er
þó aldrei lélegt, en það er hrátt
og vel má vera ab þaö gefi plöt-
unni einungis sterkari svip, ef
allt er skoöaö.
Ekki veröur hér farið út i
smáatriöi hvaö varðar tónlist
Megasar. Hljóöfæraleikurinn
og „söngur” eru til fyrirmynd-
ar, en einhvern veginn er þaö nú
þannig aö annaö hvort „filar”
fólk Megas eba ekki. — Þaö er
ekkert til þar á milli.
Um textana væri vafalaust
hægt aö skrifa heila bók, en þaö
skal þó látið bókmenntagagn-
rýnendum eftir. Þetta er annars
allt saman skotheldur skáld-
skapur og þaö er bjargföst
skoöun undirritaös aö Megas sé
eitt mesta Ijóöskáld Isienöinga
siöan Steinn Steinarr var og
hét. 1 laginu „Frægur sigur”
segir Megas m.a.:
Niörúr infrarauöum himni
hangir slýgræn sól/ I heiöbláum
og seigfljótandi tvinna/ en minn
litur hann er grár og tala tvisv-
ar núll/ og aöeins timinn einn
veit hvar mig mun aö finna
ef aðeins viddunum fækkaöi I
tvær þá mynd’ég vera óhultur/
þvi aö viöáttan er flatneskjan er
húmiö/ en sjá þar stendur
timinn grafkyrr og hann glottir
kalt/ og ég get þvi ekkert flúib
nema i rúmiö
Ég er orfeus rafmagnsbassisti i
innheimum/ meöan evridis
ræktar I útheimum steina/ og
þeir morfeus og bræöur sviku
samninginn/ og nú sit ég hér og
plokka/ allt eins og blómstriö
eina....
Þó af nógu sé aö taka hvaö
skáldskap Megasar varöar,
verður hér staðar numiö, en
heyrn er sögu rikari.
Kinks
- Low Budget
Fálkinn
★ ★ ★ ★
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Kinksaðdáendur eru og
hafa alltaf verið „sértrúarsöfn-
uður” þegar popptónlist er ann-
ars vegar. ,Ahrif Kinks á popp-
tónlist samtimans hafa heldur
ekki veriö neitt smáræði og trú-
lega hafa fáir menn haft meiri
áhrif á þessa tegund tónlistar á
siðari árum, en einmitt Ray
Davies, höfuðpaur Kinks.
Áhrif Kinks og Davies hafa
verið marglungin og
margþætt, en mest held ég þó aö
muni um textageröina, en sem
textahöfundur hefur Davies
borið höfuð og heröar yfir aöra
samferöarmenn sina innan
poppsins. Þjóöfélagsleg gagn-
rýni I léttari tegund popptónlist-
ar var nær óþekkt fyrir daga
Ray Davies, en fyrir hans at-
beina og annarra frumherja er
poppiö nú oröiö einn mesti
áróöursmiöill sem völ er á. 1
þessu sambandi nægir t.a.m. aö
nefna hlut Tom Robinson, sem
er og hefur veriö einn dyggasti
„lærisveinn” Davies, en Robin-
son hefur miskunnarlaust notaö
poppið til þess aö berjast fyrir
hagsmunum undirokaöra þjóö-
félagshópa I Bretlandi.
A „Low Budget” nýjustu
plötu Kinks er þjóöfélags-
ádeilan e.t.v. ekki eins nöpur
og oft áöur, en Davies kemur þó
viða viö. Meðal þess sem er i
brennidepli á plötunni er t.d.
oliuveröið, menningarsjúk-
dómarnir, þjóöarstoltiö og siö-
ast en ekki sist maðurinn sjálfur
og umhverfi hans.
„Low Budget” er plata sem á
erindi til allra, en ekki er vist aö
allir séu reiöubúnir til þess aö
veita henni viötöku. Kinksaödá-
endur ættu þó aö vera ánægöir.
þvi hver Kinks plata I þeirra
augum jafnast a.m.k. á viö Litlu
jólin.
— ESE
Queen
- Live Killers
/Fálkinn
★ ★ ★ +
Óþarft ættí að vera aö kynna
bresku hljómsveitina Queen
fyrir islenskum rokkáhuga-
mönnum, þvi að allt frá þvl að
hljómplatan „Night at the
Opera” kom út hefur Queen
verið I fremstu röð.
Nýlega sendi hljómsveitin frá
sér tvöfalda hljómleikaplötu,
sem heitir „Queen - Live - Kill-
ers” og má segja aö á plötunni
sé að finna öll bestu lög hljóm-
sveitarinnar. Alls eruá plötunni
20 lög, þ.a.m. „Let Me Enter-
tain You”, „Killer Queen”,
„Bicycle Race”, ,3ohemian
Rhapsody” og „We Will Rock
You/Wearethe Champions” og
fóru hljóöritanir fram á
Evrópuferðalagi hljómsveitar-
innar s.l. vetur.
Eins og sést á upptalningunni
hér aö framan eru á þessari
plötu valin lög og þrátt fyrir þá
staöreynd, aö Queen hefur
hrakaö nokkuö aö undanförnu,
þá stendur hún vel fyrir sinu.
Sem sagt góöur bautasteinn um
hljómsveitina sem einu sinni
var nefnd, meö sanni, besta og
vandaöasta rokkhljómsveit ver-
aldar. -ESE
SPARID
I ORKUNA I
i
i
n n h x
rafmagnsofnarnir nýta tvímælalaust orkuna betur en flestir
aörir hitagjafar, þar sem um beina hitun er aö ræöa.
Elektróniskur hitastillir (termostat) stjórar hárnákvæmt réttu
hitastigi.
Yfir 20 mismunandi stæröir á lager.
3ja ára ábyrgö — áratuga reynsla hérlendis.
Fullnægja öllum reglum Raffangaprófunar Rafmagnsv. ríkisins.
Islenskur leiðarvísir.
Þægilegur hiti, þurrka ekki loft.
HAGSTJCTT VERÐ -GREIÐSIUKIÖR
SKRIFID EFTIR MYNDA & VERÐIISTA
D
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI 16995