Ísafold - 19.04.1882, Page 4
að málþráður til íslands sje alveg ómiss-
andi vegna veðurspár.
Hovgaard lautenant, einn af förunautum
Nordenskjölds með Vega, danskur maður,
hefir komið fram með þá kenningu, að
norðan við Asíu muni vera eylönd tvö mikil
ókennd, er muni ef til vill ná alla leið norð-
ur að heimskauti, og mjótt sund á milli
norður undan Tjeljuskinhöfða, norðurodda
Asíu. |>etta markar hann á flugi fugla,
straumum og sjávardýpi o. fl. er þeir fje-
lagar á Vega rannsökuðu. f>etta sund muni
hin eina tiltækilega leið norður að heim-
skauti. Hann heldur að Franz-Jósefs-land
muni vera vesturströnd annars hins ókenda
eylands og þá hins vestara. Hovgaard brá
sjer vestur í Ameríku í vetur og átti þar tal
við Edison, hinn mikla hugvitsmann og þús-
undvjelasmið. Edison sýndi honum sýnis-
hom af pólfararskipi, er hann hafði hugsað
upp og taldi óbrigðult í slíka för, enda má
það fara jafnt um láð sem lög,- um ís og auð-
an sjó.
Safmagnsljós er farið að tíðkast nokkuð
hjer í Kaupmannahöfn sem annarstaðar í
stórbæjum. þvf hefir fleygt fram eptir raf-
magnsvjelasýninguna í París í sumar. Nú
er nýbyrjuð önnur rafmagnsvjelasýning í
Lundúnum. Eafmagnsljós er svo miklu
bjartara en gasljós, að ekki er þar minni
munur á milli en góðum steinolíulampa og
koluljósi. I öðrum löndumerþað orðið töluvert
algengt. |>eir sem eru að grafa jarðgöngin
(brautargöng) undir sundið milli Frakklands
og Englands vinna við rafmagnsljós. f>eir
voru komnir 3200 fet undan landi Englands
megin fyrir mánuði síðan.
Hugvitsmaður einn í Ameríku hefir kom-
ið upp með það nýlega, að fara megi land-
veg frá New York til Parísar á 5-J- degi, að
frá skilinni 2 klukkutíma sjóferð. Hann
ætlast til að lögð sje járnbraut norður og
vestur um Kanada og Aljaska allt að Behr-
ingssundi og síðan frá því að vestanverðu
vestur um Kamsjatka og Síberíu til Eúss-
lands.
Málið gegn Guiteau, morðingja Garfjelds
forseta, hefir kostað um 112,000 kr. f>að
stóð yfir 73 daga, og kviðdómendurnir, tylft
manna, lokaðir inni allan þann tíma, þ. e.
máttu ekki hafa neitt samneyti við aðra
menn fyrr en málið væri útkljáð. Læknarn-
ir, sem stunduðu Garfield í legunni, hafa
fengið úr ríkissjóði þessa þóknun : Dr. Bliss
nm 94,000 kr. (25,000 doll.), Dr. Agnew
og Dr. Hamilton um 56,000 kr. hvor, Dr.
Eeyburn og Dr. Boynton um 37,000 kr. hvor,
og konan, sem vakti yfir honum lengst,
19,000 kr.
Til máls hefir komið í Ameriku nýlega
að leggja nefskatt á alla vesturfara, er á
land koma í New York, 1 dollar á mann.
Maður Kristínar Nilsson, söngdísinnar
frægu frá Svíþjóð, Kouzeaud að nafni,
franskur, var einn í þeirra tölu, sem misstu
vitið eptir bankahrunið í vetur í Paris,
vegna fjárskaða, og Ijezt skömmu síðar.
Ægisif, musteri því í Miklagarði, er
Væringjar nefndu svo, en Grikkir Aja Sop-
hia (hagia sophia), og reist hafði Justinian
keisari I. á árunum 532—538, liggur nú við
hruni. En það kvað standa í Krukkspá
Tyrkja, að þá muni ríki þeirra undir lok
líða, er Ægisif hrynur, og er mælt að borg-
arlýður í Miklagarði muni leggja á það
fullan trúnað.
í J>jórsárósi fannst 30. des. næstl. flaska, rek-
in af sjó: á miða er í henni var, var sagt, að
henni hefði verið kastað í gólfstrauminn 21. okt.
1880 á 56° 20‘7 n. br. 270 42‘2 v. 1. Skýrslu um
fund flöskunnar hefir Bogi læknir Pjetursson síðan
sent veðurfræðisstofnuninni í Kaupmannahöfn.
|>að er áríðandi, að þeir sem finna slíkar flösk-
ur, skýri frá fundi þeirra, því það getur gefið
mikilsverðar upplýsingar viðvíkjandi straumum í
höfunum. J>að er athugavert, að ef menn eigi
geta náð miðunum úr flöskunum án þess að skemma
þá, þá ættu menn eigi að hika við að brjóta flösk-
urnar.
Yeðráttnfar í licykjavík í marznián.
Veðurátta í þessum mánuði hefir verið
einstaklega stirð; má kalla að stöðugur
útsynningur hafi verið, því þótt stöku
sinnum hafi brugðið fyrir á annari átt, þá
hefir hann skjótt aptur gengið til útsuðurs
og það opt á svipstundu með roki (t. a. m.
9. og 14.).
1. var austanátt; 2. logn, fagurt veður;
3. 4. úts. með biljum; 5. norðan, hvass;
6. landnorðan með hríð; 7. austan að
morgni, en síðari hluta dags genginn til ú.t-
suðurs ; 8.—14. útsynningur, opt rokhvass ;
15. logn, ofanhríð; 16. hægur á norðan,
bjart veður; 17. hægur á landsunnan með
nokkurri riguingu; 18. útsunnan, með
stöðugum biljum; 19. útsunnan, en gekk
svo í vestur útnorður; 20. 21. norðan,
hvass; 22. landsunnan að rnorgni, útsunn-
an að kveldi; 23. 24. úts.; 25. 26. hægur
á austan með snjókomu; 27. útsunnan með
biljum, gekk til útnorðurs og varð logn
síðari hluta dags; 28. 29. hægur, bjart
veður; 30. 31. hægur á landsunnan með
nokkurri rigningu.
Snjór hefir fallið mikill þennan mánuð,
þar sem stundum varla má heita að stytt
hafi upp milli útsynningsbyljanna.
Talsverður kuldi var um tíma í sjónum;
þannig lagði hann fram á miðja skipalegu
hinn 20.—21.
Hitamælir hæstur (umhád.) 30.31. + 3°E.
(í fyrra + 2° -)
Hitamælir lægstur (um hádegi) 6. h- 10° -
(í fyrra -f- 13° -)
Meðaltal um hádegi f. all. mán.... 1,3°-
(í fyrra h- 3,3°-)
Meðaltal á nóttu f. all. mán..... -f- 4,2°-
(í fyrra -- 8,3°-)
Mestur kuldi á nóttu (aðf.n. h. 6.) h- 14° -
(í fyrra h- 20° -)
ensk.þuml.
Loptþyngdarmælir hæstur 21......... 30,1
-----------------lægstur 9......... 28
Að meðaltali....................... 28,50
Reykjavík 1./4. 1882.
J. Jónassen.
Auglýsingar.
Mjer er ljúft að láta opinberlega í ljósi hjartans
þakkiæti mitt til heiðursmanna þeirra, er sýnt hafa
góðgirni sína og mannkærleilta með því að kaupa
saumavjel fyrir samskotafje sitt og gefa mjer
hana. Sjerstaklega vil jeg nefna frú J. Bernhöft
og liennar hús, er ekki hefir að eins nú átt mestan
og beztan þátt í gjöf þessari, heldur hefir ætíð
reynst mjer manna bezt.
Eg get að eins beðið guð að launa þessum vel-
gjörðamönnum mínum, og eg er þess fullvisa, að
hann mur> hjer eins og jafnan launa fyrir fátækl-
inginn. Rvik 30. marz 1882.
Helga Jónsdóttir. *
l>egar jeg, sem er bláfátækur fjölskyldu-
maður, á síðastliðnu vori rjeðist í að byggja
mjer bæ með steinveggjum, lánaði herra
organisti Jónas Helgason mjer 122 kr. í
peningum fyrir timbur, og fyrir þessa hjálp
komst þessi bæjarbygging mín svo langt,
íeS haft þar skýli fyrir mig og mína.
I sumar er leið, þegar bær þessi var kom-
inn undir þak, kom velnefndur organisti
Jónas Helgason til mín, og tjáði mjer að
jeg aldrei ætti að borga sjer þetta peninga-
lán, en það skyldi vera mínpign. Ank þessa
hefir hann áður gefið mjer ýms smíðatól, og
þar á meðal stórt og allgott skrúfstykki.
Sömuleiðis hefir hans góða kona, Margrjet
Arnadóttir, auðsýnt mjer og mínum marg-
sinnis velgjörðir og velvilja. Fyrir þessar
mörgu og veglyndu gjafir og góðsemi, votta
jeg hjer með opinberlega þessum heiðurs-
hjónum mitt innilegt hjartans þakklæti,
biðjandi hinn algóða gjafarann allra góðra
hluta, sem ekkert góðverk lætur ólaunað,
að umbuna þeim allar þær velgjörðir, er
þau hafa látið mjer í tje.
Beykjavík, 6. apríl 1882.
Magnús Einarsson.
Lýsing á óskilakindum, seldum í Borgar-
hreppi haustið 1881.
1. Grábíldótt lamb: stýft og gagnbitað
hægra, heilrifað vinstra og biti framan.
2. Hvítt gimbrarlamb: tvístýft fr. gagn-
bitað h., sneiðrifað fr. v.
3. Hvít gimbur veturg.: blaðstýft og biti
apt. h., sneitt fr. biti apt. v.; hornam.:
blaðstýft fr. biti apt. h., sneitt fr. v.
4. Ær hvíthornótt: sýlt gagnfjaðrað h.,
stýft v. biti fr.; brm. JÓN ODDSSON.
5. Svartbíldótt ær : tvístýft fr. biti a. h.,
hálftaf apt. lögg fr. v.
6. Hvítur hrútur þrjev.: fjöður apt. eða
sneiðrifað aptan h., hamrað v. eða
tvístýft apt. og illa gert, tvístigað fr.
með gat í hægri stallinn á eyranu og
sást til brennimarks, sem ekkert varð
úr gert og að nokkru leyti af sagað.
Eigendur þessara kinda geta fengið verð
þeirra, ef þeir sanna eignarrjett sinn a
þeim fyrir ágústmánaðarlok 1882 að
frá dregnum kostnaði.
Galtarholti 31. desbr. 1881.
J. Jónsson.
— Til viðbótar við óskilakindalýsingu í
þverárhlíðarhreppi 1881, sjá Isaf, nr. 2.
Hvítt hrútlamb, mark: sýlt biti a. h.,
stýft biti a. v.
Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil.
Ritstjóri: Eiríkur Briem.
Prentuð í prentsmiðju ísafoldar.