Ísafold - 17.06.1885, Blaðsíða 4
104
þar er Credaer prófessor, sem er alkunnur
fyrir jarðfræðisrit o. fl. Stjórnin í Sachsen
lætur gjöra nákvæman jarðfræðisuppdrátt
af landinu og fást 7 jarðfræðingar við það
starf, ferðast á sumrum og rita og rannsaka
steinana á vetrum. það var mjer til mik-
ils fróðleiks og skemmtunar að umgangast
alla þessa jarðfræðinga daglega. Auk jarð-
fræðis-iðkauanna var eg að gjöra uppdrátt
af Ódáðahrauni, sem kemur út í Gotha i
haust, reikna út hæðamælingar og fleira.
Jeg hefi verið hér nokkra daga í Halle;
bærinn er allsnotur og í honum margar
merkar byggingar, fornar rústir o. s. frv.
Jeg kom hingað til að tala við fríherra v.
Fritsch, próf. í jarðfræði við háskólann;
hann er nafnkunnur fyrir ferðir sínar og
eldfjallarannsóknir, hafði hann boðið mjer
til sín og tók mjer mjög vel, sýndi hann
mjer hæinn og söfnin og fór með mig til
ýmsra náttúrufræðinga annara, hefi jeg
dvalið mestan tíman hjer í Halle hjá hon-
um. Landbúnaðarháskólinn hjer er nafn-
togaður, þar eru gerðar margar tilraunir
til kynbóta og sá jeg þar fjölda af nautgrip-
um, kindum, geitum hestum, sem þar er al-
ið upp, framleiddir bastarðar og gerðar alls
konar tilraunir til að breyta tegundunum
eptir kenningum Darwins, eru þar margar
skepnur með skrítnu sköpulagi, sem hefir
myndazt við tilraunirnar. I garði þeim þar
sem tilraunir þessar eru gerðar, er á einum
stað hár veggur, mesta listasmíði, sýnir hann
jarðmyndanir allar og legu jarðlaganna, og
er hvert jarðlag gert úr þeim steini, sem
því er eðlilegur. I Hallé hitti jeg og Hugo
Gering, hann er þar prófessor í norrænu og
hefir margt skrifað og gefið út af fornum
fræðum, hjá honum var jeg einn daginn,
meðal annars gekk hann með mjer fram
með Saale til að sýna mjer landslagið, fell-
ur áin þar milli hamra og eru klettarnir víða
fagurlega skógi vaxnir; bátar margir voru
á ánni og sumstaðar skip full af stúdentum,
sem skemmta sjer og drekka bjór úti á ánni.
AUGLÝSINGAR
í samleldu máli m. smáletri kosla 2 a. (þakkaráv. 3a.) hvert orð 15 slaia frekast
m. 53ru lelri e!a selainj 1 kr. i.rir þumlunj dálks-lenjdar. Borgnn úl i hönd
Uppboð.
Föstudaginn hinn 26. þ. m. og eptír-
fylgjandi dag verður í húsum agents Guð-
mundar Lambertscns sdl. í Vallarstrœti hér í
bænum selt við opinbert uppboð, er byrjar
kl. 10 f. m., ýmislegt lausafje, svo sem bús-
gögn, smiðatöl, bœkur,þakhellur o. s.frv.,og
ennfremur 2 kýr og 1 hestur.
Skilmálar fyrir uppboði þessu verða aug-
lýstir d uppboðsstaðnum d undan uppboðinu.
Bœjarfogetinn i Iieykjavik 15. júni 1885.
E. Tli. .Jónsmci*.,
Uppboð.
Miðvikudaginn hínn 24. þ. m. d hddcgi
verður að Móhúsum hjer í bænum opinbcrt
uppboð haldið og þar selt hœstbjóðanda, ef
viðunanlegt boð fæst, eign ddnarbús Guð-
mundar Lambertsens sdl.,Móhús, með túni d-
samt engjastykki i Tjarnarendanum. Skil-
mdlar fyrir uppboði þessu eru til sýnis d skrif-
stofunni hjer 3 dögum d undan uppboðinu og
verðabirtírd uppboðsstaðnum fyrir uppboðið.
Skrifstofu bæjarfógeta í Rvík 15. júni 1885.
E. Th. Jónassen.
peír, sem kunna að hafa dtt úr í viðgerð
hjd Lambertsen sdluga, eru beðnir að vitja
þeirra á skrifstofu bæjarfógetans.
Bœjarfógetinn í Reykjavík 16. júní 1885.
E. Th. Jónassen.
Verzlun Símonar Johnsens.
Frá byrjun þ. á. hefi jeg tekið við
þessari verzlun, og skora jeg á alla, er
skulda tjeðri verzlun, að greiða rnjer
skuld sína nú í kauþtíð, eða semja við
mig nú þegar um lúkningu á skuldmni.
Að öðrum kosti mun jeg lögsœkja þá.
Eins og að undanförnu. hefi jeg til
sölu vín, vindla, cigaretter o. fi. jrá
þeim Kjær & Sommerfeldt.
Reykjavík 16. júní 1885.
Stelngrímur Jolmsen.
Mánudag 22. þ. m. óskajeg að eiga
f'uild við kjósendur mína, til undirbún-
ings undir fnngvallafund og alþingi,
sjerstaklega til þess að kjósa menn á
þúngvallafund fyrir Reykjavikurkjör-
dæmi. Fundurinn verður haldinn í
þinghúsi bæjarins (borgarasalnum) og
byrjar klukkan 4 e. m.
Reykjavík 16. d. júnímán. 1885.
H. Kr. Friðnksson.
Almennur safnaðarfundur
fyrir Reykjavíkur prestakall verður haldinn sunnu-
daginn 2t. júni, kl. 4, i dómkirkjunni, til þess að
ræða þau kirkjleg málefni, sem samkvæmt lögum
1 27. febr. 1880 bera undir safnaðarfund.
Hallgrímur Sveinsson.
llotel ,,Ingólfur“.
Undirskrifaður leyfir sjer að vekja atliygli ferða-
manna að hotellinu Ingólfi i Eyrarbakka. Góður
beini. Vægt verð. Herbergi með húsgögnum og
friðri útsjón fæst til leigu i sumar.
Eyrarbakka 11. júni 1885.
J. A. Jacobsen.
1 kanselí-deild ins hda rettar.
Vara-kanseleri Bacon.
í málinu viðkomandi félaga-skránum 18l>2 og 18fi7.
í málinu: Ið íslenzka brennisteins & kopar-
félag. Takmarkað.
Skuldhcimtumennirnir i of^nnefndu félagi
innkallast til þess þami 24. júní I880 eða áðl:.
að senda nöfn sín og heimilisstöð og sannanir
þær, er þeir byggja kröfur sínar á, einnig nöfn
og heimili málsfærslumanus síns (ef þeir hafa
nokkurn) til John Folland Loveriug, 77 Cirres-
ham Str. í London, sem er útnefndr umboðs-
maðr (kúrator) og skuldkljáari af hendi ins
opinbera 1 téðu félagi, og, ef það verðr heimt-
að með skriflegri tilkynningu frá nefndum op-
inberum skuldkljáara, þá að láta málsfærslu-
mann sinn mæta á þeim tíma, er nánara yrði
tiltekinn í tilkynningunni, í kammeri vara-
kanselara James Bacon’s í inum kgl. hirðrétti,
Strand, London, til þess kröfur þeirra verði
rannsakaðar. Ella verða þeir útilokaðir frá
skiftunum, þar til kröfur þeirra eru prófaðar.
Mánudaginn 6. júlí kl. 12 á hádegi er fundr
ákveðinn í téðu kammeri til að rannsaka og
úrskurða kröfur þær, se:u þá verða fram
komnar. Dagsett 9. maí 1885.
E. Lionel Clarke
skrifstofustjóri.
Gasquet & Mecalfe
9. Idol Lane, Eastcheap, London,
máfsfærslumenn ins opinheraskuldkljáara.
Til almennings!
Læknisaðvörun.
f>ess hefir verið óskað, að ég segði álit mitt
um „bitter-essents’1, sem hr. C. A. Nissen hefir
búið til og nýlega tekið að selja á íslandi og
kallar Brama-lífs-essents. Ég hefi komizt yfir
eitt glas af vökva þessum. Ég verð að segjs;
að nafnið Brama-lífs-essents er mjög vill-
andi, þar eð essents þessi er með öllu ólikr
inum elcta Brama-lifs-elixir frá hr. Mans-
feld-Búllner & Lassen, og því eigi getr
haft þá eiginlegleikn, sem ágæta inn egta.
f>ar eð ég um mörg ár hefi liaft tækifæri til, að
sjá áhrif ýmsra bittera, en jafnan komizt að
raun um, að Brama-lífs-elixír frá Mansfeld-
Bullner & Lassen er kostabeztr, get ég
ekki nógsamlega mælt fram með hnnum
einum, umfram öll önnur bitterefni, sem ágætu
meltingarlyfi.
Kaupmannahöfn 30. júlí 1884.
E. J. Melchior,
læknir.
Einkenni ins óekta er nafnið C. A.
NISSEN á glasinu og miðanum.
Einkenni á vorum eina egta Brama-
lífs-elixir eru firmamerki vort á glasinu, og á
merki-skildinum á miðanum sést blátt ljón og
gullhani, og innsigli vort MB & L i grænu
lakki er á tappanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
sem einir búa til inn verðlaunaða
Brama-lífs-elixir.
KAUPMANNAHÖFN. [4r.
Nærsveitamenn eru boðnir að vitja
ísafoldar á afgreiðslustofu hennar, sem er
í ísafoldarprentsmiðju, við Bakarastíginn,
1. sal; — nema Seltirningar í búð N. Zim-
sens (Knudtzons verzlun), og Kjósarmenn
og Kjalnesingar í búð S. Johnsens.
Ritstjóri Björn Jónsson, eand. phil.
Prentsmiðja ÍSáfoldar.