Ísafold - 18.02.1885, Blaðsíða 1
SeniiiT St á miSviMajsmopjna. íer!
árjanjsins (55-60 arka') 4kr.; erlendis
5 kr. Borgist fjrir micjan júlímínuð.
ISAFOLD.
Oppsögn (skrifl.) iundin viJ áramótj-
jild nema komin sje til útj. fjrir L oLL
ifjreiJslustota i Isaíoldarprenlsm. L sal.
XII 8.
Reykjavík, miðvikudaginn 18. febrúarmán.
1885.
29. Innlendar frjettir. Almennar varúðarreglur
gegn kóleru.
30. Nokkur orð um húsagerð á sveitabæjum og
úttektir jarða (niðurlag). ■
31. Heljarför, smásaga. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4—5
Veðurath.uganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Febr. Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu um hád. fm. em. fm. em.
M. 11. - ó - 4 29,9 29.9 N hv d N hv d
F. 12. - 6 - 3 29.9 29.9 N hv b N hv d
F. M. - 3 - 1 30 30,1 N hv b N hv d
L. 14. - t - 7 30.3 30,2 N hv d N hv d
S. 15. - 8 - 7 30,1 30,1 N hv b N hv b
M. 16. - 7 - 4 30 29,9 N hv b N hv b
í*. 17- - 5 - 3 30,1 30,1 N h b N h b
Alla vikuna betir verið norðanbál með nokkru
frosti; síðustu dagana hefir sjóinn lagt, og hefir ísinn
náð út undir skipalegu hjer á höfninni; sjóharkan
hefir verið tiltölulega meiri. Hjer er alveg auð
jörð. í dag 17. er norðanveðrið heldur vægara, þó
mjög hvass til djúpanna.
Reykjavík 18. febr. 1885.
Tíðarfar. Nú er búin að ganga hjer
stöðug norðanátt í fullar þrjár vikur, og það
ofsaleg meiri partinn, og með talsverðu
frosti, en nálega engri fannkomu. Harð-
indi manna á milli talsverð í sjóplássunum,
með því að engin skepna fæst úr sjó, og eins
íaustursveitunum,þar sem er sumstaðar bæði
heylaust eða heylítið, bjargarlaust og eldivið-
arlaust. þar á ofan bætist, að ýms nauð-
synjavara er þrotin í kaupstöðunum ; lítið
um mjöl t. a. m., og kol og steinolía ófáan-
leg hjá kaupmönnum hjer í höfuðstaðnum.
Yesturfarir. Einn kaflinn í landshags-
skýrslum Stjórnartíðindanna 1884, sem nú
eru nýkomnar út,er um fólksflutninga frá ís-
landi til Vesturheims árin 1873—1880, ept-
, ir Indriða Einarsson. |>að var ekki byrj-
að að safna slíkum skýrslum fyr en 1873,
enda ætlar höf. að vesturfarir hjeðan af
landi fyrir þann tíma hafi eigi munað svo
miklu, að þess hafi gætt verulega í fólkstöl-
unni eða öðrum högum Iandsins.
Alls hafa á þessu tímabili 2713 íslending-
ar, karlar konur, ungir og gamlir, flutzt
vestur um haf til bólfestu í hinum nýja
beimi.
Hver áraskipti hafa verið að þessum
mannflutningum, sjest á þessu yfirliti:
1873 291
1874 389
1775 35
1876 1115
1877 44
1878 432
1879 341
1880 66 Samtals 2713
Af þessari tölu voru 811 börn, yngri en
10 ára, 601 milli tvítugs og þrítugs, og 165
yfir fimmtugt.
Höf. ætlast á, að ferðin vestur muni hafa
kostað þennan hóp allan samtals 450 þús.
kr. f>að verða nálægt 163 kr. á mann. |>ar
við bætist nauðsynlegur aukakostnaður, á-
samt fatnaði og farangri, á að gizka 70 kr.
á mann. Hafi nú vesturfarar þessir haft
með sjer þar fram yfir 177 kr. virði hver,
upp og niður, ibörn og fullorðnir, þá hafa
þeir farið með sinn skerf af þjóðaraleigunni,
sem var 410 kr. á mann 1880 eða um 30
milj. kr. alls, eptir lauslegri áætlun höf.
Hafi það verið minna, þá hafa þeir verið
efnaðri að meðaltali, sem eptir voru, heldur
en þeir sem fóru, og eins þvert á móti, hafi
það verið meira, og er það raunar ólíklegra
en hitt.
Búiiaðarskýrslurhafa þessi Stjórnart.
einnig meðferðis um árin 1880 og 1881.
Hjer eru nokkur helztu atriðin úr þessari
skýrslu fyrir allt landið:
1880 1881
Nautpeningur, tals . . 21,006 20,923
Sauðfjenaðnr, tals . . . 501,251 524,516
Hross, tals............. 38,019 38,627
Kálgarðar, ferh.faðmar . 268,231 284,121
Vatnsv.skurðir grafnir f. 34,209 35,941
Túngarðar hlaðir faðmar 16,872 13,089
þúfnasljettun, ferh. faðm. 103,300 79,898
Vegna þess, hvað framtal bænda er óá-
reiðanlegt, eins og alkunnugt er, þá er lítið
að reiða sig á þessar skýrslur. En eptir
þeim hefir þó sauðfjenaður aldrei verið jafn
margur á landinu sem árið 1881; áður kom-
izt lengst upp í 517 þús. (1853).
Almennar varúðarreglur gegn kóleru.
Eptir
landlæknir Schierbeck.
Méð því að hingað kemur til landsins á
hverju vori fjöldi fiskiskipa frá Frakklandi,
eins og kunnugt er, en þar hefir nú geng-
ið kólera fram undir ár, þá getur svo farið,
að sótt þessi flytjist hingað með fiskimönn-
um. Að kólera mundi eigi geta þrifizt
hjer á Islandi vegna kulda, er fjarri því að
nokkur vissa sje fyrir; hún hefir þvert á
móti gert vart við sig erlendis á vetrardag
í talsverðum kulda, og því er síður en eigi
fortakandi að hún geti látið fyrirberast á
Islandi einn sumartíma; það væri að
minnsta kosti æði-djarft, að vera alveg ugg-
laus um það og fyrirhyggjulaus.
Ef svo illa á þá til að takast, að kólera
flytjist hingað með frönskum fiskiskipum í
vor eða sumar, þá verður að ganga að því
með hinu mesta fylgi, að varna öllum sam-
göngum við hina frönsku fiskimenn, svo
freklega sem við verður komið með nokkru
móti. En komist hún á land samt sem
áður, þá verður að reyna af fremsta megni
að stía heilbrigðu fólki frá þeim sem fengið
hafa sóttina, og gæta þéss vandlega, að
fötunum af veiku fólki, rúmfatnaði eða öðr-
um munum sje haldið öllu út af fyrir sig
og síðan hreinsað rækilega eða brennt, til
þess að sóttin nái ékki að festa rætur í
landinu.
Til þess að varna því, að sóttin dreifist út
um landið, ríður um fram allt á miklu
hreinlæti. Sjer í lagi ríður á, að láta
ekki mannasaur safnast fyrir í forum
eða salernum, heldur hreinsa allt þess-
konar jafnóðum og með stöðugri reglu og
vandvirkni. Sömu varúðar verður og að
gæta með skólp, hauga o. þ. h., því reynsl-
an hefir sýnt það fyllilega, að kóleran dafn-
ar hvergi betur og er hvergi skæðari en
þar sem jarðvegurinn er óhreinn af saurind-
um, skólpi og úrgangi frá hýbýlum rnanna.
Enn fremur er ákaflega mikið undir því
komið, þegar kólera gengur, að neyzluvatnið
sje verulega gott, laust við alls konar rotn-
unarefni, því að það hefir sannazt, að kól-
erusóttarefnið berst mjög með neyzluvatni.
I skýrslu þeirri, sem parlamentið enska
gaf út 1856 um kólerusóttina og útbreiðslu
hennar, er sagt frá merkilegu dæmi úr
Lundúnum fyrir því, hversu mikils neyzlu-
vatnið getur valdið um útbreiðslu kólerunn-
ar. Nokkuð af þeim hluta borgarinnar,
sem liggur fyrir sunnan Tempsá.fjekk neyzlu-
vatn sitt frá tveimur stórum vatnsaflafje-
lögum, er annað var kennt við Lambeth, en
hitt við Southwork & Vauxhall. Yatnsveit-