Ísafold - 15.07.1885, Blaðsíða 1
J
Jeuu úl i miðvikulajsmorgna. VerC
árgangsins (55-GQ arka’l 4kr.: erlendis
5 kr. Borgisl Ijrir miBjan júl:mánu3.
ISAFOLD.
OppsójD (skrifl.) bundin við áramótó-
gild nema komin sje lil úlg. tjrir L okt.
Aígreiíslustola i Isaíoldarprenlsm. 1. sal.
XII 30.
Reykjavík, miðvikudaginn 15. julimán.
1885.
117. Innlendar frjettir. Kvæði. Útlendar frjettir.
118. Selaskotamálið 4 Breiðaflrði.
119. Alþingi.
120. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvikur opinn hvern mvd og ld. 4 — 5
Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Hiti (Cels.)
Lþmælir
Veðurátt.
Júlí ánóttu|umhád. fm. em. | fm. em.
M. 8. + 4 + 12 29,6 29,7 Nv h d A h d
F. 9. + 7 + 14 29,3 29.3 A h b N h d
F. 10. + 6 4 10 29.5 29.7 N hv b N h b
L. 11. + 3 + 9 29,9 30 N h b 0 b
S. 12. + 6 + 9 30 29.9 1) b V h b
M. 13. + 7 + 10 29,9 29.9 V h d A h. d
p. lú + 7 + 10 29,6 29,6 A h d A h d
Einlægt er sami kalsi í verðinu og því almennt
gróðrarleysi. Fyrri part vikunnar var hann um tima
við norðanátt, optast hægur, síðari partinn við aust-
anátt með nokkurri úrkomu. I dag, 14., hægur á
austan, dimmur, en þó úrkomulaus hjer fram yfir há-
degi, en síðan suddarigning fram yfir nón.
Reykjavík 15. júlí 1885.
BókinenntafjclagsfuiHlur var hald-
inn hjer í B.víkurdeildinni, ársfundur, 8.
júlí, og var mjög fjölsóttur (80-90).
Tillaga um að leggja niður Frjettir frá Is-
landi sem sjerstakt rit, en hafa þær í Tíma-
riti fjelagsins, var felld með atkvæðafjölda.
Sómuleiðis fellt að leggja þær alveg niður,
og eins að hafa þær aptan við Skírni.
þar á móti var samþykkt að borga meiri
þóknun en áður fyrir sumar þýddar ritgjörðir
í Tímaritið, allt að 30 kr., eptir tillögum rit-
nefndarinnar.
»Heimflutningsmáhð« (Khafnardeildarinn-
ar) skýrði forseti frá, að enn væri í sömu
sporum ; að eins mundi, eptir því sem K.-
hafnardeildin hefði látið á sjer heyra, mega
reiða sig á, að málið yrði borið þar upp til
fullnaðarúrslita á ársfundi í vetur.
Embættismenn og varaembættismenn
voru allir endurkosnir. Bitnefnd Tímarits-
ins sömuleiðis, nema Jón Olafsson ritstjóri,
og var í hans stað kosinn Dr. Björn Olsen.
Fiskiveiða.samþykktar-tilraun sú, er
gera skyldi í gær á hjeraðsfundi í Hafnar-
firði, og boðuð var í ísafold 3. og 10. júní
þ. á., ónýttist gjörsamlega, með því að eins
75 fundarmanna greiddu atkvæði með frum-
varpi sýslunefndarinnar, en 40 á móti; en
f atkvæða þarf að lögum, svo að gilt sje.
Fruinv^rpið var um ýsulóðabrúkun, og er
skýrt frá efni þess í ísafold 3. júni; það
má nú »ekki koma fram í nýju frumvarpi
sýslunefndar fyr en að ári liðnu«, sbr. lög
14. des. 1877.
Camoens, hrossakaupaskip Shmons í
Leith, kom hjer í fyrra dag frá Skotlandi,
með kol og marga ferðamenn. Fer aptur
18. þ. m. norður fyrir land, og tekur hross
og vesturfara bæði hjer og nyrðra.
Tíðarfar bágborið í meira lagi. Fram-
úrskarandi kuldasamt, og grasvöxtur því
með lakasta móti.
Grullbrullaup. *Mánudaginn 22. f. m.
(júní) hjeldu þau prófastur síra Stefán |>or-
valdsson Stafholti og kona hans frú Ingi-
björg Jónsdóttir hinn 50. giptingardag sinn
hátíðlegan þar á heimili sínu. I fjarveru
hjeraðsprófastsins síra Magnúsar Andrjes-
sonar á Gilsbakka, sem ætlað hafði að halda
ræðu við þetta tækifæri, var síra Jónas
Guðmundsson á Staðarhrauni beðinn að tala
í hans stað, og flutti hann þá ræðu í kirkj-
unni og tók því næst hin háæruverðugu
hjón til altaris. Að því búnu var fjörugt
samsæti í heimahúsum, sem stóð fram á
nótt. Meðal hinna boðnu voru flestir prest-
ar úr prófastsdæminu, auk sýslumanns og
hjeraðslæknis og eins prests utanhjeraðs.
|>etta gullbrullup hinna háöldruðu hjóna,
sem um leið var hálfrar aldar vígslu-júbil-
dagur hins háæruverðuga öldungs, er tilefni
til kvæðis þess, sem hjer fer á eptir:
Hnígur sól af himins braut
hallar lífsins degi,
hún við nákalt norðurskaut
nemur staðar eigi:
eptir nætur dimma dvöl
dagm aptm ljómar,
og í geislum aldan svöl
endurrisin hljómar.
Svo er lífsins brautin breið
brugðin tvennum högum :
morgunstund og myrkra-leið
munduð föstum lögum.
Heill sje þeim sem hálfa öld
hafa saman hfað —
og við þeirra æfikvöld
er nú þetta skrifað.
Heill sje ykkur, hjónin góð!
Herrann ykkur ljeði
langan dag og lukku-sjóð,
lán og frið og gleði !
Hvað er betra heimi í ?
Hvað er makt og auður?
Hjóm og litur, hverfult ský,
, hræfar-eldur dauður !
Heill sje þjer, þú Herrans þjón !
Hann þig geisla skrýði!
þig hefir alið frera frón
fósturjarðar prýði!'
þú hefir hálfa þessa öld
þjónað Drottins veldi,
huggað marga’ og hjörtun köld
hitað guðdóms eldi!
f>ín var ávalt unaðs-lind:
elska, trúa og vona;
fjölda varstu fyrirmynd
föðurlandsins sona !
Yfir Islands fjöllin fer
fegins-blærinn hlýi,
er þau lukku óska þjer
öll með gullnu skýi.
13. G.
t
Utlendar frjettir.
Khöfu 4. júlf 1885.
Danmörk. Nóg er mn fundamótin,
en tíðindum ekki nær. Hægrimenn segja
um sig hið sama og hinir, að þeir sjeu að
berjast fyrir ríkislögunum og frelsinu. þetta
er textinn hjá báðum—og ræður hvorra
um sig ofboðs-sviplíkar, þær á fyrsta og
fertugasta fundi. Sömu pokaþulur á mörg-
um annexíum!
það þó til tíðinda á einum fundi vinstri-
manna, í Holstebro, að löggæzlustjóri bæj-
arins var leiddur nauðugur niður af set-
hjallinum, þar sem fundarstjórinn og ræðu-
menn stóðu. Mál höfðað gegn þeim, er
hendur lögðu á embættismanninn, og þeir
nú færðir í varðhaldi til Kaupmannahafnar.
Iðnaðarsýning haldin í Odense. Kon-
ungur þaðan nýkominn.
Noregur. |>ingi slitið fyrir skömmu.
f>ví til orðs lagt—og jafnvel Sverdrúp sjálf-
um—að meiri hlutinn neitaði Alexander
Kjelland um áþekk heiðurslaun, sem þeim
Björnstj. Björnson, Henrik Ibsen og Jón-
asi Lie eru veitt; en það er til ástæðu fund-
ið, að skáldsögur Kjellands væru með of
miklum fríhyggjublæ, spilltu trúrækni
manna og góðum siðum. Hið sama hafa
menn reyndar fundið að skáldritum þeirra
Björnsons og Ibsens á seinni árum. Hinn
fyrnefndi hefir ritað grein í »Verdens Gang«,
og ekki að eins veitt þinginu þungar átöl-
ur, heldur sagt, að hann vildi ekkert af því
nggja framvegis, ef Kjellaud yrði aptur
sóma synjað.