Ísafold - 03.05.1890, Síða 4
144
fyrirverða sig og biðja hlutaðeigeridur fyrir-
gefningar á atferli sínu í þessu máli.
Leiðarvisir ísafoldar.
469. Er sá rjettur til ákveðinn með lögum, að
sá sem yrkir land um langan tíma óátalið, geti
eignast það (það sem kallað er ,,hefð“), og hvað
mörg ár mun þurfa til þess að hann geti það?
Sv.: Hefð í þeim skilningi er ekki til i íslenzk-
um lögum.
470. Er það nokkurstaðar ritað í ísl. lögum, að
elzti sonur eigi rjett til að búa á ábúðar- og
■eignarjörð föður síns, þá hann feliur frá?
Sv.: Nei.
471. Er það leyfilegt að setia meingrip (naut
eða hross) sem opt er búið að segja eiganda að
hirða og ábyrgjast, inn í hús, og láta eiganda
kaupa hann út með umsömdu verði?
Sv.: Já, sjálfsagt ef spyrjandi hefir löggirðing
um tún sitt.
472. Er máldagi löggildur, sem eigi er þing-
lesinn, heldur lesinn upp við kirkju í viðurvist
safnaðar, á öndverðri þessari öld, og undirskrifað-
ur af hlutaðeigendum og hiutaðeigandi sýslu-
manni?
Sv.: Já, ef hann er viðurkenndur af' rjettum
hlutaðeigendum.
478. Er jeg skyldur að gjalda ferjutoll, ef jeg
þarf að bíða við ferjuna fulla klukkustund eða
meira ?
Sv.: Já, en svo er rjett að kæra ferjumanninn
fyrir yfirmönnum hans fyrir að hann stendur
iiia í stöðu sinni.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning
I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd.
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn hinn 10. n. m. verða við
opinbert uppboð, sem byrjar ki. 10 f. hád.,
seldir lausi fjármunir tilheyrandi fjelagsbúi
Eyólfs Bjarnasonar hjer í Hafnarfirði og lát-
innar konu hans Ingveldar Gísladóttur.
Uppboðið fer fram hjá, húseign biísins, sem
einnig þá verður seld, og verða söluskilmálar
birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbringusýslu,
Hafnarfirði hinn 26. apríl 1890.
Franz Siemsen.
Ihnn 12. þ. m. tóku tilsjónarnienn í Kefla-
vík upp og fluttu i land netatrossu, sem var
fyrir utan hina lögskipuðu netalagnalínu,
duflalaus. 1 trossunni voru 9 net, og í %eim
170 fiskar. lóigandi netanna getur vitjað
peírra hjá mjer innan útgöngu þessa mánaðar.
Lögreglustjórinn i Kjósar- og Gullbringusýslu
Hafnarfirði hinn 25. apríl 1890.
Franz Siemsen.
Uppboðsauglýsing.
Eptir beiðni Hallgríms Tómassonar í Nyja-
bæ verður eign hans hálf jörðin Nýibœr á
Skipaskaga (l,g9 hundr,) með trjágirtu túni,
kálgörðum, lendingu og íbúðarhúsi úr timbri,
boðin upp til sölu á opinberu uppboðs-þingi,
sem haldið verður á eigninni laugardag 10.
maí nœstkomandi, kl. 11 f. m., og verða þar
birtir söluskilmálar.
A eigninni hvíla veðskuldir að upphceð rúm-
lega 1,100 kr.
Skrifslofu Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 8. april 1890.
Sigurður Þórðarson.
Uppboðsauglýsi ng.
Laugardaginn 10. mánuð nœstk. kl. 1 e. m.
verður bærinn Efri-Sýrupartur á Skipaskaga
með lóð og lendingu, tilheyrandi dánarbúi
Finns Gislasonar, boðin upp til sölu við opin-
bert itppboð, sem haldið verður á eigninni.
Söluskilmálar \erða birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðaisýslu 12. apríl 1890.
Sigurður pórðarson-
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn 10. mai nœstk. verður bærinn
Bjarnabúð (Brœðrapartur) á Skipaskaga með
hjalli og lóð, tilheyrandi dánarbúi Sigtryggs
Guðmundssonar, boðinn upp til sölu við opin-
bert uppboð, sem haldið verður á eigninui og
byrjar kl. 5 e. m. Söluskilmálar verða birtir
á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 12. aprll 1890.
Sigurður pórðarson.
I verzlun Eyþórs Felixsonar fást ágætar
kartöflur, á 8 kr. tunnan.
1 verzlun Nicol. Thoinsens í Aðalstræti
Nr. 9, fást ýmsar tegundir af vindlum, tóbaki
og cigarrettum. Einnig vín alls konar með
óvanalega góðu verði.
I verzlun Nicol. Thomsens í Aðalstræti
Nr. 9, fæst mjög gott skraatóbak á 1 kr.
60 aur. pundið og neftóbak á 1 kr. 25 aur.
pundið.
) Nýju vörurnar með ,.Lauru“.
Með því jeg nú sendi vörur með póstskip-
inu vestur á ísafjörð, dregst dálítið tíminn
að pakka út hinum nýju vörum
til Reykjavíkur.
Enn búð mín mun samt verða opnuð hið
bráðasta að unnt er, mun jeg þá geta sýnt
svo vel valið vörulager af öllu því er heyrir
til vefnaðarvörum (Manufactior), að mínir
heiðruðu skiptavínir munu dást að, ekki
einungis hversu billegar vörurnar eru, heldur
líka hversu hin nýju munstur og vel völdu
litir muni gleðja þá, og í þeirri von verð jeg
að treysta á þolinmæði þeirra í nokkra daga.
Með ósk um gleðilegt sumar, og að vorið
færi oss nægtir úr sjónum og góðar árstíðir,
er jeg virðingarfyllst
f»orl. 0. Jolinson
KONA ofan úr sveit heldur fyrirlestur kl. 4 á
morgun á „Geysir“ inngangur kostar 15 aura.
Timbur
Alls konar borð, hefluð og óhefluð, plank-
ar og júffertur, góð og falleg vara, frá Man-
dal, pr. galeas »Johanne«, kapt. D. Törresen,
er til sölu eptir vísbendingu undirskrifaðs.
Verð lágt.
M. Johannessen.
f-2S3’ Timbrið er hjá bryggju J. O. V.
Jónssonar verzunar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl, E — 2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. ij______2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12_2
útlán md„ mvd. og ld. lcl. 2—3
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. í
hverjnm mánuði kl. 5—6
Veðurathuganir i Reykjavlk, eptir Dr. J. Jónassen.
Maí Hiti (á Celsius) Loptþyngdar- mælir(millimet.) Veðurátt.
ánóttu um hád. fm. | em. fm. | em.
MvJ. jo. + 4 + 5 7Só-9 754-4 Ahd 10. d
Fd. (. + 3 +f 756.9 762.0 A h d 10 b
Fsd. 2. + 5 + tí 764-5 764.5 O b O b
Ld. 3. + 2 764ó j 1 O b
Laugardaginu var hæg austanátt, dimmur, logn
um kvöldið, sama veður næsta dag; h. annan var
hjer bjart og fagurt sumarveður og sama veður
í dag h. 8.
flitstjóri Björn Jónsson, cand. pbil.
Prentsmiðja ísafoldar.
síu látið sig vita af, ef hana langaði til að
fara f leikhitsið, eða í samsöng eða annað
þess háttar, þótt það hefði ekki verið ráðið
áður en hann fór inn til bæjarins að morgn-
inum.
Wood þótti mjög vænt um þetta snjallræði
sitt, og fól einhverri undirtyllu sinni að koma
þessu fyrir öllu saman. Leið eigi á löngu,
áður telefóninn var kominn í lag og tékinn til
starfa.
Heldra fólkið í Bostou varð bólgið og blátt
af öfund út af þessu, en Wood að því skapi
himinlifandi glaður og ánægður, þegar hann
í fyrsta skipti gat spurt konu sína, gegnum
hljóðbera, þessa ágætu konu, sem hann unni
svo mjög, hvað henni þóknaðist að láta sig
langa til.
f>ar hefst nú sagan, er Wood sat í hæg-
indastólnum sínum og var að hugsa um það,
hversu gott og ánægjulegt það er, að hafa
nóga peninga. Hann vaknar af móki við
það, að hringt er í hljóðberanum. J>að þýddi,
að einhver á heimili hans vildi fá að tala
hann.
Hann stóð upp og sagði í hálfum hljóðum
við sjálfan sig : »Blessað lambið ! Nú langar
hana sjálfsagt til að fara í leikhúsið í kvöld
til að sjá Rígólettu». Svo gekk hann að
hljóðberanum og spurði:
«Hvað viltu, heillin mín?»
Að vörmu spori var svarað heima í íbúðar-
húsi hans :
«Jeg bið yður að virða á hægra veg, en
jeg er ekki sú sama persóna, sem þjer í-
myndið yður að jeg sje».
«Við hvern veitist mjer sú ánægja að tala?»
spurði Wood.
«Við Smidt, innbrotsþjóf».
«Fyrirgefið! Jeg skildi ekki þessi síðustu
orð, sem þjer sögðuð», sagði Wood, og var í
meira lagi forviða.
«Jeg heiti Smidt, og er innbrotsþjófur#, var
svarað í hljóðberann.
Wood brá Iitum.
«Gerið svo vel að tala í alvöru og hætta
þesjsu gamni; hvað heitið þjer, og hvað viljið
þjer mjer?» mælti hann svo með skjálfandi
röddu.
«Nú, mjer er ánægja að því, að þjer
hlaupið ekki undir eins upp á nef yðar, eins
og svo mörgum hættir við ; þjer hagið yður
eins og á að vera: að taka öllu með stillingu
og sálarþreki. En nú skal jeg segja yður
nokkuð; takið þjer bara eptir: Jeg hefi
brotizt inn í húsið yðar með stóran hóp af
ræningjum ; við höfum barið og bundið bæði
konuna yðar og hjúin yðar, svo nú er allt á
mínu valdi. — Verið þjer nú rólegur, og—um
fram allt — takið þjer eptir; það er ekki til
nokkurs hlutar fyrir yóur, að ætla að snúa
yður til lögreglunnar; ; því óðara en yður
kemur slík heimska til hugar, — það er að
segja — undir eins og þjer farið eitt augna-
blik frá hljóðberanum, þá stendur húsið yðar
í björtu báli. Jeg hefi látið bera hálmhrúgur
til og frá inn í húsið og eins í geymsluhúsin
og skemmtihúsið úti í garðinum, 0g svo hefi
jeg látið hella steinolíu yfir allt saman, —
svo nú — nú þarf ekki annað en bara að
kveykja á einni eldspýtu, og á svipstundu er
allt — allt orðið að kolgrárri öskuhrúgu. —•
Af þessu getið þjer sjeð, góðurinn minn!, að
þjer eruð að fullu og öllu á mínu valdi».
Wood var alveg eins og hann væri þrumu
lostinn.