Ísafold - 29.06.1887, Page 1
Kemur út á miðvikudags-
morgna. Verð árgangsins
(6o arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrirmiðjan júlímán.
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útg.fyrir l.okt. Afgreiðslu-
stofa í ísafoldarprentsmiðju.
XIV 29. Reykjavík, miðvikudaginn 29. júni. 1887.
L!11 -
113. Innlendar frjettir.
114. Útlendar frjettir.
115. Einn liður í samgöngumáli voru.
116. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið [hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. n—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóður Rvikur opinn l. mánud. í
hverjum mánuði kl. 4—*2
Veðurathuganirí Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Júní Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu|umhád. fm. em. fm. em.
M. 22. + » + »t 30,2 30,2 ISa h d S h d
F. 23. + 9 + 14 30,3 30,3 S h d 0 d
F. 24. + 9 + 13 30,4 ?0,3 Sa h d 0 d
L. 25. + 9 + 16 30.4 3°, U d S h d
S. 20. + 6 + 9 29,9 29,8 S h d S h d
M. 27. + 6 + 9 29,8 29,8 S h d S h d
f>. 28. + 6 + 9 29,8 29,8 S h d S h d
Alla vikuna heíir verið hægur sunnan landsynn-
ÍDgur með meiri og minni úrkomu dag -og nótt,
varla má heita að sól hafi sjezt alla vikuna fyrir
dimmviðri; stundum hefir verið svört þokumugga.
Sama veður enn í dag h. 20: sunnanátt, hæg með
rigningu.
jUeykjavík 29. júní 1887.
Alþingiskosnmg. Kosinn alþingis-
mað,ur fyrir Snæfellsnes- og Hnappadals-
sýslu að Görðum í Staöarsveit 17. þ. m.
með 33 atkv. yfirrjettarmálsfærslumaður
JPáll Briem, fyr sýslumaður í Dalasýslu,
er einnig stýrði kjörfundinum, í sjúkdóms-
forföllum sýslumanns Sigurðar Jónssonar.
Indriði Einarsson, lands-revisor, hlaut 11
atkv. Aðrir voru ekki í boði.
Póstskipið Romny kom hingað 25.
þ .m. Með því komu cand. juris Björn Bjarn-
arson, stúdent Gísli Brynjólfsson o. fl. Erá
Yestmannaeyjum alþingismaður þorstemn
læknir Jónsson. það íór frá Khöfn 13. þ. m.
Strandferðirnar. »Laura«, aðalpóst-
skipið, sem lagði af stað hjeðan 9. þ. m.
austur fyrir land og norður, og átti að
vera komin hingað aptur 25. þ. m., kom
ekki fyr en í gærmorgun. Af því að hún
hitti ekki »Thyru« á Seyðisfirði, eins og
til stoð eptir áætluuinni, beið hún eptir
henni á Eyjafirði rúma 2 daga; fór síðan
til Sfglufjarðar, en þá lokaði hafísinn hana
inni í 2 daga; þegar þaðan kom, lenti
hún aptur í ískreppu á Hjeðinsfirði 1 dag;
komst svo á Sauðárkrók, og lá þar 3 daga
vegna íss; komst loks þaðan eptir ítrek-
aðar tilraunir laugardaginn 25. þ. m. og
síðan viðstöðulaust alla leið vestur fyrir,
nema ekki A Skagaströnd. En daginn
áður, 24., yfirgáfu þeir hana og hjeldu
landveg suður: landshöfðinginn, landlækn-
irinn, póstmeistarinn og alþingismennirnir
Benidikt próf. Kristjánsson, Jón A. Hjalta-
lin, Jón Sigurðsson og Július Havsteen
amtmaður, og komu þeir hingað um miðjan
dag í gær, fáeinum klukkustundum seinna
en »Laura«.
Með Lauru komu meðal annars alþing-
ismennirnir Gunnar Halldórsson, síra Jak-
ob Guðmundsson, Páll Briem, síra Sig-
urður próf, Jensson og síra Sigurður Ste-
fánsson.
Thyra, sem fór fram hjá Vestmanna-
eyjum á austurleið 8. þ. m., var að berj-
ast við að komast inn á norðurhafnirnar
um sama leyti og »Laura« —þær hittust
loks á Sauðárkrók —, og hefir það síðast
til hennar spurzt, að hún lagði út frá Sauð-
árkrók að morgni hins 25. þ. m. Hún
átti þá eptir að koma á Eyjafjörð og Seyð-
isfjörð. A Skagaströnd komst hún aldrei.
Camoens tókst og að komast út frá Sauð-
árkrók 24. þ. m. að kvöldi, eptir ítrekaðar
tilraunir, og hefir þá að líkindum komizt
áleiðis austur fyrir.
Miaca, strandferðaskip O. Wathnes, sem
átti að koma hingað um þessi mánaðamót,
er ekki væntanlegt: hætt við allt saman
vegna íssins.
Tíðarfar. Rigningatíð mikil hefir ver-
ið hjer um Suðurland nú í 3 vikur, til mik-
ils baga fyrir fiskverkun, en hefir hleypt
upp gróðri í betra lagi, þó ekki hafi verið
hlýtt í veðri. Norðanlands og vestan hefir
verið þurrviðrasamara og hlýindi meiri,
þrátt fyrir hafisinn, sem enn mun vera ó-
farinn frá landinu, svo að trútt sje. A
helginni síðustu (26. þ. m.) var enn mikill
ís á Húnaflóa norður af Vatnsnesi og út
með eystra landinu. Austar betur var
hann á reki ýmist út eða inn, eins og sjá
má ferðalagi strandferðaskipanna, allt
austur fyrir Eyjafjörð, en þar fyrir austau
var hann kominn talsvert undan landi, svo
að skipum var enginn tálmi að.—Hvali tvo
væna rak ísinn á land í Húsavík, og mikið
af höfrungum þar um slóðir.
Skepnufellir hefir orðið ákaflega mik-
ill í Skagafjarðarsýslu og Húnavatnssýslu,
bæði úr hor, og einkanlega orðið úti í upp-
stigningardagshretinu, sem var þar eins og
hin grimmilegasta vetrarhríð, en gerði varla
grátt í rót í Eyjafirði og því síður austar
betur. Eptir skýrslum þeim, er sýslunefnd-
irnar höfðu látið safna, hafa fallið í Skaga-
fjarðarsýslu rúm 10,000 fjár, 200 hross og
80 nautgripir, en í Húnavatnssýslu um
11,000 fjár, 350 hross og 70 nautgripir.
í Strandasýslu heyrist ekki getið um mik-
inn fjárfelli, nema norðan af Hornströndum
(í Strandasýslu og ísafjarðarsýslu) er sagð-
ur mikill skepnufellir og jafnvel manndauði
af hungri eða harðrjetti, t. d. í Aðalvík og
Grunnavík. En manndauðasögur þær eru
ekki hafandi eptir að svo stöddu, og má
telja víst, að hlutaðeigandi yfirvöld finni
sjer skylt að láta rannsaka, hver fótur er
fyrir þeim. Bjargarneyð hefir annars verið
mikil í vor alstaðar norðanlands, þar sem
ísinn hefir teppt siglingar; fólk lifað mikið á
horketi. Nú fyrir viku eöa þar um bil kom
loks sigling á Borðeyri og Skeljavík.
Verðlagsskýrslur. Neðri deild al-
þingis 1885 samþykkti þingsalyktun, þar
sem skorað var á landsstjóruma að hlut-
ast til um, að verðlagsskýrslur verði ept-
irleiðis samdar af hreppstjóra, presti og
hreppsnefndaroddvita í sameiningu, og að
þær liggi hreppsbúum til sýnis á hentug-
um stað í 2 vikur, áður en þær verði
sendar hlutaðeigandi yfirvöldum.
þetta átti að gerast með konungsúr-
skurði, en ráðgjafinn áleit, að það mætti
ekki, heldur að til þess þyrfti lög. En samt
vill hann ekki koma fram með lagafrum-
varp í þá átt, með því að þessi breyting,
sem farið er fram á í þingsályktuninm,
veiti ekki næga trygging fyrir, að allt það,
sem á að hafa áhrif á setning verðlags-
skýrslnanna, komist þar að svo sem vera
ber. þar á móti tjáir hann sig fúsan til
að leggja fyrir þingið lagafrumvarp þess
efnis, aó komið væri á þriðju skýrslunum
um meðalverð, jafnbliða hinum tveimur,
frá hreppstjóra og presti,— eins og lögleitt
var í Danmörku fyrir 20 árum,—er samdar
væri af þar til kjörnum manni fyrir farepp
hvern eða kaupstað, svo framariega sem
slík breyting þætti miða til verulegra bóta
bjer á landi. Ætti þá að gefa hreppsbú-
um færi á, að kynna sjer skýrslur þessar,
áður en þær væru sendar yfirvöldunum,
sem ættu að hafa heimild til að krefja