Ísafold - 19.08.1885, Síða 1
?en.ir ó! á miðvikudagsinorjna. Verí
árganjsins (55-60 arai 4kr.; erlendis
5kr. Borjist Ijrir miBjan júl'inánuð.
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin vií áramót. {-
jilii nema komin sje lil ÚI5. tjrir 1. oki.
iíareiísiuslola í IsafoidarDrenlsin. i. sal.
XII 36.
Reykjavík, miðvikudaginn 19. ágústmán.
1885.
14F. Alþingi
143. Sandeyðingin í Kangárvallasýslu.
144. Ólafur prestur J>orvaldsson (minningarstef).
Innlendar frjettir. Auglýs.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I — 2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12 —2
útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4—5
Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
á gúst Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu umhád. fm. em. fm. em.
M. 12. + 1 + 8 29,Q 29,9 V h h Sv h d
F. 13. 4- 10 ?9,9 29,9 Sv h b Sv h d
F. 14. + 6 -t 9 29,9 29,8 Sv hv b Sv hv d
L. (5. + 6 + 'O 29,9 3° Sv h d 0 b
S. 16. + 5 + II 30,1 30 0 b Nv h b
M. 17. + 6 + II 30 29.9 0 a 0 d
í>. 18. + « + 14 29,9 29,9 A hv d Sa hv d
Umliðna viku hefur optast verið hægð á veðri,
aðaláttin liefur verið útsynningar (Sv.) með skúrum,
einkum var talsverð úrkoma h. 14 I dag er aust-
an-landssynningur, dimmur fyrir hádegi og lítur úr-
komulega út, nokkuð hvass en hlýr.
Alþingi.
Lög frá alþingi. þessi lög hafa við
bætzt frá því síðast:
10. Lög um hluttiiku safnaða í veitingu
brauða.
1. gr. jpegar brauð í þjóðkirkjunni losn-
ar, tekur söfnuðurinn þátt í veitingu þess
eptir reglum þeim, er nú skal greina.
2. gr. þegar auglýst hefur verið, að prests-
embætti sje laust, og hinn ákveðni umsókn-
arfrestur er út runninn, skal landshöfðingi,
þegar fleiri en 3 hafa sótt um embættið,
er allir fullnægja hinum almennu skilyrð-
um fyrir því, að geta haft á hendi prests-
embætti í þjóðkirkjunni, með ráði biskups
velja þrjá af umsækendum til kosningar,
er honum virðist hafa bezta hæfilegleika
til þess að geta komið til álita við veitingu
embættisins. Hafi að eins 3 slíkir menn
sótt um brauð, má landshöfðingi á sama
hátt velja tvo þeirra til kosningar.
3. gr. Umsókuarbrjef þau, er þaunig
hafa verið valin úr, og bæði umsóknarbrjef-
in, hafi að eius 2 sótt um embættið, sendir
biskup með athugasemdum þeim, er hon-
um virðist ástæða til að gjöra, til hlutað-
eigandi prófasts, en prófastur skal sjá um,
að þau verði lögð fram og liggi til sýnis í
2 vikur á einhverjum hentugum stað í
prestakallinu. Ef sóknarnefndin eða sókn-
arnefndirnar í prestakallinu láta eigi prófast
vita, áður frestur þessi er liðinn, að söfnuð-
urinn ætli sjer eigi að nota kjörrjett sinn,
skal prófasturinn stofna til fundar fyrir allt
prestakallið, áður aðrar 2 vikur sjeu liðnar,
og skal auglýsa fund þennan svo sem þörf
gjörist. Um umsækendur þá, sem í kjöri
eru, skal á þessum fundi öllum þeim með-
limum þjóðkirkjunnar, sem búsettir eru í
prestakallinu, og óspillt mannorð haia, gef-
inn kostur á að greiða atkvæði, ef þeir eru
orðnir fullra 25 ára, þegar kosningin fer
fram, t>g hafa atkvæðisrjett á safnaðafund-
um samkvæmt lögum nr. 5 frá 27. febr.
1880, sbr. Iög nr. 10 frá 12. maí 1882.
4. gr. Kjörstjórn skal stýra kosningum;
er prófastur formaður hennar, en hver sókn-
arnefnd í prestakallinu kýs í hana 2 menn.
5. gr. Sóknarnefnd hver semur skrá
yfir þá sóknarmenn, er kosningarrjett hafa
eptir 3. gr., og sjer um að skráin liggi til
sýnis fulla viku á undan kjördeginum á ein-
hverjum hentugum stað fyrir sóknarbúa;
eptir þeirri skrá fer kosningin fram.
Nú kærir einhver, að sjer hafi verið
sleppt úr skránni, eða að annar hafi heim-
ildarlaust verið tekinn á skrána, og skal
hann þá í seinasta lagi koma fram með
kröfu sína eða mótmæli á sjálfum kjördegin-
um, og leggur kjörstjórnin því næst úr-
skurð sinn á málið, áður en gengið er til
atkvæðagreiðslu.
6. gr. Sjerhver sá, er kosningarrjett hef-
ur og vill greiða atkvæði, skal koma sjálf-
ur á kjörfund. Atkvæðagreiðslan skal fram
fara munnlega, og skulu tveir af kjörstjór-
unum taka við atkvæðunum við kjörskrá
hverja. þegar öllum, er viðstaddir eru og
hafa kosningarrjett, hefur verið gefinn
kostur á að greiða atkvæði og þau rituð í
kjörbækurnar.skal atkvæðagreiðslunni lokið,
en þó eigi fyr en klukkustund er liðin, frá
þvl kosningar hófust.
7. gr. Kjörstjórnin semur skýrslu um
það, er fram hefir farið á kjörfundinum, og
sendir hana ásamt kjörskránum og umsókn-
arbrjefunum o. fl. til landshöfðingja, þegar
frestur sá er liðinn, sem ræðir um í 8.
grein.
8. gr. Nú vill einhver koma fram með
kæru viðvíkjandi kosningu þeirri, er fram
hefur farið, og verður hann þá að senda
kæru sína skriflega til formanns kjörstjórn-
arinnar, áður en vika sje liðin frá því kosn-
ingin fór fram, ef henni skal nokkur gaumur
gefinn ; en formaður kjörstjórnarinnar skal
senda landshöfðingja kæruna ásamt áliti
kjörstjórnarinnar.
9. gr. Ef að minnsta kosti helmingur
safnaðarlima þeirra í prestakallinu, er kosn-
ingarrjett hafa, hafa tekið þátt í kosning-
unni og einhver af umsækendum hefir hlot-
ið að minnsta kosti helming atkvæða þeirra,
er greidd hafa verið, verður honum gefið
veitingarbrjef af hlutaðeigandi stjórnarvaldi,
hafi kosningin farið fram eptir 3.-8. gr.
laga þessara, eða sjeu eigi þeir gallar á,
sem eptir atvikum geti haft veruleg áhrif
á úrslit hennar ; ella skal við veiting em-
bættisins taka það tillit til þeirra óska, er
hafa komið fram af hálfu safnaðarins, er
álitið verður að rjett sje.
10. gr. Nú hefur laust brauð verið aug-
lýst á venjulegan hátt, og hinn ákveðni um-
sóknarfrestur er útrunninn, og hafi þá ekki
nema einn, er fullnægi hinum almennu
skilyrðum fyrir að þjóna prestsembætti í
þjóðkirkjunni, sótt um brauðið, þá skal ept-
ir kosningarreglum laga þessara leita tillögu
safnaðarins um, hvort hann heldur kjósi
að brauðið verði veitt þessum eina umsækj-
anda, eða prestsþjónusta í brauðinu verði
fyrst um sinn falin á hendur nágranna-
présti eða nágrannaprestum, verði því við
komið, eða settur verði prestur til að þjóna
brauðinu til bráðabirgða, geti hann fengizt.
11. gr. Kostnaði við prestakosningar skulu
sóknarnefndirnar jafna niður á alla safnað-
armenn í prestakallinu, þá er atkvæðisrjett
hafa samkv. 3. gr. Eindagi á því gjaldi er
hinn fjórtándi dagur, frá því niðurjöfnunin
og hverjum greiða skuli var auglýst á kirkju-
fundi. Kærur út af fjárheimtu þessari er
heimilt að bera upp á hjeraðsfundi prófasts-
dæmisins, og leggur hann fullnaðarúrskurð
ámálið. Kjett er að taka gjöld þessi lögtaki.
12. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. dag jan-
úarmánaðar 1887.
11. Lög um friðun hvala.
1. gr. Allir hvalir, nema tannhvalir og
smáhveli, svo sem hnýsur, höfrungar og mar-
svín, skulu friðhelgir fyrir alls kyns skot-
um hvervetna í landhelgi, svo fyrir land ut-
an sem á flóum og fjörðum inni, frá 1. maí
til 31. október ár hvert, nema í ísvök sje,
fastir á grynningum eða hamlaðir á annan
hátt þvílíkan. Eigi má heldur hvali skjóta
á öðrum árstíma á fjörðum eða vogurn, með-
an síldarveiði er þar stunduð. En reka má
hvah á laud og drepa, ef það er gjört með