Ísafold - 04.03.1885, Page 1

Ísafold - 04.03.1885, Page 1
tour út á miSvihdajsmo^na. Verí árganjsins (55-60 arka) 4kr.: eriendis 5kr. Borgist Ijrit aiEjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsöjn (skrifl.) bundin viB áramót, 5- gild nema komin sje til útg. fyrir L okt. Af.qreiðslustofa : Isafoldarprentsm. i. sal. XII 10. ! Reykjavik, miðvikudaginn 4. marzmán. 1885. 37. Innlendar frjettir (skólaröð m. fi.) 38. Um p>ingvallalund. 39. Ný aðferð. Heljarför. 40. Auglýsingar. Brauð ný-losnað: Miklibær í Blönduhlíð 28/2 .. 1078. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I 2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12— 2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd, og ld. 4 — 5 Veðuratliuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen Febr. Marz Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. ánóttu um hád. fm. em. fm. em. M. 2vJ - 5 - 2 29 29 A hv d A hv d F. 26. - 4 - I 29 29,2 A h b A h b F. 27. - 6 - 5 29/1 30.1 N hv b N hv b L. 28. -14 - 8 30,3 30,4 0 b 0 b S. 1. _ - '5 - 6 30,3 30.2 0 b 0 b M. 2 - 15 - s 30,1 3°.' 0 b 0 b þ. 3- - 16 - 7 30,2 3°,2 0 b 0 b Umliðna viku hefir fremur verið stilling á veðri einkum síðari partinn; h. 25. var austan kafaldshilur hjer allan daginn; síðan hefir ver- ið hjart og heiðskírt veður og síðustu dagana logn; til djúpanna hefir opt verið norðanveð- ur, en þó eigi mjög hvass að sjá. í dag 3. hjart sólskinsveður, logn hjer en hvass á norðan til djúpanna; sjóharkan hefir verið mikil þessa vikuna. Snjór er hjer svo að kalla enginn nema stöku skaflar, sem rak saman h. 25. Reykjavík 4. marz 1885. Tíðarfar. Hjer hafa verið stillur fram undir viku, en frost talsvert, svo lítt fært er á sjó fyrir ísalögum. Að norðan og vest- an frjettist með póstum og vérmönnum, að veðurátta hafi breytzt um fyrri mánaða- mót til látlausra kafaldshríða á norðan. Úr Dölum skrifað t. a. m. 18. febr.: Hjer eru einlægt hríðarmoldir dag eptir dag núna að kalla samfleytt í 3 vikur. Sama segja ver- menn að norðan. Úr Rangárvallasýslu er Isafold skrifað 24. f. m.: Bptir hina ágætu hálfsmánaðar- hláku í janúar frysti aptur og rauk í norðan bálviður 27. jan. Var þá í Landssveit og á Rangárvöllum slíkt sandrok um hálfan mán- uð, til ll.febr., að líkast var sandkastinu vor- ið 1882. Ekki ber enn á veiki í skepnum af sandinum, því allir gáfu inni, en jarðir nokkrar fóru svo í kaf við það í sveitum þessum og aðrar skemmdust svo, sem áður voru óskemmdar, að óumflýjanlegt virðist að láta meta þær upp að nýju fyrir þing. Norðanáttin er enn, mjög köld og sendin. Allvíða er farið að tala um heyskort, ofan á það sem skorið var í vetur. Aflabrögð. Hið sama gjörsamlega fiski- leysi enn hjer innan flóa. En reytingur í Höfnum og á Miðnesi þegar gefur. Undir Jökli fiskilaust í allan vetur. Við Isafjarð- ardjúp bannaði gæftaleysi megnasta nær alla björg af sjó, en talsverður fiskur þar fyrir, þá sjaldan gaf að reyna. T. d. 500 fiskjar á skip í róðri, í fyrstu viku J>orra. Og hákarl mikill rjett upp í landsteinum. Vegna hins langvaranda aflaleysis og bág- inda-árferðis til landsins eru nú hin mestu bjargarvandræði í sjávarsveitunum hjer við Faxaflóa sunnanverðan, og eru hinar út- lendu hallærisgjafir eina líknin, enda kvað nú ganga drjúgum á þær hjá landshöfðingja. Maiintjón at' slysförum m. m. Mað- ur varð úti í Svínadal í Borgarfirði 6. f. m. smali frá Draghálsi. Daginn eptir varð stúlkubarn 15 vetra úti milli bæja frá Bollastöðum í Flóa ; var að sækja mjólk til næsta bæjar. Eptirfylgjandi sjóhrakningssaga er ísafold skrifuð af Snæfellsnesi 21. jan.: Hinn 12. þ. m. (jan.) fóru 6 menn frá Hall- bjarnareyri út að Bár til að sækja þangað sex- æring stóran og mófarm. En er þeir höfðu fermt skipið og voru að leggja frá landi skelldi á afspyrnuroki á sunnan. Freistuðu þeir þá að ná landi aptur litlu framar á nesinu og börðu þangað til sundur gengu þrjár árar. Var þá eigi annað fyrir en að ryðja af farminum og hleypa á segli skáhalt inn og norður til Hösk- uldseyjar, er liggur tvær vikur undan landi. Herti þá enn svo rokið, að seglin bæði rifnuðu gjörsamlega í pjötlur; náðu þó um dagseturs- bil svo nálægt lendingu í Höskuldsey, að eigi mundi meir en 20 faðmar til lands; en með því rokið herti enn, svo óstætt var á landi, var enginn kostur að ná þar landi. Varð þá eigi annað gjört en að láta reka á reiða með lítilli pjötlu af segli undan veðri og sjó vestur i flóa ; en það var all-ægilegt í slíku roki og svo miklu niðamyrkri, að ekki sást handa skil. Lögðust þá tveir hásetar fyrir af kulda og vosbúð, tveir hjeldu niðri árum að öðru hvoru og tveir stýrðu og jusu til skiptis. En kl. 11 um nóttina rákust þeir á land í Bjarneyjum, svo nærri lendingu, að furðu gegndi, enda höfðu þeir sjeð um nokkurn tíma áður ljós, þó þeir ekki væri vissir um, hvar það væri. Voru þá að eins tveir sjálfbjarga, en tvo varð að bera heim til bæjar, enda var annar þeirra nærri dauða, en lifnaði þó við aptur fyrir staka aðhlynningu. Skólaröð í Rvíkur lærða skóla eptir miðs- vetrarpróf 1885 (í febrúarlok). Tölurnar apt- an við nöfnin tákna ölmusustyrk, í krónum. VI. bekkur : 1. Jón Steingrímsson frá Reykholti. 200 2. Ólafur Pálsson frá Akri i Hvs. 200. 3. Adolph Nicolaisen frá ísafirði. 200. 4. Andrjes (ríslason frá Skáleyum. 200. 5. Árni Bjarnarson frá Höfnum í Hvs. 150. 6. Magnús Bjarnarson (frá Hofi í Vatnsdal) í Rvík. 200. 7. Ríkarður Torfason (veit.m.) í Rvík. 150. 8. Pjetur Hjaltested (járnsmiðs) í Rvík. 100. 9. Björn Blöndal (f.sýslum. (1. Bl.) í Rvík. 200. 10. þórður Olafsson frá Hlíðarhús. við Rv. 150. 11. tíuðl. Gruðmundss. frá Staðarhrauni. 150. 12. þórður Jensson (h. rektors) í Rvík. 13. Bjarni Einarss. frá Hrísnesi í Skfellss. 100. 14. Sigurður Jónsson (söðlasmiðs) frá ísaf. 100. V. bekkur: 1. Hannes þorsteinsson (frá Brú) í Rvík. 200. 2. Stefán Stefánsson frá Grundarfirði. 200. 3. Kjartan Helgason frá Birtingaholti. 200. 4. Jöhannes Jóhannesson(h. sýslum.)í Rv. 200. 5. Magnús Blöndal Jónsson (prests) frá Vogi á Fellsströnd. 200. 6. Árni Beinteinn Gíslason (h.adj.) í Rvik. 200. 7. Jóhannes Lárus L. Jóhannsson (h. pr. frá Hesti) í Rvík. 150. 8. Páll Einarsson frá Hraunum í Fljótum. 100. 9. Gísli Pjetursson frá Ánanaust. við Rv. 100. 10. Ólafur Finnsson frá Meðalfelli i Kjós. 200. 11. Jón Guðmundsson frá Syðra-Lóni í þing- - eyarsýslu. 150. 12. Sigfús Jónsson frá Víðimýri. 13. Jón Helgason (prestaskólakenn.) í Rvík 50. 14. Eggert Pálsson (frá Sogni í Kjós) i Rv. 100. 15. Árni Jóhannesson frá Ytra-Alandi í þing- eyjarsýslu. 200. 16. Jón Pálsson frá Dæli i Hvs. 100. 17. Theódór Jónsson (próf.) frá Auðkúlu í Hvs. 18. Hallgrímur Thorlacius (h. pr.) frá Hafsteins- stöðum í Skagaf. 100. 19. Andreas Jacobsen (frá Færeyj.) í Rvík. 50. IV. bekkur: 1. Guðmundur Bjarnarson frá Marðar-Núpi.200. 2. Jóhannes Daníelsson (próf.) f. Hólmum. 150. 3. þórður þórðarson frá Stað í Hrútafirði. 150. 4. Halldór Bjarnason f. Höskuldsst. í Hvs. 150. 5. Marinó Hafstein (h. amtm.) í Rvík. 100. 6. Jón þorvaldsson (pr.) frá Saurbæ á Hval- fjarðarströnd. 150. 7. Eggert Briem (sýslum.) i Rvík 50 8. Guðmundur Hannesson frá Eiðst. í Hvs. 9. Geir Sæmundsson (próf.) frá Hraung. 100. 10. þórður Guðjohnsen frá Húsavik. 11. Sigurður Magnússon (trjesmiðs) í Rv>k. 50. 12. Jón Arnason frá þverá í Húnavatnss. 100. 13. Einar Thorlacius frá Öxnafelli. 100 14. Ólafur Hjaltason Thorberg í Rvik. 15. Maguús Jónsson frá Laugabóli í ísafj.sýslu. 16. Olafur Helgason (pr.skólakenn.) í Rvík. 50. 17. Eiuar Stefánsson frá Krossanesi í Skgf. 50. 18. Ólafur Sæmundsson (próf.) frá Hraung. 50. 19. Beuidikt Eyjólfssou frá Stuðlum í Sms. 100. 20. Vilhelm Knudsen (verslunarm.) í Rvík. 50.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.