Ísafold - 21.06.1882, Page 1
Argangurinn lcostar 3 kr.
innanlands, en 4 kr. er-
lendis. Borgist í júlímán.
ISAFOLD.
Pöntun er bindandi iyrir
ár. Uppsögn til áraskipta
með tveggja mán. fyrirvara.
Auglýsingar í blaðinu kosta 10 aura fyrir hverja línu með meginmálsletri, en 8 aura með smáletri.
IX 13.
Reykjavík, miðvikudaginn 21.júnímán.
18 8 2.
Útlendar frjettir.
Khöfn 29. maí 1882.
Stjórnarherrann nýi fyrir írland, Frið-
rik Cavendish lávarður, fjekk þær við-
tökur þar, að hann var myrtur í Dýfl-
inni samdægurs sem hann var þangað
kominn að taka við embætti sínu, 6.
þ. m., og með honum landritari írlands,
Thomas Burke. þ>eir voru á gangi
saman í skemmtigarði einum miklum,
er kallaður er Phönixpark, skammt frá
aðseturshöll jarlsins yfir írlandi, er stend-
ur í útjaðri garðsins. Fjöldi manna
annara var á gangi um garðinn víðs-
vegar, svo sem vandi er til á slíkum
stöðum; en enginn kunni frá tíðindum
að segja um illvirkið annað en það, að
sjest höfðu álengdar ryskingar milli
nokkura manna, og að þeim lauk svo
á skömmu bragði, að 4 þeirra stigu í
vagn, sem þar beið nærri og óku burt
í snatri, en 2 lágu eptir hreifingarlaus-
ir. Hugðu þeir, er þetta sáu, eigi ann-
að um að vera en algeng áflog ölvaðra
manna eða þá að þeir fjelagar í vagn-
inum hefðu átt hendur sínar að verja
fyrir einhverjum óþokka þorpurum, er
þar lægju í roti eptir. Maður einn, er
var á vegi fyrir vagninum, er þeir fje-
lagar óku leiðar sinnar, ávarpaði þá
og sagði: „þið hafið komist í hann
krappan!11 „Svo ervíst“ svöruðu þeir.
Síðan bar einhverja aðra þar að, er
mennirnir lágu eptir og sást þá, að
þeir flöktu allir í sárum, eptir rýtinga,
og að þetta voru tveir æðstu embætt-
ismenn landsins. Var Burke örendur,
en Cavendish sást ljúka upp augunum
snöggvast, og gaf síðan upp öndina
þegar í stað.
þ>essi hryllilegi viðburður fjekk flest-
um mikils, utanlands og innan. Par-
nell og hans fjelagar, forstöðumenn
Bændafjelagsins, kváðu landa sína hafa
gert hinn mesta óvinafagnað með jafn-
níðingslegum glæp, og rengir enginn,
að slíkt muni mælt af fullri alvöru. En
hitt er annað mál, að ekki mun hægt
að bera á móti því, að þessi og þvílík
glæparáð kunni að eiga rót sína að
rekja óbeinlínis til æsinga þeirra Par-
nells að undanförnu. í annan stað er
Parnell engan veginn einráður yfir
aðgjörðum landa sinna, þótt voldugur
sje. jpar í landi, á írlandi, eru ýms
leynifjelög, sem hann hefir ekkert yfir
að segja, og þau hálfu ver viljuð í alla
staði en hans fjelag. Sumum þeirra er
stjórnað vestan úr Ameríku, og fá drjúg-
um fjárstyrk frá írum þar. f>ykir mega
ganga að því vísu, að þar muni helzt
til að leita um upptök þessa síðasta og
versta illvirkis. Stjórnin lagði 180,000
kr. til höfuðs morðingjunum, en enginn
hefir enn orðið til að segja til þeirra.
Er það eignað ótta almennings á ír-
landi við grimmilegar hefndir af hálfu
þeirra, er gert hafa morðingjana út,
fremur en hinu að þeim takist að leyn-
ast svo vel af sjálfs sín rammleik. Af
slíkum toga ætla og margir það spunn-
ið, að morðingjunum verður auðvelt
fyrir um undankomu eptir illvirkið inn-
an um mikinn mannfjölda um hábjart-
an dag. En ekki hefir verið annað að
heyra á almenningi um írland allt en
að þar þætti jafnhörmulegt um illræði
þetta sem á Englandi. Mannaskiptín
í stjórn landsins áttu að vera vottur
þess, að nú skyldi hafin ný öld og
betri í viðskiptunum við íra af hálfu
Breta, og hafði þeim Cavendish og
jarlinum nýja, Spencer lávarði, verið
fagnað hið bezta í Dýflinni, er þeir
hjeldu innreið sína í borgina að morgni
þess dags, er morðið var framið um
kvöldið.
Gladstone heldur áfram eptir sem áð-
ur nýmælum sínum upp uppgjöf á jarð-
arafgjöldum við fátæka leiguliða á ír-
landi, en hefir jafnframt borið upp á
þingi frumvarp um að herða svo á lög-
reglustjórn i landinu, að óaldarflokk-
arnir verði yfirstignir. Styðja Tórý-
menn það mál af fullum trúnaði, en
þingmenn íra andæfa því af fremsta
megni.
Ofsóknir þær við Gyðinga, er hóf-
ust á Rússlandi í fyrra vor, hafa vak-
ist upp aptur á þessu vori með engu
minni grimmd og ódæmum en þá.
f>eir flýja úr landi þúsundum saman
vestur í Austurríki ogannað. Yfirvöld-
in rússnesku veita þeim litla eða enga
vernd.
Nú er afráðið að hætta við hina fyr-
irhuguðu krýning Rússa-keisara í sum-
ar, fyrir þá sök, að örvænt þykir um
að takast megi að vernda keisara og
gesti hans fyrir hinum voðalegu morð-
ráðum gjöreyðenda. f>að komst upp,
að forstöðumaðurinn fyrir fjelagi einu,
er stjórnin hafði falið á hendur að lýsa
borgina til hátíðabrigðanna, var einn
af höfuðoddvitum morðræðismannanna
við Alexander II í fyrra, er allt afhafði
leynzt þangað til. þótti slíkt greini-
legur vottur þess, að ofætlun væri að
sjá við ráðum þeirra til hlítar.
f>að er sögð von drottningarinnar
hingað til Danmerkur í sumar í kynn-
isför til foreldra sinna og keisarans
manns hennar nokkuru síðar að sækja
hana.
Enn standa stórveldin í stimabraki
við stjórnina á Egiptalandi. Jarl er
þeim hollur og auðsveipur, en ráðherr-
ar hans, þeir Arabi og hans fjelagar,
vilja losa landið undan þeirra ráðum
og afskiptum, og þann flokk fyllir
þorri landsmanna, þeirra er skyn bera
á málavöxtu og nokkurs eru um komn-
ir. f>að hefir síðast orðið til tíðinda
þar, að Frakkar og Englendingar hafa
sent herskip nokkur til Alexandríu til
þess að ógna Egiptum; en svo er að
sjá, sem þeir muni ekki láta það á sjer
festa, enda munu þeir hafa eitthvert
veður af að hinum stórveldunum getist
miðlungi vel að þessu tiltæki vestur-
ríkjanna; og Tyrkjasoldán, lánardrott-
inn Egiptajarls hefir mótmælt því sk.ýrt
og skorinort.
Bandamenn í Vesturheimi hafa tek-
ið í lög gjörsamlegt bann gegn mann-
flutningum þangað í land frá Kína um
10 ára tímabil. Kínverskir verkmenn
eru hálfu ódýrri á vinnu sinni en þar-
lent fólk og hefir því lengi þótt mesti
atvinnuspillir að þeim, einkum í Kalí-
forníu og öðrum vesturríkjum Banda-
fylkjanna.
Fjárlagastælunni hjer á þingi lauk
skaplegar en áhorfðist. Hægrimenn
í samþingisnefndinni treystust eigi að
halda sínum kreddum til streytu, er
eigi lá annað við en ný bráðabirgða-
fjárlög, sem almenningur telur ólögleg.
Varð það að samkomulagi, að ekki
skyldi auka launabót við hærri laun en
2500 kr., að veita skyldi ekki meiraen
3 milj. kr. í þetta sinn til að smíða
fyrir nýtt herskip og það sem háskól-
innn þyrfti til kostnaðar sjer um fram
sínar tekjur og styrk þann úr ríkis-
sjóði, er vinstrimenn hafa viljað skammta
honum, 50,000 kr., skyldi tekinn að láni
til bráðabirgða. Voru fjárlögin svo
síðar samþykkt í báðum deildum 10. þ.
m. Höfðu vinstri menn fullkominn sig-
ur í launamálinu, og því nær í hinum
ágreiningsatriðunum. Una þeir því
allvel málalokum, en hinir miður og
bregða hver öðrum um samhaldsleysi
og þrekleysi. En almenningur hrósar
happi að undan er stýrt vandræðum að
sinni.—Jdngi var slitið 20. þ. m. Ávöxt-
ur þingvinnunnar sárlítill nú sem að
undanförnu. Ráðherrarnir kyrrir í sín-