Ísafold


Ísafold - 27.08.1890, Qupperneq 1

Ísafold - 27.08.1890, Qupperneq 1
Kemur út ú miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsin* (l04arka) 4 kr.; erlendis 5 k'. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. XVII 69 ÍSAFOLD. Reykjavík, miðvikudayinn 27. ágúst. Uppsögn (skrifleg) bundin \ ð áramót, ógild nema komin sjt til útgefanda fyrir t.okt. Af- greiðslnst. í Austarstrceti 8. 1890 Nýmæli um sveitarútsvars-skyldu, I haust má beita í fyrsta sinn nýmælum frá síðasta alþingi, er hlutu iagastaðfesting 9. ágúst f. á., um aukna útsvarsskyldu í sveitum. þau eru kölluð lög um viðauka við lög 9. jan. 1880 um breyting á sveitarstjórn- artilskipuninni frá 1872. þó að lög þessi sje lítil fyrirferðar, þá eru þau samt ekki svo þýðingarlítil, og mikils vert, að þau verði rjett skiiin frá upphafi og að þeim verði ■ekki misbeitt á neinn hátt. Eaunar hafa samkynja fyrirmæli verið lengi nokkuð í lög- um í hinum örfáu kaupstöðum landsins : Eeykjavík, ísafirði og Akureyri; en allir aðrir verzlunarstaðir landsins hafa verið fyrir utan þá löggjöf, með því að þeir eru að eius þartur af einhverjum hrepp, og auk þess eru þessi lög nokkuð vlðtækari en kaupstaða- lögin. það er raunar fremur orðabreyting heldur ■en efnisbreyting frá því sem áður var, sem segir í hinum nýju lögum, að niðurjöfnun (sveitarútsvara) eptir efnum og ástæðum nái til »allra þeirra, er hafa fast aðsetur í hreppn- um«. I næstu lögum á undan er þetta orð að svo, að jafna skuli á »alla þá, er eiga lögheimili í hreppnum«, og mun það vera hjer um bil hið sama. þó getur verið, að ákvæði nýju lagauna sje fullt eins skýr, þótt þau sjeu lakari íslenzka. |>ess munu vera dæmi t. a. m., að lausamenn hafi reynt að smeygja sjer undan sveitarútsvari, með því að látast eiga lögheimili annarsstaðar en þeir höfðu rauuar fast aðsetur mestan hluta árs, væru þar þyngri sveitarútsvör: ljetu hreppsnefud- ina í lögheimilishreppnum, sem þeir vildu vera láta, gefa sjer vottorð um, að þar ættu þeir lögheimili og þar gyldu þeir til sveitar, til þess að hafa sig þar með undan útsvari í dvalarhreppnum. Nú er naumast hægt að koma við slíkum lögkrókum. En í sambandi við þetta atriði er ástæða til að minnast þess, að hin nýrri löggjöf, bæði lögin frá 1880 og þau frá 1889, veitir skýlausa heimild til að leggja sveitarútsvar á hvert maunsbarn í hreppnum eða verzlun- arstaðnum (innanhrepps), ef það hefir efni og ástæður til, að dómi hréppsnefndarinnar og yfirdómi sýslunefndar, ef málinu er þang- að skotið. Gildir einu, hverrar stjettar mað- urinn er, hvort heldur búandi eða búlaus, sjálfs sín eða vinnuhjú, ungur eða gamall; þeir eru allir útsvarsskyldir, ef efni leyfa. Eaunar stóð í sveitarstjórnarlögunum frá 1872, að leggja mætti á »alla hreppsbúa#, og gat það vel þýtt sama um »alla hrepp3menn«, þ. e. hvert mannsbarn í hreppnum. En laga- menn og yfirvöld skyldu það orðatiltæki svo, sum að minnsta kosti, að þar með væri átt við hið sama sem segir í fátækrareglugjörð- inni frá 1834 : »hreppsins iunbyggjara .... sem löglega eru sjálfs sín«. Hefðu þá t. d. vinnuhjú átt að vera undanþegin útsvars- skyldu, enda mun þeirri reglu hafa verið fylgt víða í framkvæmdinni. Nú er því skorið úr þeim vafa afdráttarlaust. Er því engum manni til nokkurs hlutar að bera sig upp undan sveit- arútsvari fyrir þá sök eina, að hanu er vinnuhjú éða á ekki með sig sjálfur. Hitt er annað mál, að sveitarstjórnir munu varla svo ósanngjarnar, að fara að leggja útsvar á vinnufólk, sem ekkert hefir af að gjalda nema afskammtað kaup sitt, eins og það er al- gengast. f>að er því að eins, að vinnufólk eigi eitthvað til, meira en fötin sem það stendur í, eða hafi einhver óvenjuleg vildar- kjör, — það er því að eins ástæða til að leggja á það ; því að eins getur það álitizt hafa »efni og ástæður« til að gjalda eitthvað til sveitar, og hefir það líka opt allt eins vel og margur fátækur bóndi og fjölskyldu- maður, sem ber sína byrði af sveitarþyngsl- unum. þessarar reglu er þannig hjer minnzt ekki vegna þess, að hún sje ný-tilkomin, heldur af því, að margir almúgamenn lifa enn í hinni gömlu trú, að þeir, sem ekki eiga með sig sjálfir, sjeu að lögum undanþegnir útsvars- skyldu. Koma þrásækilega fyrirspurnir um það atriði, og er þess vegua engin vanþörf á að skýra það hjer um leið. það sem nýtt er í lögunum frá í fyrra, það er hin skýlausa heimild til að leggja sveit- arútsvar á »á jörðu eða jarðarhluta og d fast- ar verzlanir og aðrar arðsamar stofnanir og fyrirtœki í hreppnum, er sjeu rekin að minnsta kosti 4 mánuði af gjaldárinu, þótt eigendur þeirra eigi hafi þar fast aðsetura. Á verzlanir í kauptúnum, utan kaupstað- anna 3, var raunar alsiða áður að leggja sveit- arútsvar, þótt eigendur ættu heima utan hrepps. En vafasamt þótti jafnan, hvert full lagaheimild væri til þess, og loks kom þar fyrir tveimur árum, að laudsyfirrjettur kvað upp dóm, er taldi einn útlendan verzlunar- eiganda lausan við útsvarsskyldu, sem stóð raunar nokkuð sjerstaklega á með. En dóm- ur þessi varð samt tilefni til þess, að áminnzt lög voru samin og samþykkt. Yar í frum- varpinu, frá stjórninni, ekki ætlazt til, að út- svarsskyldan næði nema til »fastra verzlana og annara arðsamra stofnana og fyrirtækja, er væru rekin að miunsta kosti 4 mánuði á gjaldárinu, þótt eigendur þeirra eigi hafi þar fast aðsetur#. En þingið skaut inn í þeirri viðbót, að einnig mætti leggja á »ábúð á jörðu eða jarðarhluta«, þótt eigendur sjeu utan- hrepps. f>að munu vera þó nokkur dæmi þess, að menn hafi með jarðir eða jarðarparta 1 öðr- um hreppi, ekki sízt íbúar kaupstaðanna, og munu hlutaðeigandi hreppsfjelög verða því harla fegin, að geta náð í slíka menn til að leggja á þá sveitarútsvar. þeim hefir sárnað það, að ntanhreppsmenn gátu lagt þar jarðir í eyði, þ. e. rakað heim til sin öllum arði af þeim sjálfir, án þess að halda þar uppi öllum lögskilum. Hreppsmönnum hefir blöskrað, að sveitarfjelagið skyldi litlar sem engar tekjur geta haft af ef til vill beztu jörðinni eða beztu afjörðunum í hreppnum, þar sem utanhrepps- eigandiun annaðhvort hafði hana beinlínis með sjálfur að öllu leyti, eða hafði þar þvögu af kotungum við sveit, á rúðu laudinu, þar sem hann hafði sjálfur undir öll hektu hlunn- indi og gæði jarðarinnar. Nú fá þeir rjettan hlut sinn í þessu atriði, og væri ef til vill ekki vanþörf á, að minna þá á, að gæta alls hófs f hagnýting þeirrar rjettarbótar. Lögin Bjálf binda og álögurjettinn þeirri sjálfsögðu takmörkun, að gjaldið á tekjustofna utanhreppsmanna eigi að »samsvara útsvar- inu eptir efnum og ástandi, eptir því er hæfa þykir eptir árlegri veltu og arði, án þess að tillit sjs haft til annara tekja eða eigna þess, sem í hlut á«. þar næst ber þess að gæta, að ekki er heimild til að leggja á nema »á- búð« jarða eða jarðarparta. það er ekki hægt að leggja á ítök, sem menn eiga ájörð- um, eða önnur hlunnindi. Orðið »afnot« var fyrst haft í frumvarpinu; en af því að það þótti of víðtækt og hætt við að þar kynnu menn að vilja fela í hlunnindi og þess háttar, sem ekki var tilætlunin, þá var því orði breytt í »ábúð«, til þess að taka af allau vafa. Annað nýmæli í löguuum frá í fyrra er það, að hafi maður haft fast aðsetur á árinu víðar en á einum stað, sitt á hverjum tfma og sitt í hverju sveitarfjelagi, þá má ekki leggja hærra gjald á hann á hverjum stað, en samsvari þeim tíma, er hann hefur haft þar fast aðsetur. þó má ekki dvalartíminn á hverjum stað vera mjög stuttur, ef hanu á að hafa sveitarútsvarsskyldu í för með sjer : »fast aðsetur í hreppuum skemmri tíma en 4 mánuði kemur ekki til greina«. |>að kemur ekki til greina, þótt þeir, sem eiga heima í sjópláss- um, fari í kaupavinnu á sumrum og sjeu í henni fulla 4 mánuði 1 sömu sveit, nje þótt sveitamenn sjeu við útróðra á einhverjum stað 4 mánuði af árinu. Slíkt er ekki ann- að en bráðabirgðardvöl, til að leita sjer at-

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.