Ísafold - 14.01.1885, Side 1
taur út á miðvikudajsmorgna. VerS
árjanjsins (55-60 arka) 4kr.: erlendis
5 kr. Borjist [jrir miðjan júlimánnJ.
ISAFOLD.
Uppsójn (skrifl.) bundín við áramót 5-
gild nema komin s e íil ÚI5. tjrir 1. okt.
Algreiflslustofa i Isafoldarprenism. 1. sal.
XII 2.
Reykjavík, miðvikudaginn 14. janúarmán.
1885.
5. Innlendar frjettir.
6. Um ábyrgð á þilskipum.
7. Nokkur orð um lóðabrúkun.
9. Fyrirspurn og svar. Auglýsingar.
Forngripasafmð opið hvern mvd. og ld. kl. I 2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd, og ld. 4—5
Veðurath-Ugamr í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Jan. Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu um hád. fm. em. fm. em.
M. 7. -r- 3 + 1 28,5 28,3 A h d Sv h d
F. 8. 0 0 28,5 28,9 N h b N h b
F. 9- -r- 5 “T' 5 29 29 N h b 0 b
L. 10. -r- 7 1 29,1 29.5 N h b 0 b
S. II. -3- 9 +- 7 29,9 30,2 0 b A h b
M. 12. — 8 4- 1 29,9 29,8 A h b Sa hv d
í>- 13- + 1 + 1 29,8 29,9 S h b S h b
Jessa vikuna má heita að stilling hafi verið
í veðri. 8. gekk hann til norðurs, en ekkert
varð úr norðanáttinni; 12. um kveldið gjörði
landsynning með miklu regni, en næstu nótt
gekk hann til S (Sv) og snjóaði ofaníað mun,
svo hjer er nú sem stendur mjög mikill snjór.
í dag 13. nokkuð hvass á útsunnan með byl
eptir hádegi og farinn að frysta.
Reykjavík 7. jan. 1885.
Bæjarstjórnarkosiiing. Kosinn 9.
þ. m. í bæjarstjórn Reykjavíkur af hærra
gjaldanda flokki síra Eiríkur Briem presta-
skólakennari, með 34 atkv. til þriggja ára,
í stað landshöfðingja. Jón Jensson landrit-
ari hlaut 16 atkv.
Húsbruni. ‘ Mánudagskvöldið milli
jóla og nýárs brann sölubúð Finns kaup-
manns Finnssonar í Borgarnesi. Litlu sem
engu bjargað.
Tombola var haldin í Borgarnesi sama
daginn, til að útvega orgel í Borgarkirkju,
en ekki í búðinni, sem brann, heldur í íbúðar-
húsi Finns kaupmanns, og stóð ekki í neinu
sambandi við eldsuppkomuna, sem gizkað er
á að orsakazt hafi af logandi vindli, er ein-
hver, semíbúðina kom, kynni að hafafleygt
þar frá sjer óvarlega. Annar endi búðar-
innar var hafður fyrir pakkhús, og þar
geymt hey meðal annars. þar var og geymt
töluvert af matvælum og öðrum búsnauð-
synjum, og brann allt saman.
Laxaklak. Eptirfarandi skýrslu um
það liéfir síra þorkell Bjarnasou ú Reyni-
völlum gert svo vel að senda ísafold :
Herra ritstjóri! Mjer þykir rjett að láta
yður vita, hvernig laxaklakið hefir gengið.
Frá 26. sept. til 17. oktober var einlægt
við og við verið að reyna að veiða, og feng-
ust í Laxá við Laxfoss 3 hrygnur og 5
hængar, en í Bugðu, þar sem hún rennur
úr Meðalfellsvatni, 10 hrygnur og 13 hæng-
ar. Hinn 16. október voru fyrstu hrogn-
in frjófguð, en hin seinustu 8. nóv. og feng-
ust að minnnsta kosti 26,000 frjófguð hrogn.
Mjög var örðugt sökum veðráttunnar að
frjófga, þar sem stundum var húðarrigning,
en þá hinn daginn frost, en ekkert skýli til
að véra inni í, sem þó er að líkindum nauð-
synlegt hjer á landi. |>á gerðu og vatna-
vextir töluverða hindrun, þar eð þurfti að
flytja hrognin yfir ána til að koma þeim
heim í húsið; og að lokum hljóp hinn 14.
nóv. eitt hið mesta fióð í Laxá, sem menn
muna hjer eptir. Braut það laxakassann, en
í honum var þá ein hrygna með hrognum
og nokkrir hængar, sem töpuðust.
Hinn 23. desember sást fyrst votta fyrir
augum í hrognum þeim, sem frjófguð voru
16. okt. og hafa þá liðið 69 dagar frá frjófg-
uninni þangað til augun sáust. Gangi nú
jafnmargir dagar frá því augun sjást og
þangað til fiskurinn fer úr hrogninu, eins og
gengið hafa frá frjófguninni og þar til aug-
komu fyrst í ljós, og svo síðan nálægt ðO
dagar sem fiskurinn lifir í kviðpokanun —
en tíminn er nú mikið kominn undir hit-
anum á vatninu — þá ætti að mega hleypa
hinum fyrstu fiskum út seinast í apríl. Af
hrognunum eru dáin rúm 800, og dó mest af
þeim fyrst framan af eptir frjófgunina.
Hitinn hefir verið að meðaltali rúmar +3°
C., og hefir Johnsen, laxaklaksmaðurinn
sænski, átt örðugt með að halda vatninu
mátulega köldu. Hann veitti lindinni yfir
mýri áður en hún rennur inn í húsið, og síð-
an snjór kom, hefir hann borið daglega í hana
til að fá vatnið nógu kalt. Sé það of heitt,
t. d. +4°, þá klekst fiskurinn of snemma
út, og verður þá að hleypa honum út áður
en vorhlýindi koma. Johnsen passar klak-
ið mjög vel, enda eru nú allar líkur til að
það muni heppnast. Jeg hefi opt verið með
honum bæði við frjófgunina og hina dag-
legu pössun, til að reyna að læra aðferðina.
Hinn 10. október fór Johnsen austur að
þingvöllum eptir undirlagi Feddersens til
að undirbúa þar urriðaklak. Ljet hann
smíða þar 2 klakkassa. Er möl látin í þá
og hrognin þar ofan á og lok yfir; fljóta
þeir í vatni, en smágöt á báðum endurn, svo
vatnið geti hægt runnið yfir hrognin. Hinn
25. okt. fór hann aþtur austur að jpingvöll-
um og frjófgaði 3 urriða, og 3 dögum seinna
frjófgað síra Jens aðra 3, og heldur John-
sen að þar hafi sjálfsagt verið frjófguð
18,000 hrogn. En engar frjettir höfum við
fengið af klakinu þar, því mjög hefir verið
fáferðugt sökum illviðra. Johnsen hefir nú
lengi ætlað sjer austur til að sjá hvernig liði,
en jeg hefi álitið honum ófært í slíkum
illviðrum sem gengið hafa.
þegar klakínu er lokið, skal jeg sjá til, að
þér fáið greinilega skýrslu bæði um klak-
húsið, klakaðferðina og annað það sem í
þessu efni getur orðið til gagns og fróöleiks.
Reynivöllum 1885. — porkell Bjarnason.
Saiusiingui'illll í dómkirkjunni á sunnu-
daginn að var var bærilega sóttur til þess
að gera, eitthvað hátt á 4. hundrað manns.
Hann var ítrekaður kvöldið eptir, en þá
komu ekki nema um 80. Má vera, að það
hafi verið nokkuð því að kenna, að það
kvöldið hafi ekki verið nægilega auglýst.—
það er vitaskuld, að almúgafólki kann að
vera nokkur vorkunn árferðisins vegna, þótt
það hlífi sjer við öllum kostnaði, hvað lít-
ill sem er. En hinu, heldra fólkinu, sem
kallað er, því væri sannarlega ekki ofætlun
að láta dálítið meira af hendi rakna en
annaðhvort eina eða tvenna fimmtíu aura,
eða þá ekki neitt, til þess bæði að styrkja
gott fyrirtæki, sem er að útvega nýtt orgel
í dómkirkjuna, og einkum til þess að
hlynna að því að verulega góð söngskemmt-
un og söngæfÍDgar eflist og þróist. Hjer
hafa nú milli 30 og 40 manns, karlar og
konur, varið miklum tíma og mikilli fyrir-
höfn til þessa fyrirtækis, til söngæfinga
o. s. frv., sumir þar að auki dýrkeyptri
og fágætri kunnáttu, svo sem sjálfir forstöðu-
mennirnir fyrst og fremst, þeir Steingrím-
ur Johnsen og Bj'óm Kristjdnsson, er báðir
báru nú eins og í fyrra mjög af því sem al-
mennt gerist, Steingrímur í söng og hinn í
hljóðfæraslætti. Fyrir alla sína íyrirhöfn
o. s. frv. taka þeir engir, hvorki forgöngu-
mennirnir nje aðrir í söngflokknum, eins
eyris virði í ómakslaun handa sjálfum sjer,
og þó gat ávinningurinn handa orgelssjóðn-
um ekki orðið í þetta sinn nema rúmar 100
kr. það er æði-smátt til tekið fyrir þessa
hina langbeztu og fegurstu skemmtun, sem
hjer er kostur d.
þá hefir brennivínið nokkuð meira upp
úr því. því er svo sem gert æði-mun hærra
undir höfði.