Ísafold - 21.10.1885, Side 4
184
milli glugganna, en sumstaðar eru útbygg-
ingar, er slvita fram yfir ána. Yfir Tiber
liggja 6 stórar brýr; skrautlegust er sú, sem
liggur yfir að Engilsborg; á henni eru stórar
myndastyttur beggja meginn. Engilsborg
er kastali með miðaldasniði; þar hafði Had-
rían keisari látið gera grafreiti og minnis-
varða yfir rómverska keisara, en á miðöld-
unum var þar gjörður kastali.sem stendur
enn. Sá hluti bæjar, sem liggur vestan ár,
er hinn eiginlegi páfa- og klerkabær; gangi
maður einhverja götuna upp á Pjeturstorg
(t. d. Borgo nuovo), má alstaðar sjáí búða-
gluggum bænabækur, talnabönd, myndir
helgra manna, tóbaksdósir með mynd páf-
ans og margt annað kaþólskt glingur.
Pjeturstorg, fyrir framan Pjeturskirkjuna,
er eitt hið merkilegasta torg í heimi; þar
blasir kirkjan við, eitt hið mesta listasmíði
sem til er,og háreist súlnagöng liggja í boga
beggja vegna upp að henni, en á hægri hönd
rís Vatikanshöllin, sem ein fyrir sig er sem
heill bær. A torginu miðju stendur stein-
varði (obelisk) 80 feta hár; þenna stein
ljet Caligula keisari flytja til Eómaborgar
og hefir það þó víst verið örðugt, því hann
vegur 960 þúsund pund; það er óskiljanlegt,
hvernig fornmenn hafa farið að flytja slík
bákn. A stólpann hefir einn af páfunum
látið setja leturtöflu; segist hann þar hafa
látið vígja þenna stein, er áður hafi þjónað
tilbeiðslu óhreinna skurðgoða.
Upp frá torginu liggja breið steinþrep
upp að Pjeturskirkju.
Kirkja þessi er, sem allir vita, hin lang-
stærsta kirkja í heimi. Prá torginu utar-
lega sýnist hún ekki vera svo gífurlega stór,
því torgið,kirkjan og súlnagöngin samsvara
sjer svo vel, að það tælir augað. Kirkjan
tekur yfir rúmar 6 vallardagsláttur; hún
er 420 fet á hæð og 100 faðmar á lengd;
smíðin kostaði meira en 200 milj. krónur,
og til árlegs viðhalds þarf 130,000 krónur.
þegar inn er komið, veit maðurekki, hvað
mest skal undrast, lit-skrautið eða lista-
verkin, myndastytturnar eða þetta trölla-
smíði í heild sinni; það er nærri óskilj-
anlegt,hvernig listamennirnir hafa getað lát-
ið allt samsvara sjer svo vel í jafnstóru
rúmi og hve vel þeir hafa getað reiknað út
áhrif hverrar myndar og hverrar súlu eptir
innbyrðis fjarlægð og afstöðu hlutanna. Á
kirkjugólfinu er mörkuð stærð hinna mestu
kirkna í heimi, oggetur hver þeirra staðið
innan í Pjeturskirkjunni.
Hvelfinguna yfir kirkjunni miðri hefir
Michael-Angelo gert; hún er 374 fet á
hæð og 134 fet að þvermáli; innan á hvelf-
ingunni stendur leturhringur með marmara-
stöfum: »þú ert Pjetur og á þessum kletti
mun jeg byggja kirkju mína og mun jeg fá
þjer lykla himnaríkis«. Neðan af kirkju-
gólfinu sýnist letrið ekki mjög stórvaxið,
en vel læsilegt, og þó er hver stafur meir
en faðmur á hæð. Undir miðri hvelfing-
unni stendur háaltarið; yfir því er himinn
sem liggur á 4 málmsúlum, 80 feta háum;
þar logar á 89 gylltum koparlömpum dag
og nótt. þar má enginn lesa messu nema
páfinn einn. Undir altarinu á Pjetur post-
uli að vera grafinn. I kirkjunni eru ótal
listaverk, myndastyttur og málverk eptir
frægustu meistara, og yrði það oflangt upp
að telja.
Gangi maður vestan ár suður á Janicul-
ushæðir, þá er þaðan hin bezta útsjón yfir
borgina og flatlendið þar suður undan.
Róm hefir smátt og smátt færzt norður á
við; mestu og stórkostlegustu rústirnar eru
sunnan til, en borgin, sem nú er, liggur í
þríhyrning norður með ánni; í austri sjást
Albanofjöll og ótal þorp með hvítum húsum
gægjast fram á milli hæðanna eða standa
uppi á hæðunum; það er mjög algengt á
Italíu, að þorpin eru byggð uppi á hæða-
toppunum eða utan í þeim, en eigi f lægð-
unum, sem tízka er víðast annarstaðar. I
suðri hverfur sljettlendið smátt og smátt í
dimmblárri móðu.
Á leiðinni til borgarinnar gekk jeg gegn-
um þann hluta borgarinnar, sem heitir
Ghetto; þar búa eintómir Gyðingar; sitja
þeir þar hópum saman út á strætum við
vinnu sína ; göturnar eru mjög þröngar og
óþrifalegar; 1556 voru Gyðingar stíaðir
inn í þessu bæjarhverfi og fengu hvergi
annarstaðar að vera ; allar handiðnir voru
þeim bannaðar; ekki máttu þeir láta sjá
sig úti á kvöldin, og á daginn urðu þeir að
ganga með gula hatta og gular blæjur, svo
þeir þekktust. Nú er þetta ófrelsi úr lög-
um numið, og Gyðingar mega vera hvar
sem þeir vilja; en flestir búa þeir samt í
þessum gömlu húsum, sem nú á að fara að
rífa og gjöra þar breiðar götur og fögur
hús.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli m. smálelri kosla 2 a. (þakkaráv. 3a.) hverl ori 15 slafa frekasl
m. öcm lelri eía selning 1 kr. fjrir þnmlung dálks-lengdar. Borgun úl i hönd
Bókmentafjelagið- Út er komið :
Skírnir um árið 1884; og Skýrslur og reikn-
ingar fjelagsins 1883—’84; komu bcekur þess-
ar hingað nú með siðasta póstskipi.
t Skýrslunnm hafa reikningar Reykjavíkurdeild-
arinnar skekkzt þannig í prentuninni, að fyrsta og
þriðja blaðsiðan, sem báðar eru táknaðar með blað-
síðutölunni IX, hafa haft sætaskipti. það er með
öðrum orðum, að til þess að reikningarnir verði
rjettir, verður að flytja það sem stendur á IX. blað-
síðu, aptur á XI. bls., en það sem stendur á þeirri
bls.—þ e. síðunni milli X. og XIF. bls., sem er
misprentuð IX. bls,, — verður a' flytja fram á IX.
bls. þetta eru lesendur Skýrsluanna beðnir að athuga.
Forseti Beykjavíkurdeildarinnar.
Til almeniiings!
Læknisaðvörun.
pess hefir verið óskað, að ég segði álit mitt
um „bitter-essents'*, sem hr. C. A. Nissen hefir
bíiið til og nýlega tekið að selja á íslandi og
lcallar Brama-lifs-essents. Ég hefi komizt yfir
eitt glas af vökva þessum. Ég verð að segja,
að nafnið Brama-lífs-essents er mjög vill-
andi, þar eð essents þessi er með öllu ólikr
inum ekta Brama-lífs-elixir frá hr. Mans-
feld-Búllner & Lassen, og þvi eigi getr
haft þá eiginlegleika, sem ágæta inn egta.
j>ar eð ég um mörg ár hefi haft tækifæri til, að
sjá áhrif ýmsra bittera, en jafnan komizt að
raun um, að Brama-lífs-elixír frá Mansfeld-
Búllner & Lassen er kostabeztr, get ég
ekki nógsamlega mælt fram með honum
einum, umfram öll önnur bitterefni, sem ágætu
meltingarlyfi.
Kaupmannahöfn 30. júlí 1884.
E. .1. Melchior,
læknir.
Binkenni ins óekta er nafnið C. A.
NISSEN á glasinu og miðanum.
Einkenni á vorum eina egta Brama-
lífs-elixir 'eru firmamerki vort á glasinu, og á
merki-skildinum á miðanum sést blátt ljón og
gullhani, og innsigli vort MB & L í grænu
lakki er á tappanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
sem einir búa til inn verðlaunaða
Brama-lífs-elixir.
KAUPMANNAHÖFN. [4r.
þar mjer undirskrifuðum voru dregnar í næst-
liðinni Arnakróks skilarjett 2 kindur með mínu
rjetta marki, tvistýft aptan hægra, fyrst hvithyrnd
ær 3 vetra með lítið gat í vinstra eyra, að likind-
um eptir þar i dreginn enda, annað hvítt hrútlamb
en jeg ekki á þessar kindur, verður sá sem þær
þykizt eiga, að vitja verðsins til min fyrir þær, að frá-
dregnum kostnaði öllum lijer að lútandi, og semja
við mig um markið á þeim, fyrir næstkomandi ára-
mót.
Flekkudal í Kjós 7. okt. 1885. Einar Jónsson.
Eptirleióis verður seldur greiði ferðamönnum, sá
er verður í hvett skipti, á Eyri við Kollafjörð.
18. ágúst 1885. A. Björnsson.
Undirritaður kaupir kál/sskinn fyrir 35 aura pd.
mót vörum.
Rvik, 20/10—'85. Br. H. Bjarnason.
„ísafold“. Nr. 12, 14 og 1; af þessum árgangi
ísafoldar kaupir útgefandi fullu verði, ef þau eru
óskemmd. þeir útsölumenn, sem hafa fengið of-
sent nr. 37, eru beðnir að endursenda það sem
fljótast.
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja Isafoldar.