Ísafold - 01.07.1885, Side 1

Ísafold - 01.07.1885, Side 1
taur nl á miSrikndajsinorpa. Verí irjanjsins (55-60 arkal 4kr.; erlendis 5kr. Borjisl [jrir miðjan jnlímánnJ. ISAFOLD. Uppsöjn (skrifl.) bundin vií áramót, 6- jild nema komin sje lil ólj. Ijrir 1. okt. Msreiöslustoía i Isafoldarprenlsm. i. sal. XII 28. 109. Innlendar frjettir (—pingvnllafundur). Ul. |>ingvallasöngur. Fcróapistlar eplir J>orvald Thoroddsen. II2. Auglýsingar. Forngripasafnið opið hvcrn mvd. og ld. kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2 útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4—5 Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen Júaí Hiti (Cels.) Lþmælir Ve lurátt. ánóttu|um hád. fm. em. fn.. em. M. 24. + 3 + 7 30 29,8 Nv hv b Nv hv b F- AS. + 5 + 9 29.7 29.7 Sa hv d Sa h d F. 26. + 8 4 10 29.9 29,9 Sa h d S h d L. 27. + 6 + 10 29,9 29.9 S h d S h d S. 28. + 5 + 8 30 30,1 Sv h d 0 b M. 29. + 5 + 12 29,8 29.8 0 b 0 b Þ- 30- + 6 + 8 S h d S h d Umliðna viku hefir optast verið við sunnan átt með talsVerðri úrkomu en liægð á veðri, sudda- rigning, I dag hægur á sunnan með sudda, dimm- ur mjög í morgun. Reykjavík I. júlí 1885. Alþingi sett. þingið var sett í dag á hádegi, af landshöfðingja Bergi Thorberg, í umboði konungs. Byrjaði á guðsþjónustugjörð í dómkirkj- unni. Konungkjörinn þingmaður, dóm- kirkjuprestur síra Hallgrímur Sveinsson stje í stólinn. Eptir að alþingismenn voru saman komn- ir í Alþingishúsinu, í þingsal neðri deildar, aliir nema þeir Holger kaupm. Clausen og Magnús prófastr Andrjesson, sem enn eru ókomnir til þings, las landshöfðingi upp um- boðsskjal sitt og boðskap konungs til al- þingis dags. 22. maí. Að því biinu lýsti landshöfðingi því yfir í nafni konungs, að hið 6. löggefandi alþingi Islendinga væri sett. þá stóð upp Jón Sigurðsson frá Gaut- löndum og mælti: »Lengi lifi konungur vor Kristján hinn níundi!«, og tóku þingmenn undir það níföldu hirra. Síðan gekk hinn elzti þingmaður, biskup P. Pjetursson, til forsetasætis, og gekkst fyrir kosningu forseta hins sameinaða al- þingis, að aflokinni prófun kjörbrjefa, er voru tekin gild í einu hljóði. Forseti hins sameinaða alþingis varð, eptir þrítekna kosningu, Árni Thorsteinsson, fyrir hlutkesti milli hans og síra Eiríks Briem prestaskólakennara, er hlutu 16 at- kvæði hvor í þriðju kosningu. Varaforseti í sameinuðu þingi varð yfir- kennari H. Kr. Friðriksson með 20 atkv., en skrifarar í sameinuðu þingi Eiríkur Briem og Eiríkur Kúld. Reykjavik, miðvikudaginn 1. júlimán. þá var kosinn maður í efri deildina, í stað Stefáns heitins Eiríkssonar, úr flokki hinna þjóðkjörnu þingmanna, og hlaut þá kosningu Jakob Guðmundsson með 28 atkv. I ferðakostnaðarreikninganefnd voru þvi næst kosnir Einar Asmundsson, Grímur Thomsen, Tryggvi Gunnarsson, Eiríkur Kúld og Magnús Stephensen. þá skildu deildirnar. Efri deild kaus sjer forseta biskup P. Pjetursson í einu hljóði, varaforseta Arna Thorsteinsson landfógeta með 6 atkv., skrif- ara M. Stephensen og Hallgr. Sveinsson. Forseti í neðri deild varð Grímur Thomsen með 12 atkv.; næst honum hlaut Jón Sig- urðsson frá Gautlöndum 7 atkv. Varafor- seti í neðri deild varð Tryggvi Gunnarson með 14 atkv. (Jón Sigurðsson 7), en skrifar- ar Eiríkur Kúld og H. Kr. Friðriksson. Landshöfð. skýrði frá.aðhannmundi leggja fram 18 stjórnarfrumvörp, og eru þau flest áður talin (ísaf. 10. júní). Ótalið frumv. um prestakosningu, sölu þjóðjarða, tvenn fjár- aukalög og tvenn reikningssamþykktarlög. Fundi slitið kl. 4. e. m. Alþiligiskosning. í Austur-Skapta- fellssýslu var kosinn alþingismaður að Borg- arhöfn 16. maí síra Jón prófastur Jónsson í Bjarnanesi með 35 atkv. af 51, er kjörfund sóttu. Næst honum hlaut Sigurður hrépp- stjóri Ingimundarson á Fagurhólsmýri 10 atkv. Hæstarjettardómur. Hæstirjettur hefir dæmt 8. f. m. í sakamálinu gegn þor- steini kaupmanni Guðmundssyni á Akra- nesi, og komizt að sömu niðurstöðu að því er hegninguna snertir, 9 mánaða betrunar- húsvinnu, en byggir dóminn á allt öðrum grundvelli. Prestaskólinn. Forstöðumaður presta- skólans, lector theol. Sigurður Melsted, hefir sótt um lausn frá embætti frá byrjun næsta skóla-árs. vegna heilsubrests (sjón- leysis). Próf var haldið í prestaskólanum 25. og 26. f. ru., yfir 15 prestaskóla- og læknaskólamönnum. Agœtlega fjekk Bjarni Pálsson ; ágætl. 4- fengu Björn Jónsson, Hálfdán, Guðjónsson og Skúli Skúleson; dável: Arni þórarinsson, Björn Ólafsson og Kristján Jónsson; dável-^ : Arnór Arna- son, Hannes L. þorsteinsson, Pálrni Páls- son og Tómas Helgason; vel + : Guð- mundur Scheving og Páll Stephensen; vel: Halldór Torfason og Ólafur Stephensen. ■ 1885. Latínuskólinn. Skóla sagt upp í gær. Nýsveinapróf daginn áður í 1. bekk og teknir inn 14, en áður tveir í 3. bekk (Sæmundur Eyólfsson búfræðingur og þor- lákur Jónsson frá Gautlöndum), og tveir í 2. bekk. Alls 18. Merki íslamls. Hinn 25. f. m. hjelt herra stud. mag. Valtýr Guðmundsson frá Khöfn fróðlegan fyrirlestur hjer í hótel Ís- land í Beykjavík um merki lslands. Hann leiddi meðal annars rök að þvf, að hinn danski fáni hefði aldrei verið í lög tekinn hjer á landi. En vildi ísland ekki allt af láta allar aórar þjóðir skoða sig sem lands- hluta úr Danmörku, væri óumflýjanlega nauðsynlegt fyrir það að fá sjerstakan fána og jafnframt að konungur taki nafn ís- lands upp í titil sinn. Honurn leizt bezt á að hafa fálkamerkið fyrir þjóðfána íslands, og taldi fram líkur fyrir því, stjórnin í Danmörku mundi eigi verða því móthverf, að vjer fengjum sjerstakt merki. Vildi hann að samin væri lög um það efni, og skyldi þar tekið fram, að fálkamerkið væri tekið upp í hið samein- aða ríkismerki og á framhlið alþingishússins og turn dómkyrkjunnar í stað þorsksins, að það sje löggilt sem þjóðfáni lslands, og gildi sem verzlunarfáni alstaðar á íslandi; að það gildi alstaðar í útlöndum sem verzlunarfáni íslands, með því móti að í horni þess sje markað sambandsmerki, er Danir taki einnig upp í sinn verzlunarfána. Fyrirlesturinn var mikið vel sóktur, eptir því sem hjer gerist. Vesturfarlr. Gufuskipið Anglia, frá Slimon í Leith, kom hjer 28. f. m., norðan frá Sauðárkrók og Borðeyri; hafði flutt þangað vörur til pöntunarfjelaganna nyrðra og tekið aptur um 40 vesturfara. Hjeðan fer það í kvöld með 40 vesturfara í viðbót og talsvert af hestum. Norskt gufuskip, Agdanœs, kom hjer frá Seyðisfirði 26. f. m. og fór austur apt- ur í fyrra dag. Með því kom hingað frí- safnaðarprestur síra Lárus Halldórsson frá Eskifirði og Jóel kaupmaður Sigurðsson. þýzkt lierskip, er Moltke heitir, frei- gáta, kom hingað 28. f. m., nýbyrjað á ferð kringum jörðina, sem gert er ráð fyrir að standa muni 2*/g ár. Yfirforinginn heitir v. Stuhenrauch; eru skipverjar nær 500 að tölu, þar á meðal 37 foringjaefni. Embættisprófi í læknisfræði hjer í lieykja* vík lauk Ótufur Guðnunilsson í dag uieð 1. einkunn (98 stig). '* '• í • ; • "•1 1 i >! 'Ki' I

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.