Tíminn - 23.09.1979, Blaðsíða 23

Tíminn - 23.09.1979, Blaðsíða 23
Sunnudagur 23. september 1979 23 AKOTTURINN ARHLLÍFSINS (1920) leikstjóri Robert Wiene og siöast en ekki sist mynd Murnaus Nosferatu (1922). Eins og menn rekur sjálfsagt minni til hefur Werner Herzog gert nýja útgáfu af þessari kvikmynd sem vakiö hefur mikla athygli. Sú útgáfa veröur væntanlega sýnd innan tiöar i Nýja biói. Það verður spennandi aö bera þessar tvær út- gáfur saman. Framúrstefnu- myndir Samkvæmt lögum Fjalakatt- arins er eitt af megin verkefnum hans aö kynna það sem þykir framsæknast i kvikmyndagerö. 1 vetur veröur kliíbburinn trúr þessu markmiöi sinu þvi aö fyrir- hugaö er aö sýna nokkrar myndir sem á ýmsa lund eru býsna ný- stárlegar þótt þær séu sumar komnar nokkuð til ára sinna. Sá sem ef til vill er hérlendis þekktastur af þeim kvikmynda- geröarmönnum sem foröast aö fara troönar slóöir er Jean-Luc Godard. Hann hefur veriö óþreyt- andi viö aö segja borgarasféttinni til syndanna eins og væntanlegir félagar kvikmyndaklúbbsins geta sannreynt með þvi aö sjá kvik- myndina Week-End sem hann gerbi 1967. Annar á svipaöri bylgjulengd -og Godard er landi hans, Frakk- inn Jean-Marie Straub. Hann hefur af pólitiskum orsökum gert flestar kvikmyndir sinar I Þýska- landi, þeirra á meöal Dagbók önnu Magdalenu Bachsem þykir sérstaklega myndræn kvikmynd. Roman Polanski er ekki meö öllu ókunnur Islenskum kvik- myndahúsagestum. Hann á eina kvikmynd á sýningarskránni sem undirritaöur minnist ekki aö hafi veriö áöur sýnd á Islandi. Hér er um aö ræöa Knife in The Water ( 1962). Ein teiknimynd veröur sýnd i vetur. Þaö er itölsk fantasiumynd frá 1977 geíð áf“Bruno Bozzetto. Veldi ástríðnanna Ein af þeim kvikmyndum sem islenskum almenningi var ekki treyst til aö berja augum á kvik myndahátiðinni sælu var Veldi til- finninganna eftir Japanann Nag- isa Oshima. 1 fyrra geröi Oshima aðra mynd I stil hinnar fyrri sem hann kallar Veldi ástriönanna. Nýja myndin hefur hlotiö mikið lof gagnrýnenda, sem hafa verið sammála um aö hún standi hinni fyrri sist ab baki, en Veldi til- finninganna hlaut 1. verölaun á kvikmyndahátiöinni i London á sinum tima. Fjalarkattarmenn eiga þakkir skildar fyrir þaö áræði aö panta þessa nýju mynd til sýningar eftir alla vitleysuna sem á undan er gengin. Fimm aðrar japanskar kvik- myndir veröa teknar til sýningar I vetur. Ein Kurosawa-mynd sem ber nafniö Dodeska Den (1970), en það var fyrsta kvikmyndin i litum sem sá góöi maður gerði. Hún er ekki talin i hópi bestu mynda hans. Ugetsu Monogatari (1953) leikstýrö af Kenji Mlzo- guchi er hins vegar talin ein allra besta japanska myndin sem gerö hefurverið. Kvikmyndin Onibaba (1964) er byggð á magnþrungu japönsku ævintýri. Leikstjórn dahornið þeirrar myndar annaöist Kaneto Shindo. Sjötta japanska kvikmyndin er um Olympíuleikana i Japan 1964. Hún hefur vakiö eftirtekt fyrir góöa kvikmyndatöku. Sitt af hverju tagi Enn eru nokkrar myndir ótaldar. Lyfta til aftökustaöar eftir Lois Mallé hlaut verölaun i Frakk- landi, sem besta franska kvik- myndin 1957. Hakakrossinn (Swastika) er heimildarmynd frá uppgangstimum nasismans i Þýskalandi. James Ivory sem ný- búinn er aö senda frá sér at- hyglisverða mynd , The Europ- eans.á eina á skránni sem heitir trafár vegna mynda Georgie og Bonnie. Norræn kvikmyndagerö á sér einungis einn fulitrúa aö þessu sinni, en það er kvikmynd Svians Tage Danielssonar tir höföi gamals manns. Og þá er aðeins eitt eftir. Þaö er að fara niður i Tjarnarbió og fá sér skirteini. Slikt þarfaþing kost- ar 8.000.- kr. og gildir allan vetur- inn. G.K. Ugetsu Monogatari hefur veriö talin ein af bestu kvikmyndunum sem geröar hafa veriö i Japan. Hakakrossinn fjallar um uppgangstfma nasismans I Þýskalandi. Blóösugan Nosferatu (Max Schreck) f kvikmynd Murnau. Lopapeysur og aðrar handprjónaðar flikur óskast keyptar. Upplýsingar i sima 91-85199 Pósthólf 4270, Reykjavik. Bahus Baron BORÐSTOFUSETTIÐ er úr gulbrúnni eik, skápur með blýinnlögðum glerrúðum, málmhöldum Ijósi undir efri skápum og færanlegri hillu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.