Fréttablaðið - 30.03.2007, Side 70
BLS. 14 | sirkus | 30. MARS 2007
Hvað á að gera um helgina?
„Ég mæli með líkamsrækt hjá JSB í
Lágmúlanum fyrir allar konur. JSB er
æðisleg dekurstöð þar sem
góður andi ríkir. Þar eru
konur til að hafa það
skemmtilegt en ekki
til að sýna sig og sjá
aðra. Ekta á
forsendum
kvenna.“
Guðrún
Gunnars-
dóttir
söng-
kona
„Ég mæli með South Park, 11. sería er
komin á fullt og þættirnir verða bara
betri og betri. Ég mæli líka með að
hlusta á „Sýnið tillitssemi ég er frávik“
með hljómsveitinni Ælu, ef fólk er ekki
búið að því, og svo er alveg óhætt að
hvetja fólk til að fara að sjá Gretti í
Borgarleikhúsinu því þar eru bara
töffarar að sjá um tónlistina. Svo eru
Blonde Redhead og Reykjavík! að fara að
spila á Nasa í vikunni. Um að gera fyrir
fólk að fara þangað því þar verður stuð.“
Ágúst Bogason, útvarps- og
tónlistarmaður
„Ég mæli með nýja
disknum með Caroline
af Ugglas. Það getur
ekki hver sem er
farið í fótspor
hennar Janis
Joplin, en Caroline
tókst það á
sænsku. Hljómdisk-
urinn, sem kom út í
janúar, hefur
vissulega fengið
misjafna dóma í
Svíþjóð og víðar,
en fyrir gamla
aðdáendur Janis
heitinnar Joplin er
þessi diskur eins og
himnasending og fær
að hljóma aftur og
aftur í tækinu mínu,
mér og kisunum mínum
til ánægju.“
Anna
Kristjáns-
dóttir
„Ég mæli
með
landsbyggð-
arfólki. Að
láta
rigninguna
lemja sig í
andlitið
a.m.k. einu
sinni í viku.
Tinnabókun-
um. Brauðuppskriftinni aftan á spelt-
hveitipökkunum frá Himneskri hollustu.“
Brynhildur Ólafsdóttir fréttakona
„Við ætlum að vera á staðnum og ef
einhver vill koma og hitta okkur þá er
það velkomið,“ segir Aníta Kristín
Jónsdóttir en Aníta og vinkona
hennar, Una Nikulásdóttir, sögðu
sögu sína í síðasta Sirkus-blaði.
Stelpurnar hafa báðar gengist undir
magaminnkunaraðgerð og eru
alsælar með árangur sinn. Nú hafa
þær ákveðið að stofna hóp þeirra
sem hafa farið í aðgerðina eða eru að
hugsa um að láta slag standa. „Við
ætlum að hittast í fyrsta skiptið á
Café Aroma í Hafnarfirði klukkan 3
sunnudaginn 15. apríl. Þeir sem vilja
vita meira áður en þeir mæta geta
sent mér tölvupóst á anita@vortex.is
eða kíkt á spjallið okkar www.
magaadgerd.com,“ segir Aníta og
bætir við að það sé gott að geta talað
við þá sem búa yfir svipaðri
lífsreynslu. „Kannski mæta tíu en
kannski enginn og þá verður bara að
hafa það. Við vonum að einhver mæti
því það eru alls kyns spurningar sem
liggja á manni eftir að hafa farið í
aðgerðina og áður en maður tekur
ákvörðun um að fara í hana. Það
verður gaman að skiptast á reynslu-
sögum og svo getum við jafnvel farið
saman í göngutúra þegar á líður,“
segir Aníta Kristín.
indiana@frettabladid.is
Hittast og deila reynslu sinni
VINKONUR Una Nikulásdóttir og Aníta
Kristín Jónsdóttir vilja deila reynslu sinni
með fleirum og skipuleggja hitting
sunnudaginn 15. apríl.
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm.
Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettabladid.is,
Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@
frettabladid.is Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is,
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Rvk, sími 550 5000
Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir
550 5864 gretakaren@frett.is
sirkus
SIR
K
USM
YN
D
/VILH
ELM
„Sýningar á
Ronju kláruðust
um síðustu
helgi svo ég
geri ráð fyrir að
þetta verði pínu
skrýtin helgi.
Það er aldrei
að vita nema
ég setji á mig
Ronjuhárið og
syngi nokkur lög heima í stofu, svona
einræn minningarathöfn! Nei, nei, ætli ég
reyni ekki bara að njóta þess að vera í
fríi. Borða, sofa og hitta vini, það er
alltaf gott. Nú ef ég er að farast úr
fráhvörfum frá leikhúsinu væri ekki
vitlaust að skella sér á eina sýningu, t.d.
Dag vonar í Borgarleikhúsinu.“
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikkona
„Helgin verður notuð í að slappa af. Á
föstudagskvöldið ætla ég að kíkja á
rokktónleika á Dillon. Svo verður
laugardagurinn notaður í að fara í sund,
sitja yfir kaffibolla og kannski grilla. Á
sunnudaginn hefst svo vinnuvikan því þá
er ég að sýna tvær sýningar á
söngleiknum Abbbababb og svo
millistjórnanda-dramað Eilífa hamingju
um kvöldið, en
kannski maður nái
samt að kaupa eitt
lítið páskaegg og
taka forskot á
sæluna!“
Orri
Huginn
Ágústs-
son
leikari
„Það er nóg
að gera
eins og
venjulega.
Ég ætla að
vinna
eitthvað og
fá mér osta
og rauðvín
á laugar-
dagskvöldið
og hafa það
huggulegt
heima. Á sunnudaginn þarf
ég að syngja í fermingu og
fer svo í aðra fermingarveislu
og borða þar vonandi góðan
mat.“
Alda Ingibergsdóttir
sópransöngkona
„Ég er að fara að opna
nýja lífsstílsverslun í
Bæjarlind 16 sem heitir
Hann, hún og
heimilið. Þar mun
ég selja
vandaða
gjafavöru, allt
frá bleikum
verkfærasett-
um fyrir konur
yfir í flotta
vínflöskupela.
Þótt ég segi
sjálfur frá er
þetta rosa flott
verslun.“
Valur Heiðar
Sævarsson
söngvari
Jóhann H. Harðarson
1. Ekki glóru.
2. Ómar Ragnarsson, Margrét Sverrisdóttir og
Jakob Frímann Magnússon.
3. 1959.
4. Val.
5. Bold and the Beautiful.
6. Eddy Murphy.
7. Steingrímur Sævarr Ólafsson.
8. Rokland.
9. 100 ára.
10. Þór Sigfússson.
Rétt svör: 1. Kate Middleton.2.ÓmarRagnarsson,Margrét Sverrisdóttir og Jakob FrímannMagnússon.3.1959.4.
Val.5. Bold and the Beautiful.6. Eddie Murphy.7. Steingrímur Sævarr Ólafsson.8.Rokland.9.60 ára.10. Þór Sigfússon.
Þóra Sigurðardóttir
1. Kate Middleton.
2. Ómar Ragnars, Jakob Frímann og Margrét
Sverrisdóttir.
3. 1963.
4. Val.
5. Bold and the Beautiful.
6. Eddie Murhpy.
7. Steingrímur Ólafsson.
8. Rokland.
9. 40 ára.
10. Hef ekki hugmynd.
Jóhann Hlíðar stöðvar sigurgöngu Þóru með 8 stigum gegn 7. Þóra skorar á Mörtu Maríu Jónsdóttur.
Spennan magnast. Fylgist með.
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
1. Hvað heitir
kærasta Vilhjálms
Bretaprins?
2. Hvaða þríeyki
stendur fyrir
Íslandshreyfing-
unni?
3. Hvaða ár fæddist Eiríkur
Hauksson?
4. Með hvaða íslenska
handboltaliði spilar
Markús Máni Mikaels-
son?
5. Hvaða
sápuópera
fjallar meðal
annars um
Forrester-
fjölskylduna?
6. Hver leikur aðalhlut-
verkið í kvikmyndinni Norbit sem sýnd er í
bíóhúsum þessa dagana?
7. Hver er ritstjóri Íslands í dag?
8. Hvaða bók Hallgríms Helgasonar fjallar
um Bödda Steingríms?
9. KSÍ hélt upp á afmæli sitt í vikunni.
Hvað er sambandið gamalt?
10. Hver er forstjóri Sjóvár?
SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR SIGR-
AÐI JÓN JÓSEP SNÆBJÖRNSSON Í SÍÐUSTU VIKU. JÓNSI SKORAÐI Á REKTOR
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK SEM BAÐST UNDAN. JÓHANN HLÍÐAR
HARÐARSON TÓK HINS VEGAR ÁSKORUNINNI.
Við mælum með