Ísafold - 06.05.1885, Page 1
íernur 61 á miðvikudajsmorjna. Ter?
árganjsins (55-60 arka) 4kr.: erlendis
5kr.
ÍSAFOLD.
öonsöp (skrifl.) bundin ní áramót, ð-
jild nema komin sje !il 6lj. fyrir L akl
iljreiöslustola ! Isafoldarprenlsm. L sal.
XII 20.
Reykjavík, miðvikudaginn 6. maímán
1885.
fiiigvallafundur.
í sainbandi við áskorun mína í „Isafold11
og „f>jóðólfl“ 4. og 9. febr. þ.á. auglýsist: að
laugardaginn 27.Júní næstk. kl. 10. f.m.verð-
Ur fundur settur og haldinn, ef fundarfært
verður, á hinum forna Alþingisstað við Öx-
ará í þingvallasveit, til að ræða og undir-
búa hinar helztu breytingar á stjórnarskrá
landsins. Fleiri landsnauðsynjamál verða
tekin til umræðu ef tími vinnst til. Skora
ég hjermeð á hina þjöðkjörnu þingmenn, að
þeir hver í sinu kjördæmi gangist fyrir
kosningu að minnsta kosti2 manna til að
mæta á fundinum sem erindsrekar þjóðar-
innar, eins og ég líka vænti þess, að þing-
menn muni flnna köilun hjá sjer til að
mæta á fundinum, hvort sem þeir verða
kvaddir til þess af kjósendum sínum eða
ekki.
Gautlöndum, 14. apríl 1885.
Jón Sigurðsson.
77. Innlendar frjettir.
78. Útlendar frjettir.
79. Othelló.
80. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvikur opinn hvern mvd og ld. 4— 5
Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J.Jónassen
April Maí Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu|umhád. fm. em. fm. em.
M. 29 + 4 + 9 29,6 29,5 A h d A h d
F. 30 + 3 +10 29.5 29,6 A h b A h b
F. 1 + 4 +10 3° 30,1 A h b 0 d
L. 2 + 2 + 8 30.2 30,3 A h b A h b
s- 3 + « + 9 30.3 30,4 N h b 0 b
M. 4 0 + & 30,4 30,5 N hv b N hv b
í*- 5 0 + 4 30,4 3°>4 N h b N h b
Alla vikuna hefii hann verió við háátt og al-
veg úrkomulaust; þó veður hafi verið með
hægð hjer, þá hefir alla vikuna verið norðan-
veður til djúpa; síðustu dagana hefir veður
verið kalt. 1 dag 5. bjart norðanveður, hægur,
en kaldur.
Reykjavík 6. mai 1885.
Póstskip kom, Laura, 30. f. m. Hafði
tafizt fjóra daga á Færeyjurn, á hringsóli
þar frani og aptur um eyjarnar, því Færey-
ingar hafa fengið hið íslenzka póstskip gert
að strandferðáskipi hjá sjér.
Laildsliöfðingi, Bergur Thorberg, kom
nú aptur með þessu póstskipi. Enn fremur
kaupmenn margir: H. Th. A. Thomsen
Steingrímur Johnsen, Jón 0. V. Jónsson
(fyrrum verzlunarstjóri fyrir Smiths-verzlun
hjer í bænum, nú orðinn eigandi þeirrar
verzlunar), Eyþór Felixson, þorbjörn Jón-
asson, Yalg Breiðfjörð, Kriiger lyfsali o. fl.
Alþingisnionn konungkjörnir. Istað
þeirra Bergs Thorbergs landshöfðingja og
Sigurðar Melsteð prestaskólastjóra, er hafði
beðizt lausnar frá þingmennsku sakir heilsu-
brests, hefir konungur kvatt til þingsetu 17.
f. m. Lárus E. Sveinbjörnsson yfirdómara
og sjera Hallgrímur Sveinsson dómkirkju-
prést.
Krossar. Landshöfðingi Bergur Thor-
berg, r. af dbr., sæmdur af konungi kom-
mandörskrossi dannebrogsorðunnar 14. f. m.
Síra Magnús Bergsson í Heydölum s. d.
gerður að riddara af dbr.; og sömuleiðis J.P.
T. Bryde stórkaupmaður í Iíhöfn en verzl-
unareigandi í Reykjavík og á Vestmanna-
eyjum, fyrir---------? ? ?
S. d. þessir gerðir dannebrogsmenn: Er-
lendur bóndi Pálmason í Tungunesi í Húna-
vatnssýslu, Eiríkur hreppstjóri Eiríksson á
Reykjum á Skeiðutn, Jóhannes bóndi por-
grímsson á Sveinseyri í Tálknafirði, og J'on
Amason bóndi og kaupmaður í þorlákshöfn.
Tíðarfar. Sem að líkindum ræður, úr
því að hafísinn fór að gera vart við sig, þá
hafa vetrarharðindin haldizt lengur norðan-
lands og vestan heldur en hjer syðra.
Hjer eru nokkrar tíðarfarsskýrslur úr ýms-
um hjeruðum landsins.
pingeyjarsí/slu 1. apríl: Hjeðan er ekkert
tíðinda nema nógan snjó og farið að brydda á
heyskorti hjá einstaka manni, og mjög hætt
við almennum vandræðum, ef ótíð gengur fram
á sumarið.
Akureyri 20. apríl: A öllum útkjálkum hjer
er mesti snjór og jarðleysur fyrir norðan Öxna-
dalsheiði, nema dálitlar suapir um miðbik
Eyjafjarðar, en tíð hefir verið óstöðug hingað
til. Flestir í Eyjafirði hafa haft hey hingað til,
en úr þessu fer fjöldinn að verða í þroti. I
þingeyjarsýslu er langt síðan einstaka maður
var uppi með hey og hafa þeir smámsaman
fjölgað. Sama er sagt af Austurlandi. Snjó-
kyngið er líka allt af meira eptir því sem norð-
ar og austar dregur.
Húnavatnssýslu 20. april: Tið yfir máta bág.
A laugardaginn fyrir páska gjörði að vísu hláku
með ofsa-sunnanveðri, en snjó sletti í á eptir,
sem tók upp daginn eptir og hjelzt bliðviðri
með lítlu frósti þar til á þriðjudag 14. þ. m.;
þá tók við sami norðansteytingur og dimmviðri.
Víða mjög haglítið og sumstaðar heylaust al-
veg. Hjer um slóðir eru nokkrar jarðir, en
víða mjög litlar og engar. Að mínu áliti má
vetur þessi teljast með hinum verstu hjer norð-
anlands, sem lengi hafa komið, já verri en hinn
svonefndi frostavetur (1881 ?), því þá kom vor
með vori, en þennan vetur vautar enu alla
vorblíðu.
Dalasýslu 18. apríl: Hjeðan er ekkert að
frjetta nema harðindi; þó engin stórvandræði
enn hjer í sýslu; allt er undir vorveðráttunni
komið; verði hún bærileg, munu menn nokk-
urn vegin bjargast með skepnur sínar; en
verði hún bág, er meiri eða minni skepnufellir
óumflýjanlegur, því að þorri manna er að þrot-
um kominn með hey.
Snœfellsnessýslu 18. apríl: Hjeðan eru mestu
vandræði að frjetta; heyleysi mikið, lítur út
fyrir fellir, og bjargarleysi manna á milli. Tíð-
in enn hin ískyggilegasta: alveg jarðlaust, og
nú norðangarður í 3 daga.
A Vestfjörðum hafa haldizt norðanbyljir
með frosti og fannkomu fram yfir sumar-
mál, eptir því sem frjezt hefir með pósti.
Póstur fór á ísi yfir Alptafjörð og Isafjörð,
og um Hvammsfjörð innanverðan var riðið
þvert og endilangt sunnudaginn fyrstan í
sumri; var allur lagður út undir eyjar.
Á alls einum bæ fyrir sunnan Bröttu-
brekku gátu póstar fengið hey handa hest-
um sínum ; svo var þröngt orðið um það.
þeir fóru því sjóveg af Akranesi til Rvíkur.
Til marks um það, í hvern voða komið
var hjer syðra sumstaðar áður en batinn
kom á páskunum, má geta þess, að á einum
bæ í Olvesi voru skornar 30 ær lambfullar
á föstudaginn langa.
Hafis var hvergi landfastur fyrir norður-
landi, og hafði enga tálmun gert siglingum
enda voru þar víða komin skip í f. m.; en í
brjefi af Akureyri 20. apríl segir svo: »Tvö
fiskiskip komu í gær, annað að austan, hitt
að vestan ; sögðu þau ísinn tvær mílur und-
an Skaga og sex mílur undan Sljettu*.
Aflahrögð. ‘Við Isafjarðardjúp byrjað-
ur allgóður reytingur, er póstur fór þaðan,
21. f. m. Hjer við Faxaflóa sunnanverðan
hætt að fiskast í net og almenningur búinn
að taka þau upp, enda sumstaðar friðlaust
með þau fyrir hinum frönsku fiskiskipum. Á
færi að eins vart; meira getur það ekki
heitið. — Austanfjalls fiskilaust alstaðar.—
En þilskipin hjer koma öll hlaðin hvað eptir
annað.
Strand. Hinn 30. f. m. strandaði
frönsk fiskiskúta í Grindavík. Menn kom-
ust allir af, 18 að tölu; og óskemmt það sem
í-skipihu var.