Ísafold - 01.03.1890, Side 1

Ísafold - 01.03.1890, Side 1
ItCemui út a miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins (104 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifieg) bvmdiu vií áramót, ógild nema komin sje til útgefanda íyrir l.okt, Af- greiðslust. x Austurstrcetí, 8. XVII 18 Reykjavik iaugardaginn 1. marz. 1890. HaF" Nýir kaupentiur að þ. á. ÍSAFOLD eru beðnir afsökunar á því, þótt þeir fái eigi fyrst um sinn fyrstu 10 biöðin af ár- ganginum,—ekki fyr en ef það lánast að kaupa þau inn aptur handa þeim, fyrir marg- falt verð. Upplagið er sem sje löngu þrot- ið. þeir hefðu allir getað fengið blaðið frá nýjári, ef þeir hefðu eigi of margir dregið fram yfir nýjár að gefa sig fram. Hentugast verður fyrir þá, sem enn vilja ná kaupum á blaðinu þ. á., að panta það frá 1. april næstkom. þeir fá blaðið samt meiri part ársins, 78 blöð, fyrir að eins 3 kr-, en það eruhelmingi hetri hlaða- kaup en kostur er á annars hjer á landi, og fá þÓ í kaupbæti iiið ágæta, einkarvinsæia Sögusafn ísafoldar 1889, meðan það endist. Gleymi menn nú eigi að gefa sig fram i tæka tíð ! eir skuldunautar landsbankans, er tryggt hafa lán sín með fasteignarveði, og staffið hafa í skilum með afborgun og vexti,geta fengið afborgunartímann,10 ár, lengdan um 5—10 ár, eptir fvi sem um semur við bankastj'órnina. Svo geta og peir, er hafa tekið lán upp á styttri af- borgunartíma, fengið lengdan afborgunar- Jrestinn eptir pví sem um semur. Loks er einnig pewi, er ekki haf a staðið i skilum, gefnn kostur á hinni sömu lengingu, ef peir fyrir 31. júlí p. á. greiða allt, se?n peir eiga ógreitt sámkvœmt skuldabrjefum sínum. þeir, sem ekki semja sjáljir við bankastjórnina, verða aff hafa hier um- boðsmann, er semji fynr peirra hönd, og skal paðtekið fram, að umboðsskjal peirra verður að vera undirskrifað með vitundar- vottum. Skorað er á pá, sem sæta vilja pessu boði, að gefa sig fravi fyrir 31. júlí p. á. Beykjavík 21. febr. 1890. L. E. Sveinbjörnsson. Um samgöngur vorar og gufuskipsmálið Eptir Jens Pálsson. XI. Eru fyrir hendi næg skilyrði fyrir þvi, að gufuskipsfyrirtæki það, sem «gufuskipsfjelag Faxaflóa og Vestfjarða» vill fá framgengt, geti borið sig, orðið staðgott, ef hið nauðsyn- lega fje fæst til að reisa það á stofn ? þegar jeg ætla að svara þessari spurningu, lít jeg fyrst á ferðasvæði það, sem skipinu er einkum ætlað. það er vesturströnd Is- lands, sem því er ætlað að þræða, og auk þess fara nokkrar ferðir landa á milli og 2 ferðir umhverfis land, eptir því sem ástæður leyfa. Ekkert getur verið augljósara en að vest- urströnd landsins sje betur fallin til strand- ferða en nokkurt annað jafnlangt strandsvæði á lanc.i þessu. Um fram norðurströndina og Austfirði hefur hún þann meginkost, að ís tálmar aldrei skipaferðum, og um fram hin hafnsnauðu suðurströnd hefur hún margar fhafnir. Inn í hana skerast tveir stærstu flóar landsins, Faxaflói og Breiðifjörður, en vestur af þeim taka við eintómir firðir, hver öðrum betur lagaðir fyrir slíkar samgöngur ; það er eðlisásigkomulag vesturstrandarinnar, að mest öll byggð hennar er strandbyggð í orðsins strangasta skilningi, svo að allar sveitir hennar geta haft bein not ferðanna. Vesturströndin er jafnframt langfjölbyggðasti hluti landsins ; á henni ern búsettir meira en f allra lslendinga, og eru byggðir henoar hver annari frábrugðnar að búnaðarháttum og framleiðslu, og þurfa því að bæta hver annari það sem hina brestur, en geta það ekki fyr en betur greiðist um samgöngurnar. þannig er meginhluti Barðastrandarsýslu, öll Dalasýsla, öll Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, að undanskildu Akranesi, og Kjósarsýsla landbúnaðarhjeruð; aptur á móti eru Isa- fjarðar- Snæfellsness- og Gullbringusýsla að meiru leyti sjáfarútvegshjernð. Hjer standa þannig tveir flokkar hjeraða með gagnstæð- um búnaði, ólíkri framleiðslu og afurðum hvor gagnvart öðrum. Er ekki bersýnlegt, að þeir þurfa að skiptast á og byrgja þaunig hvor annan að föngum sem mest má verða? Eða er innanlands-verjclun óþörf þessu landi, og er vesalings íslenzka þjóðin slík undan- tekning frá öðru fólki um heim allan, að hún þarfnist ekki þess, sem engin þjóð má án vera, en sje borgið við þau samgöngu- og viðskipta-kjör, sem engri annari menntaðri þjóð þykir lífvænt við ? Jeg set þessar spurningar fram þeirra vegna, sem telja samgöngur í stýl menningarþjóð- anna ómögulegur á íslandi, og sem í sam- göngumálum álíta allt ómögulegt á þessu landi, nema hið «ómögulega» ástand sem er. þessir menn hafa náttúrlega énga trú á þessu máli nje neinu máli, sem fer í líka stefnu. þeir spyrja í sinni steinblindu vantrú: hvað á þetta skip að flytja? og segjast ekki sjá að það hafi neitt að flytja. — það er ekki erfitt að svara annari eins spurningu. Eins og á er vikið um vesturströnd Islands, þá eru sumar sýslurnar á henni svo vaxnar, að þær munu, svo lengi sem þar helzt byggð, framleiða sauðfje — kjöt, tólg, ull, skinn, smjör, vaðmál, o. fl. landvörur; aptur eru aðrar, sem um aldur og æfi munu einkum framleiða alls konar fiskivöru. Nú þurfa fisk- framleiðendur á fleiri íslenzkum vörum að halda en fiski, og landvöruframleiðendur girnast fiskmeti í bú sín. þessir aðilar þurfa því að skiptast á, og af því þeir þurfa þess, mundu þeir gjöra það ef þeir gætu. En þá fyrst geta þeir það, er vörurnar geta orðið fluttar hjeraða á milli á skaplegan hátt. þegar það skilyrði er fengið, þá hefjast við- skiptin, það er eius víst eins og 2 og 2 eru 4; því þörf stendur á bak við og knýr þau áfram. Hvað mikið flutningamagn þessi við- skipti mundu þegar leiða í ljós er eigi unnt að áætla; hitt er víst, að nauðsynleg viðskipti, sem komast á vegna þess, að ný og hagfelld samgönguleið opuast, fara ætíð vaxandi, og flutningamagnið vex að sama skapi. Að því leyti sem skipið færi tvisvar á ári umhverfis land, eins og ráð er fyrir gjört í bráðabirgðaráætlun þeirri, er prentuð er á síðara boðsbrjef gufuskipsfjelagsins, þá kem- ur þetta sama fram á stærra svæði, og gildir um það sama lögmál. En það eru ekki að eins vöruviðskipti, sem hjeruð landsins þurfa að eiga hvort við ann- að, heldur og atviunuviðskipti, og menu þurfa að komast til atvinnu sinuar; sveitamenn þurfa að komast í ver og kaupafólk í sveit, og hvorirtveggja hafa meiri og miuni flutn- ing meðferðis. Flestum þessum mönuum gæti skipið ýmist stytt leið, eða flutt þá alla leið og sparað þeim tíma, krapta, fje og hrakuinga. Er hjer ekkert smáræði um að ræða; það eru mörg hundruð manua og þúsundir vætta, sem þeir hafa meðferðis. Jeg skal þessu til sönnunar taka dæmi, þar sem jeg er kunnugur. Fari maður innan úr Eeykjavík suður á Suðurnes ■ 10.—12. maí, þá mætir maður hverjum sjómannahópnum á fætur öðrum; þeir eru að skreiðast fótgangandi með byrðar á herðum sjer; þetta er aumleg sjón, og hverjum hugsandi manni blöskrar að sjá, hversu hinn dýrmætasti tími og hið dýrmæta vinnuafl fer forgörðum, en jörðin, sem þessir menn eiga að yrkja, hrópar vanrækt á allar þessar yinnumanna hendur. Loks komast menn þessir heim, en verða brátt að leggja á stað aptur með reiðings- hestana til þess að sækja skreið sína og annan farangur, sem þeir urðu að skilja eptir; í þessi ferðalög og það ónæði og umsvif á heimilunum, sem þessu ferðabjástri fylgir, eyðist mikið af hinum dýrmætasta voryrkju- tíma, bæði í sveitum og verbyggðum. Hvílíkur hagnaður væri nú það, að þetta vandræða-ástand breyttist í bað horf að gufuskip smalaði saman öllum þessum möun- um og flutningi, og flytti þetta í leiðina t. d. til Hafnarfjarðar, Reykjavíkur, Hvalfjarðar, Akraness, Borgarfjarðar eða Breiðafjarðar, eptir því sem við ætti. Sama er að segja um saltfisk sjómanna; hvílíkur munur væri að senda hann með á- kveðnu skipi á ákveðnum tíma á ákvörðunar- staðinn, og því flutningabraski á opnutn bát- um, sein nú á sjer stað? Jeg hef tekið þessi dæmi hjeðan úr ná- grenninu fyrir kunnugleika sakir; en ekki efast jeg um, að svipað gagn megi verða að ferðurn hins fyrirhugaða skips fyrir sjómenn í verstöðunum í ísafjarðar- og Snæfellsnes- sýslum. þessu næst vil jeg minnast á kaupafólkið; flytji skipið það og sæki á hentugum tímum, eins og því er ætlað í ferða-áætluninni, þá

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.