Ísafold - 29.07.1885, Síða 4
128
á engjunum fram með Pó og utan í hlíðum
Appenniuafjalla er alstaðar verið að heyja; i
voru víða, er vjer fórum fram hjá, hópar af,
stúlkum í mislitum þjóðbúningum að raka
heyinu saman í stóra rifgarða og víða var
búið að hirða. Frá Túrin liggur brautin
um hálsa og hæðir til Asti, svo um sljettur
allt suður undir bæinn Novi. þar fyrir
sunnan tekur við meginfjallgarður Ap-
pennína; eru fyrst framan af skógi vaxnir
hæða hryggir og svo smá hækkar er sunn-
ar dregur; er náttúran mjög svipmikil, hlíð-
arnar með fegursta gróðri; þorp í lautun-
um, þverhnýpt gljúfur, gil og fossar, þar
eru víða stórar brýr og mörg járnbrautar-
göng gegnum bergin; því nær sem dregur
Genua því fegra er yfir að líta; skrautlegir
sumarbústaðir rlkismanna vír Genúa sjást
alstaðar á hæðunum og í gilskorunum inn-
an um skóg og kletta.
Hundar valda sullaveiki. Herra ritstjóri !
Mætti jeg ckki biðja yður uni að ]já línuni þessum
rúm i blaði yðar: A tveim bæjum fyrir austan
(jeg nafngreini þá ekki) var sjerstaklega h; ldið
upp á hunda og börnin einlægt látin vera að leika-
sjer að þeim og þeir látnir mjög opt sofa i rúm-
unum. Á ööru heimilinu ólst upp piltur sem varð
sullaveikur og dó ungur eptir miklar þjáningar;
á hinu heimilinu ólust upp 3 börn, 1 telpa og 2
drengir; systirin er dáin úr sullaveiki, en 2 bræð-
ur lifa, báðir sárþjáðir af sullaveiki. Er þetta
eigi hin alvarleyasta áminning um aðhafa nákvæma
aðgæzlu á þvi, að láta börnin eiga sem minnst
viö hunda og yfir höfuð að tala gæta allrar þeirr-
ar varúðar, sem svo opt er búið að brýna fyrir
almenningi.
Rvik 18/j—85. J. Jónassen Dr. med.
Styrkur til sagnfræðisstarfa. í 21. blaði
„Suðra“ frá 16. júlí þ. á. segir ritstjórinn: „Páll
Melsted sækir um 2000 króna styrk á ári til að
gefa sig við sagnfræðisstörfum“. þetta má mis-
skilja á þann veg, að eg biðji um styrkinn, en ætli
mjer eptir sem áður—þótt jeg fengí hann—'að halda
áfram minum prókúratorstörfum og taka laun fyrir,
En slíkt hefir mjer alls eigi til hugar komið. það,
sem jeg fer fram á i bænarskrá minni til alþingis,
er, að eg megi gefa mig eingöngu við sagnafræði
þá stund, sem eptir er æti minnar, og mjer vinnst
dugur til. það er með öðrum orðum : megi los-
ast við öll prókúratorstörf, en verja óskiptum kröpt-
um minum i sögunnar þjónustu; kenna hana i
skólanum eins og áður, og rita fyrir alþýðumenn
vora.—
Rvík 17. júlí 1885. Páll Melsted.
Sunnudaginn 2. ágúst kl. 5 e. h. verð-
ur að forfallalausu afhjúpaðr minnisvarði
Hallgríms Péturssonar hjá dómkirkjunni.
Biskup landsins heldur ræðuna; skáldið
Steingrímr Thorsteinsson hefur ort kvæð-
ið; söngfélagið „Harpa“ og hornblásendr
hafa heitið sinni góðu ad3toð við pcita
hátiöiega tækifæri.
í samfeldc máli ;n. smálelri kosla. 2 a. (þakkaráv. 3a.) hverl uri 15 slsía irei.asl
m. öðru leiri eía setnmg 1 kr. Lrir jmalpj dálks-lengdar. Borgun úl; hand.
Fyrirlestur.
Sjera Jakob Cluðmundsson heldur fyrirlesturi
vum þgöingu konunnarJyrir þjóöfjelagiö einkunv
heimilislífiöu, i garnla alþingissalnuin í Latínu-
skölanum, föstudaginn 31. júli kl. 8’/2 e. m.
Inngöngumiðar á 25 aura fást hjá bóksala
Kr. 0. þorgrímssyni föstudaginn frá kl. 4—7 e.
m. og við innganginn.
Agóðinn fellur í sjóð Thorvaldsensfjelagsins.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn h. 10. ágúst verður upjtboð
haldið á hádegi hjá bce Magnúsar Einarsson-
ar við Klapparstig hjer í bœnum og þar boð-
inn upp bœr þessi og seldur hœstbjóðanda,
ef viðunanlegí boð fœst. Kaupandinn getur
komist í bceinn undir eins eptir uppboðið.
Skilmálar fyrir sölunni verða auglýstir á
uppboðsstaðnum fyrir uppboðið.
Bæjarfógetinn í Reykjavík liinn 27. júlí 1885.
E. Th. Jónasscn.
Uppboðsauglýsing.
Föstudaginn hinn 21. ágústmán. næstkom.
verður á hádegi opinbert uppboð sett og hald-
ið hjá húsi Gxiðrúnar sál. Jónsdóttur við
Vegamótubru (»Hólshús« nefnt) og verður
þar boðið upp og selt hœstbjóðanda nefnt
hús, ef viðunanlegt boð fœst.
Skilmálar fyrir sölunni eru aðgengilegir
og skal þess getið að 400 kr. af láni, er
hvilir á húseigninni, máfyrst um sinn standa
í eigninni.
Skilmálar eru til sýnis á skrifstofu bœjar-
fógetans 8 dögum fyrir uppboðið og verða
einnig birtir á uppboðsstaðnum.
Bæjarfógetinn i Reykjavík hinn 27. júlí 1885.
E. Tli. Jónassen.
A strandferð póstskipsins Laura í júnimánuði
þ. á. hefir tapast gulmálað koffort innihaldandi
kvennfatnað, bækur o. fl. Við koífortið átti að
vera bundinn seðill með áskript: Skúlina Hlíf
Stefánsdóttir, Passagergods Stykkisholm. J>eir seni
kynnu að veróa varir við kúffort þetta eru beðnir
að gjöra bókhaldara Jóhannesi Stefánssyni í Stykk-
ishölmi eða skrifara Sighvati Bjarnasyni í Reykja-
vík aðvart um það.
Brúnn hestur fremur stór 12 —13 vetre, ó-
járnaður, óaf-fextur, vel vukur, með mark : biti apt-
an vinstra (granngert), hvarf frá Hraunsá um síðast-
liðin vetrarvertíðarlokj og er hver sem finnur beð-
inn að koma honum, mót sanngjarnri bórgun, til
Páls KyjóljssonarVi að íragerði í Stokkseyrarhverfi-
•- i, i ■ \ I - . .. —L'f -*-r.-
Fjármark Jóbatíúésar sýshmanus .Olafs-
souar á Reýnistað: ■ \
1) Hamrað biti fr. h.—hvatt vinstra; eða
2) Ilvatt biti fr. hœgra—geirstýft vinstra.
Fornleifafjelagið.
Aðalfundur í fjelaginu verður haldinn á
alþingissalnum í lcerða skólanum mánudag-
inn þann 3. ág. 1885 kl. 5 e. h. Varafor-
maður fjelagsins Sig. Vígfússon skýrir frá
ýmsu um forn vopn og sýnir myndir af þeim.
Skýrslur og reikningar lagðir fram og nýir
stjórnendur kosnir.
Til almeimings!
Læknisaðvörun.
þess hclir verið óskað, að ég segði álit mitt
um „bitter-essents'* 1, sem hr. C. A. Nissen hefir
búið til og nýlega tekið að selja á íslandi og
kallar Brama-lífs-essents. Ég hefi komizt yfir
eitt glas af vökva þessum. Ég verð að segjs,
að nnfnið Brama-lífs-essents er mjög vill-
andl, þar eð essents þessi er með öllu ólíkr
inum ekta Brama-'ífs -eiixir frá hr. Mans-
feld-Búllner & Lassen, og því eigi getr
haft þi eiginlegleika, sem ávæta inn egta.
þar eð ég um mörg ár hefi haft tækifæri til, að
sjá nhrif ýmsra biltera, en jafnan komizt að
raun um, að Brama-lífs-elixír frá Mansfeld-
Bullner & Lassen er kostabeztr, get ég
ekki nógsamlega mælt fram með honum
einum, umfram öll önnur bitterefni, sem ágætu
meltingarlyfi.
K.aupmannahöfn 30. júlí 1884.
E. J. Melchior,
læknir.
Einkenni ins óekta er nafnið C. A.
NiSSEN á glasinu og miðanum.
Einkenni á vorum eina egta Brama-
lífs-elixir eru firmamerki vort á glasinu, og á
merki-skildinum á miðanum sést blátt ljón og
gullhani, og innsigli vort MB & L i grænu
lakki er á tappanum.
Mansfeld-Búllne.r & Lassen,
sem einir búa til inn verðlaunaða
Brama-lífs-elixir.
KAUPMANNAHÖFN. [4r.
LSf’ Nærsveitamenn eru beðnir að vitja
ísafoldar á afgreiðslustofu hennar, sem er
i ísafoldarprentsmiðju, við Bakarastiginn,
1. sal; — nema Seltirningar í búð N. Zim-
sens (Knudtzons verzlun), og Kjósarmenn
og Kjalnesingar í búð S. Johnsens.
Éj!3%r ÍSAFOLD kemur út á morg-
u n, aukreitis.
ÍSAFOLD fæst keypt frá upphafi
júlímánaðar p. á. til ársíoka sjer á parti
fyrir 2 kr., eins og undanfarin þingár.
i’.ún flytur, meðfram i aukablöðum, mjög
greiniíega og fljóit frjettir af pví helzta
er við ber á þinginu.
Ritstjóri Björn Jónsson, caud. pliil.
i. Brentsmiðja lsafoldar.
AUGLY SING AR