Ísafold


Ísafold - 11.06.1890, Qupperneq 1

Ísafold - 11.06.1890, Qupperneq 1
Kemur út á miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins (I04arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin v ð áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir l.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. XVII 47. Reykjavík, miðvikudaginn 11. júni 1890. Stramlt'erðaskipið Thyra, kapt. Hov- gaard, kom bingað 9. þ. m. að kvöldi, norðan um land og vestan, og með henni allmargt ferðafólk af ýmsum höfnum, en fátt frá ótlöndum, nema kaupm. J. Vída- lín og frú hans. Hvergi varð Thyra vör við hafís á sinni leið, enda var hún komin vestur fyrir Horn, þegar versta hretið gerði, og getur því ís vel hafa komið að landi aust- ar eptir það. „Thyra“ fer aptur annað kvöld sömu leið, vestur um land og norður. Útlendar frjettir eru litlar með þessari ferð, Oií kemur ágrip í næsta blaði. Tlicodór Möbíus, háskólakennari í Kiel, mestur íslenzkur fornfræðingur og íslands- vinur á f»ýzkalandi annar en Konráð Maurer, er nýlega látinn. Yísindalegan styrk úr ríkissjóði Dana hafa tveir landar í Khöfn fengið í vor: dr. Jón porkclsson 1000 kr. til að ferð- ast um Island og Svíþjóð til þess að leita uppi og rannsaka forn skjöl handa „isl. Fornbrjefasafni11, og cand. mag. Jðn Ste- fánsson 600 kr. til þess að semja enska bókmenntasögu. Háskólapróf. Bogi Melsteð hefir tekið nýlega magister-próf í söguvísindum við Khafnarháskóla. Apótekið í lteykjayík er að sögn selt dönskum manni, • er Tvede heitir, og væntanlegur er hingað nú með Laura þessa dagana. Kaupverð 85,000 kr. Hr. Krúger lyfsali mun ætla hjeðan alfarinn «eint í sumar. Dómkirkjupresturinn, síra Jóhann þorkelsson, sem verið hefir í Kaupmh. síðan fyr- ir jól í vetur, kemur nú heim með næstu ferð »Lauru«. Hefir hann nú upp á síðkastið verið á ferð um þýzkaland, farið alla leið suður til Vínarborgar og Miinchen, og fengið til þess styrk nokkurn fyrir tilhlutun J. Nelle- manns, ráðgjafa Islands. Hólaskóli. Af 11 lærisveinum, er gengu þar undir próf 7.—10. f. m., útskrifuðust þessir 4 : þórarinn Jónsson úr Skagafirði (dáv. 4-); Magnus St. Stefánsson frá Steiná (vel +); Sigurður Sigurðsson úr Arnessýslu (vel); og Arni Árnason úr Húnavatnssýslu (lakl.). Sjö nýir námsveinar eru komnir þangað, svo að nú verða 14 í skólanum komandi ár. Synodus. Hin árlega prestastefna, syno- dus, verður í sumar haldin 30. júnf, 4 dög- nm fyrri en vant er, sökum þess, að biskup- inn hefir ákveðið vísitazíu í Múlasýslum í júlímánuði, og þarf að fara í þeim erindum hjeðan af stað 3. júlí með strandferðapóst- skipinu vestur og norður fyrir land. Enskir ferðamenn. Eins og áður hefir verið getið, ætlar enskt skemmtiferðafjelag að senda hingað í sumar 3 ferðir með enska ferðamenn, 30 í hvert skipti. Skipið heitir Myrtle og er 320 smálestir að stærð, skipstj. B. Williams. Skipið er ætlað eingöngu til skemmtiferða og hefir farið meðal annars eina ferð umhverfis jörðina. það ætlar af stað frá Liverpool núna á laugardaginn, 14. júní, og er væntanlegt hingað fimmtudag 19. s. m. Daginn eptir ætla farþegarnir að fara eitthvað smávegis hjer í kring, og síðan 21. að leggja af stað til þingvalla og Geysis. þaðan fara þeir til Heklu og síðan til Krisuvíkur og loks til Keykjavíkur aptur. Önnur ferðin byrjar frá Liverpool 26. jfiní og þriðja 9. júlí. Verður öllum ferðunum hagað eins, á sjó og landi. 630 kr. (35 £) kostar ferðin alls á mann, á sjó og landi, að vínföngum undanskildum. Skagafirði, 31. maí: ., Vcð'ráttan hefir verið ágæt í allt vor. Gróður kominn j töluverður. Sigling. Hinn 12. apríl kom kaupskip hlaðið vörum til kaupmanns L. Popps og 1. maí annað hlaðið vörum til Gránufje- lagsverzlunar á Sauðárkrók, sem hr. Stef- án Jónsson stýrir stöðugt, auk þess sem „Thyra“ kom 5. apríl, eins og til stóð, með vörur til kaupm. V. Claessens, og einnig til kaupm. Popps, svo að nægar vörubirgð- ir eru hjer. Enginn afli enn, nema lítið af fugli frá Drangey. þessa viku hafa sjómenn allir verið í Drangey, og munu þeir koma í land í kvöld, vonandi með fugl. En vana- lega kemur fiskur ekki svona snemma hingað á fjörðinn. Er það tilfinnanlegur munur og annarstaðar við landið, t. d. fyr- ir sunnan. Enginn ís hefir sézt í vor, og bjargræðis- ástand er gott“. Mannalát og' slysfarir. Nóttina mllli 29. og 30. janúar varð kvettnmaður úti í Seyðisfirði, Ingibjörg Einarsdóttir trá þór- arinsstöðum; ætlaði sjer j'fir fjall til Mjóa- fjarðar ein frá heimili sínu; en villtist yfir svokallaðan Elanna niður í Hánefsstaða- dal, lenti í snjóflóði og fannst örend skammt þaðan eptir nokkra daga. Aðfaranótt hins 1. apríl fórst bátur úr Borgarfirði meJ 5 mönnum á heimleið úr kaupstað á Vestdalseyri. Báturinn hafði verið óviturlega hlaðinn með korn og aðr- ar nauðsynjar, og geta menn helzt til, að hann hafi sokkið í svonefndri Glettinga- nesröst; þar verða mjög þung straumaföll og röstin verður á stundum allt i einu ó- fær, er vindur stendur á móti falli. Og 1 þetta skipti rann á sunnanvindur eptir miðnætti, en fall bar á móti. Mennirnir voru bræður tveir frá Snotrunesi, Sigfús og Jakob Sigurgeirssynir (Jónssonar frá Reykjahlíð), Jón Hermannsson og Sæbjörn Jónsson, báðir frá Geitavík, og Jón Krist- jánssoh frá Höfn, formaðurinn. Jón, Sæ- björn og Sigfús voru kvæntir. Allir voru mennirnir á bezta aldri. — Báturinn fannst meir en hálfum mánuði seinna af kaup- skipi, er kom til Seyðisfjarðar, á hvolfi, um 20 mílur undan landi. Hinn 11. apríl andaðist prestsekkja Krist- Í11 Gunnarsdóttir á Seyðisfirði, ekkja síra Snorra Sæmundssonar á Desjarmýri, og móðir Lárusar kaupmanns á ísafirði Snorra- sonar og þeirra systkina, fædd 24. ágúst 1801. Skiptapi varð á Akranesi 5. þ. m.: drukknuðu 4 menn á bát í beitufjöruferð inn í Borgarfjörð; formaður Ingimagn Ei- ríksson frá Lykkju á Akranesi; hinir ofan úr Borgarhreppi. Norður-Múlasýslu, 22. apríl. „Veturinn allur hefur verið einkar-mildur og frosta- lítill, að eins nokkra daga snemma 1 marz voru snörp frost, 10—14 stig. Frá því fyrir jól og þar til viku af febrúar var allvíðast jarðlaust, bæði í Fjörðum og Héraði, meir fyrir storku en snjódýpt. Jafnvel í Fljótsdal, hinni jarðsælu sveit, var jarðlaust alla þessa stund, og er það óvanalega langur tími þar. Snemma í febrúar brá til þíðu og varð þá alautt í byggð, og inndæl tíð fram í næsta mán- uð. Kólnaði þá aptur og brá til úrfellis, og varð sumstaðar haglaust, einkum í Fjörðum fram um mánaðamótin. þíddi þá aptur, góð tíð og stillt allan þann mán- uð og jörð nú alauð. Hey hafa reynzt víða létt og áburðar- frek. Hefir því mikið gengið upp af þeim, enda hefir vetur þessi eigi verið jarðsæll eptir því, hversu mildur hann hefir verið. Verði vorið bærilegt, munu þó heyfyrningar verða talsverðar. Fjárhöld í betra lagi. Bráðafárs ekki orðið vart í Fljótsdal, og því þakkað, að fje var tekið þar svo snemma á gjöf. Aflalaust í allan vetur af síld og fiski í Seyðisfirði, og að eins mjög lítilfjörlega fiskivart þar nú. I Norðfirði kom gott aflahlaup í síðastliðnum mánuði, en nú verð- ur þar ekki vart. Skip komin á Seyðisfjörð til allra aðal- verzlana. Verð á útlendri vöru sagt verða likt og í haust. En þó settu kaupmenn margt upp frá því er var um sumarið. Verð á innlendri vöru orðast ekki. Geta má þess, að ull varð siðastliðið ár { reikn- ingum manna við Thostrupsverzlun 80 au„ hjá hinum 70, en líklega verða hinar verzlanirnar á Seyðisfirði og jafnvel Vopna- fjarðarverzlun, að gefa viðskiptamönnum sínum 10 aura uppbót á henni“. Suður-Múlasýslu, 26. maí: „Tiðin af- bragðsgóð i allt vor, svo allt hefir leikið í lyndi. Afli af sjó enginn sem stendur. Frakkneskar fiskiskútur, sem hingað hafa komið, hafa aflað í minnsta lagi. Nú hefir sira Páll Pálsson í þingmúla afráðið að bjóða sig fram til þingkosning- ar (14. júní). Tveir kaupmenn eru farnir að láta reisa verzlunarhús á hinni ný-löggiltu Búðar- eyri við Reyðarfjörð : Jón Magnússon á Eskifirði og Frederik Wathne, bróðir Otto Wathne, sjógarpsins mikla“. Barðastrandarsýslu, vestanv., 5. júní: „Öndvegis-veðrátta hefir verið hjer í allt vor; munu menn tæpast muna eptir ann- ari eins tið að vorinu til, eins og verið : hefir hjer siðan um páska. Töluvert voru tún farin að litkast um sumarmál, og kúm var almennt farið að beita þrem vikum af sumri. Sauðburður hefir gengið mjög ■ vel, og lambahöld ágæt. Aó visu hefir . optast nær verið mjög órólegt til sjávar-

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.