Ísafold - 21.11.1879, Page 1

Ísafold - 21.11.1879, Page 1
9 0. VI 27. Reykjavík, föstudaginn 21. nóvembermán. 1879. Með lcongsbrjefi frá 2. okt. 1801 var Hólabiskupsdæmi lagt niður og samein- að við Skálholtsstipti, eptir að þessi biskupsdæmi höfðu verið aðskilin hjer um bil í 700 ár. þessi samsteypa bisk- upsstólanna mátti þykja því kynlegri, sem nokkru áður var fjölgað amtmanna- embættunum og þau skipuð 3 í stað eins, er áður hafði verið. Sem einhver helzta ástæða fyrir áminnstri sameiningu biskupsstólanna, hefir það verið talið, að hún hafi miðað til að gjöra samvinnu hinnar andlegu og veraldlegu yfirstjórn- ar landsins hægri og flýta fyrir afgreiðslu málanna. En þó þetta sje áheyrilegt og á rökum byggt, þá hefir þó þessi tilhögun mikla annmarka í för með sjer og það er tvísýnt, hvort þeir eru ekki meiri en sá hagnaður, sem af henni hefir leitt. Landið er svo víðlent og strjálbyggt og vegir víða svo ógreiðir yfirferðar, að enginn biskup endist til þess, með öllu því, sem hann hefir að starfa, að vísítera 20 prófastsdæmi og sjá með eigin augum það, sem ábóta- vant kann að vera á hverjum stað, og því síður er þetta mögulegt, þegar bisk- upinn er konungkjörinn þingmaður og þarf að sitja á alþingi annaðhvort ár og, ef til vill, í nefndum hitt árið um mikinn hlut sumartímans. þetta liggur svo í augum uppi, að það þarf eklci frekari skýringar við. En þótt ein- hverjum biskupi tækist að vísítera einu sinni öll prófastsdæmi landsins, hlytu þó að líða mörg ár áður en því verki væri lokið, og þá leiddi þar af, að hann þá yrði orðinn ókunnugur hinu kirkju- lega ástandi í þeim prófastsdæmum, sem hann fyrst vísiteraði, og þetta gæti hæglega breytzt á svo löngum tíma. Til að ráða bót á þessu hafa menn komið með ýmsar uppástungur, sem þó hafa verið þannig lagaðar, að stjórnin ekki hefir getað fallizt á þær. þannig stakk stiptamtmaður Moltke 1823 upp á því við kansellíið, að hjer væru skip- aðir amtsprófastar eins og gjört var í Danmörku með tilskipun 5. des. 1806, þó með þeim mismun, að hann vildi láta hjeraðsprófasta, sem þar voru þá af teknir, haldast hjer eptir sem áður. þessir amtsprófastar áttu eptir hans uppástungu að vera 3, sem sje: 1 í vest- uramtinu og 2 í norður- og austur-amt- inu. Embætti þeirra átti að vera fólg- ið í því, bæði að vísítera kirkjur og að hafa eptirlit með embættisfærslu hjer- aðsprófasta og presta, en þó áttu þeir að standa undir biskupi, senda honum skýrslur um vísitatíur sínar og láta hann afgreiða málin til stjórnarinnar. þeir áttu líka að vera prestar á góðum brauðum og hafa fasta kapelána*. Samkynja er önnur uppástunga, þótt hún fari nokkuð í aðra átt, sem amt- maður Bjarni sál. Thorarensen kom með á þeirri embættismannasamkomu, sem að konungs boði frá 22. ágúst 1838 kom saman í Reykjavík og sem hann síðan sendi kansellíinu og laut að því, að skip- aður mætti verða kirkjuvísítator og 'of- ficialis fyrir norður- og austuramtið, er fengi laun sín af tekjum Grenjaðarstað- ar og Múla prestakalla, er skyldu sam- einast. Báðar þessar uppástungur byggjast á hinni sömu hugsun, sem sje: með þessari embættastofnun mitt á milli bisk- upsins og hjeraðsprófastanna, að koma á nákvæmara og strangara eptirliti bæði með próföstum og prestum, en biskup- inn getur sjálfur haft, og þótt sú aðferð, sem áður nefndir uppástungumenn hafa viljað við hafa þessu til framkvæmdar, eigi nú ekki lengur við, er þó hugsun og tilgangur þeirra enn í fullu gildi og það því fremur sem störf biskupsins hafa svo mjög aukizt á seinni tímum, að hann nú naumast getur verið nokkra stund að heiman nema hann setji ein- hvern í sinn stað á meðan. Ef prófastar fylgdu nákvæmlega því erindisbrjefi, sem biskup gefur þeim, mundi ekki þurfa að herða eptirlitið með prestum eða hinu kirkjulega ástandi hjer á landi; því auk þess að vísítera kirkjurnar sjálfar, eiga þeir á yfirreið- um sínum að yfirheyra börn, grennsl- ast eptir samkomulagi milli presta og safnaða, skoða embættisbækur prestanna og yfir höfuð að tala kynna sjer sem bezt háttalag og embættisfærslu þeirra. En þó óhætt megi fullyrða, að flestir prófastar landsins sjeu árvakrir og skyldu- ræknir ágætismenn, getur þó verið, að eptiriit sumraþeirra sje ekki eins strangt og það þyrfti að vera, og getur það haft margar orsakir, en sjer í lagi mun það optast vera því að kenna, að söfn- uðirnir kinoka sjer við að kvarta yfir sóknarpresti sínum, þó embættisfærsla hans eða háttsemi sje ekki sem reglu- legust, og prestarnir borga þá söfnuð- unum aptur í sömu mynt. Verður það svo optar ofan á, að enginn kvartar um neitt við prófastinn og hann hlífist þá við að kæra nokkurn prest fyrir bisk- upi. í sumum prófastsdæmum, einkum *) Biskupinn átti einnig að vera prestur í Garða og Bessastaðabrauðinu, og lektor við skólann á Bessastöðum að vera kapelán hans. þar sem eru fá prestaköll, getur það opt að borið, að þar sje enginn fram- úrskarandi dugnaðarprestur, sem sje gott prófastsefni, eða að líklegasti presturinn sitji á öðrum enda prófastsdæmisins og eigi því örðugra með að reka embætti sitt, eða hann óttist fyrir, að yrði prest- inum vikið frá embætti, mundi enginn sækja um brauðið, svo það yrði prest- laust, einkum sje það fátækt útkjálka- brauð. þ>ótt fjölda margir prestar sjeu ár- vakrir og skylduræknir, munu þó því miður meðal þeirra finnast nokkrir ó- reglumenn, og þó enn fleiri ókirkjulegir og of veraldlega sinnaðir menn, sem ekki elska embætti sitt nje láta sjer sjerlega annt um að efla andlega mennt- un sóknarbarna sinna, heldur vinna verk köllunar sinnar eins og hvert annað lög- boðið verk, til að komast vitalaust af. En þar sem svo er ástatt, er jafnan hætt við, að hið kristilega safnaðarlif veslist upp og deyi. Á þessu kynni nú að mega ráða bót með strangara kirkjulegu eptirliti, sem gæti haldið andlegu stjettinni betur vakandi og glætt andlegan áhuga hennar. í erindisbrjefi amtmannsins yfir Norður- og Austuramtinu frá 19. júní 1783 var honum boðið á yfirreiðum sín- um um amtið, að gæta að kirkjunum og skýra stiptsyfirvöldunum jafnskjótt frá, þætti honum í kirkjulegu tilliti eitt- hvað ábótavant. Hafi það nú þótt nauð- synlegt, að tryggja hið kirkjulega ept- irlit með því að fela það einnig verald- legum embættismanni á hendur með- an biskupinn þó sat á Hólum, þá er að líkindum ekki minni þörf á því nú að gjöra eitthvað því til frekari trygging- ar. En sitt kann hverjum að sýnast um það, hvernig að þessu eigi að fara. Fyrir mitt leyti vildi jeg helzt stinga upp á að skipa hjer 3 yfirprófasta, 1 í hverju amti, sem vísíteruðu kirkjur og söfnuði í biskups stað hver í sínu amti. I>ó amtsprófastar gæfust illa í Danmörku, sannar það ekkert, því þar voru hjer- aðsprófastar afteknir, en hjer átti að halda þeim, og þótt stjórnin ekki fram- kvæmdi uppástungu Moltkes stiptamt- manns, sannar það ekkert, þvi hún var í sumum greinum óaðgengileg eins og hún lá fyrir, og stjórnin gat ekki leit- að um hana álits þeirra konferenzráðs Stefáns Thorarensens og Geirs biskups Vídalíns, því þeir dóu báðir um það lejrti; en það er alls eigi ólíklegt, að þeir hefðu fallizt á þetta fyrirkomulag með nokkurri breytingu. þá 3 yfir-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.