Ísafold - 12.08.1885, Blaðsíða 1
[enjj ót á mifvikudagsmor^na. VerS
árjcuijsins (55-GO arka'á eríeals
5 kr. Eorjist Ijrir miðjan jffl'mánnð.
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, í-
gild nema tomin sje lil útg. tjrir i akl
MjjreiJslnslofa i Isafoldarprenlsm. 1. sal.
XII 35.
Reykjavik, miðvíkudaginn 12. agúslmán
1885.
137. Alþingí.
138. f (lunnlaugur Blöndal (erfiljóð). Skýrslur
um súrheysverkun. II.
139. Búnaðarskólinn á Hólum : skýrsla.
140. Úr brjefi frá Khöfn. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I 2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvikur opinn hvern mvd og ld. 4 — 5
Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J.Jónassen
ágúst Hiti (Cels.) Lþmælir fm. | em. Vedurátt.
ánóttu um hád. fm. em.
M. 5- + 9 + 13 30,2 30,1 S h d S h d
F. 6. + 8 4- io 30 29,8 0 d d
F. 7- + 8 4 io 29,8 29,8 N h d N h d
L. 8. + 8 + n 29.9 N h b N h b
S. 9- + 4 + ii 30 29.9 0 b 0 b
M. IO. + 5 + 2Q.8 29S N h 1) A h d
í>. [ I. + 3 + io 29,8 29,7 N h d N h b
Fyrstu daga vikunnar var sunnanátt með úr-
komu, einkum var óhemju-rigning kveldið hinn 6.
og aðfararnótt h. 7. Gekk svo til norðurs og var
hið fegursta veður 8, og 9. Síðan hefir verið hæg
austanátt; hjer rigndi ákafl. aðfaranótt h. 11. I
dag hægur norðankaldi, bjart veður.
Alþingi.
Lög frá alþingi. þessi lög hafa við
bætzt frá því síðast;
8. Lög um breyting á 1. gr. í lögum 27.
febr. 1880 um skipun prestakalla.
1. gr. Melstaðarbrauð í Húnavatnspró-
fastsdæmi tekur yfir Melstaðar og Kirkju-
hvammssóknir. Frá brauði þessu greiðast
350 kr.
2. gr. Staðarbakkabrauð í sama prófasts-
dæmi tekur yfir Staðarbakka og Núpssóknir.
3. gr. Prestsbakkabrauð í Strandapró-
fastsdæmi tekur yfir Prestsbakkasókn og
Staðarsókn 1 Hrútafirði. Til brauðs þessa
liggja enn fremur bæirnir Guðlaugsvík, Kol-
beinsá, Heydalur og Skálholtsvík, er áður
bafa heyrt Óspakseyrarsókn til. Kirkju-
gjöld af hinum 4 fyrnefndu bæjum greiðast
ár hvert úr sjóði Prestsbakkakirkju í sjóð
Óspakseyrarkirkju. Frá þessu brauði sreið-
ast 200 kr.
4. gr. Tröllatungubrauð í Strandapró-
fastsdæmi tekur yfir Tröllatungu, Fells og
Óspakseyrarsóknir, að undanteknum bæj-
um þeim, er áður er um getið í 3. grein.
Prestsetrið skal vera á Felli í Kollafirði eða
einbverstaðar í miðju brauði. Brauðið
heldur 200 kr. uppbót þeirri, er því var
lögð með lögum 27. febr 1880.
5. gr. Frá Oddaprestakalli í Bangárvalla-
prófastsdæmi leggist 500 kr.
6. gr. Landshöfðingi sjer um, að breyt-
ingar þær á brauðum þeim, sem um er rætt
í lögum þessum, komist á svo flótt sem auð-
ið er, að minnsta kosti þá brauðin losna.
9. Lög um fiskveiðar í landhelgi.
1. gr. Eingöngu búsettir menn hjer á
landi og bjerlend blutafjelög eiga rjett á að
fiska á þilskipum og með opnum bátum í
landhelgi á flóum og fjörðum inni. þó er
blutafjelögum heimilt fyrst um sinn að reka
þar síldveiðar, ef meira en helmingur fje-
lagsfjárins er eign þegna Danakonungs og
fjelagið hefir heimilisfang hjer á landi, enda
sje meiri bluti fjelagsstjórnarinnar skipaður
mönnum þeim, er hjer eru heimilisfastir.
2. gr. Aður en hlutafjelag, sem að
nokkru leyti er eign útlendra manna, tekur
til starfa, skulu fjelagslögin sýnd lögreglu-
stjóra, þar sem fjelagið hefir veiðistöð, svo
og breytingar, er eptir á verða gjörðar á
þeim, og skal bann gæta þess, að lög fje-
lagsins sjeu samkvæm landslögum, og hafa
eptirlit með því, að lögum þessum sje fylgt.
Að öðru leyti er fjelagið, að því er fisk-
veiðar snertir, háð hinum almennu lögum
um fiskveiðar í landhelgi.
3. gr. Fyrir brot gegn lögum þessum
skal sækja eptir reglum þeim, er gilda um
almenn lögreglumál; varða brotin sektum
frá 20—400 kr., er renna í landssjóð, og skal
hið ólögmæta veiðifang eða þess virði gjört
upptækt og falla tii landssjóðs.
Tollmálið Efri deild befir nú sam-
þykkt til fullnaðar aðflutningstollsfrumvarp
síra Jakobs Guðmundssonar, þó með tals-
verðum breytingum. Tollurinn á að verða;
a., af hverju pundi af kafö, exportkaffi og
öðrum kaffibæti..............3 aurar
b. , af hverju puudi af sykri . . 2 —
c. , af hverju pundi af tóbaki, hverr-
ar tegundar sem er, nema vindl-
um...........................20 —
d. , af hverjum 100 vindlum . . 50 —
Tollur þessi á að koma, eigi einungis í
staðinn fyrir ábúðar- og lausafjárskatt,
beldur og oinnig fyrir tekjuskatt og tóbaks-
tollinn, eins og hann er nú, og enn frem-
ur fyrir útflutningstoll af fiski og lýsi, nema
síld.
Leiðrjetting: það er missögn í skýrsl-
unni um atkvæðagreiðsluDa í efri deild í
þessu máli í síðasta blaði. þeir sem greiddu
atkvæði með því til 2. umr., voru: Asg.
Einarsson, Hallgr. Sveinsson, Jakob Guðm.,
Jón Pjetursson, Lárus E. Svbs. og Skúli
þorvarðarson, en hinir 5 (nefndin) á móti.
En með skattlinunarfrumvarpinu voru þess-
ir: Arni Thorst., Ben. Kristj., Einar Ásm.
Hallgr. Sveinsson, Magnús Steph. og Sigbv.
Árn.
Stjórnarskrármálið. Erumvarpið var
samþykkt við 3. umræðu í neðri deild 6.
þ. m., með 18 atkvæðum gegn 4. þessir
4 voru: Arnljótur Ólafsson, H. Kr. Frið-
riksson, Th. Thorsteinson og þorkell Bjarna-
son. Fjarverandi: Ólafur Pálsson.
Nokkrar breytingar urðu á frumvarpinu
við þessa 3. umræðu, eptir tillögum nefnd-
arinnar, flest orðabreytingar. Helzta efn-
isbreytingin þessi ný grein (8. gr.):
•Káðgjafar skulu eigi vera fieiri en þrír,
og skal einn vera æðstur þeirra. Lands-
stjóri og ráðgjafar eru landsráð, og lands-
stjóri forseti þess. 1 landsráðinu skulu
rædd lagafrumvörp öll og áríðandi stjórnar-
málefni. Deyi landsstjóri eða hindrist á
annan hátt, stendur hinn æðsti ráðgjafi
fyrir stjórn, þangað til konungur nefnir
annan landsstjóra, eða landsstjóri tekur
aptur við stjórninni«.
— Málið komst á dagskrá í efri deild 10.
þ. m. Landshöfðingi flutti þar bina sömu
orðsending frá stjórninni, sem í uþpbafi
málsins í neðri deild: að þetta frumvarp
mundi aldrei bljóta staðfesting konungs.
En að öðru leyti urðu því nær engar um-
ræður, heldur skipuð nefnd í mábð: Ben.
Kristjánsson, Einar Ásmundsson, Jón Pjet-
ursson, Sigbv. Árnason og Skúli þorvarð-
arson.
Fjárlagamálið. Fjóra daga samfleytt
stóð önmir umræðan í neðri deild, 7. til 11.
þ. m.; kvöldfundir 2 dagana. Frumvarp-
ið var samþykkt að lokum að miklu leyti
eins og nefndin hafði farið fram á. f>ó
voru meðal annars laun umsjónarmannsins
við hegningarhúsið færð upp í 1,000 kr.,
úr 800 ; af búnaðarstyrknum ánafnað skól-
unum á Hólum og Eyðum 2,000 kr. bvort
árið; Flensborgarskólanum ætlaðar 2,500
kr.; Guðr. Waage 600 kr., í stað 300;
1,000 kr. styrkur ætlaðar bókara bins fyrir-
hugaða landsbanka til að kynna sjer
bankastörf í Danmörku ; 2,000 kr. styrkur
cand. juris Páli Briem til að stunda ís-
lenzk lög að fornu og nýju 1886, og 1887
2,000 kr. lán gegn lífsábyrgðarskýrteini
eða annari viðunanlegri tryggingu ; 500 kr.