Ísafold


Ísafold - 03.09.1890, Qupperneq 1

Ísafold - 03.09.1890, Qupperneq 1
Keraur út 4 miðvikttdöjum oe laugardögum. Verð árgangsim {104 arka) 4 kr.; erlendis S kt. Borgist fyrir miðjan júlfmánuð. ÍSAFOLD Uppsögn (skrifleg) bundin > ð áramót, ógild nema koinin til útgefanda íyrir l.okt. Aí- greiðslust. í Austurstrœti b. XVII 71. Reykjavík, miðvikudaginn 3. sept. 1890 Sparisjóðir, Ábyrgðarhluti er það mikill, ef góðæris- kafli sá, sem nú stendur yfir, líður svo á enda, að landið taki ekki talsverðum stakka- skiptum að því er efnahag almennings snertir. pjóðin d að vera og er raunar að mörgu leyti bet- ur vaxin því nú en fyrrum, að færasjer góðæri vel í nyt; en hún þarf líka að muna eptir því, hafa það sífellt fyrir hugsskotsaugum, að undir því er framtíð landsins komin, að góðu árin sjeu vel notuð, með atorku og iðjusemi, ráðdeild og fyrirhyggju. í hörðu árunum hlýtur baráttan við uáttúruna að vera fremur vörn en sókn ; í góðu árunum á hún að vera sókn, en ekki bara vörn. í góðu árunum má ekki láta sjer lynda að berjist í bökkum. |>að má til að hugsa hærra. *Vex hugur þá vel gengur«. þann hug ríður á að glæða sem mest og láta hann geta af sjer hæfilegar framkvæmdir. Að hörð ár koma á eptir góð, er eins víst og að vetur kemur eptir sumar, nótt eptir dag. Bn þá er of seint að iðrast þess, að hafa legið á liði sínu meðan vel áraði. |>á er erfitt að afla sjer hagsældar, þótt viljann bresti eigi. |>að er sem betur fer óalgengt, að menn hugsi um að »njóta lífsios# þegar vel lætur 1 ári á þann hátt, að leggjast beinlínis í leti og ómennsku. þeir stunda vinnu sína við- líka þá og endrarnær, en taka því fegins hendi, sem eðlilegt er, að erfiðismunirnir verða nokkuð minni. Avirðingin er ekki sú, þar sem því er að skipta, að veujuleg vínnu- brögð sjeu vanrækt, af værugirni eða þess háttar, heldur hitt, að minna er unuið en skyldi að Dýjum framkvæmdum, nýjum vinnu- brögðum, um fram það sem við verður komið í harðærum, og í annan stað óspilsemi og glysgirni gefinn lausari taumur. Dável hefir að vísu vottað fyrir jarðabóta- framkvæmdum hingað og þangað um land þessi síðustu missiri, að því er kunnugum segist frá og skýrslur herma. Bn þó mun hitt því miður enn miklu algengara, að alls ekkert er átt við þess háttar. Fyrir hvern einn bónda, sem notar hagstæðan vortíma eða haust til þess að bæta eptir megni ábýli sitt, eru tveir eða fleiri, upp og niður, sem hafa alveg sömu háttsemi {þá eins og þegar veðráttan fyrirmunar öllum slíka iðju. Svona mun vera eða þessu líkt víðast um land, þótt út yfir taki þar sem hægast er að ná til sjóar og fylgt er því uálega undantekn- ingarlaust hinu gamla afdæmislega ráðlagi, að láta hinn vinnandi lýð liggja í veiðistöðum meira en hálf-iðjulausan mánuðum saman, hvort sem það gefur nokkurn arð af sjer eða ekki neinn. Um óspilsemi og eyðslu er nú að vísu sjálfsagt engin ástæða til að bregða vorri hjóð í meira mæli en ýmsum öðrum þjóðura. En kunnugt er það samt, að miklu eru grannar vorir, er eiga viðlíka óblíða náttúru við að búa og vjer, sparneytnari og harðbýlli við sjálfa sig, sem sje Norðmenn, Skotar og Færeyingar. Og í annan stað er þess að gæta, að vjer höfum helzt til lítið enn af hinum ágætu alþýðustofuunum til útrýmingar óspilun og éyðslusemi, er aðrar menntaðar þjóðir hafa eignazt á þessari öld, en það eru spari- sjóðirnir. Önrrar lönd eiga þeim alþýðuskólum ótrú- lega mikið að þakka. þeir hafa breytt hugs- unarhætti heilla kynslóða, snúið þeim frá skrælingjalegri ljettúð og óspilsemi til for- sjálni og ráðdeildar, auk þess sem fjármagn rað, er þeir draga saman, er mjög svo öflug og notasæl máttarstoð undir meiri háttar framfarafyrirtækjum og almenningi ókleyfum án slíks fjárstofns. Eru þetta þó að eins hirar óbeinu hagsmunir að sparisjóðunum. Bein- línis veita þeir fjársafnendum sjálfum ekki einungis sömu stoð og styttu eins og góður vinur eða forsjármaður eða þá sveitin veitir þegar í nauðir rekur, heldur gjöra þeim fært að ráðast í ýmislegt, er hrindir ástæðum þeirra í betra horf en ella mundi. Er þó eun ótalið það, sem ekki er hvað minnst í varið, hve slíkt fjársafn, þótt smátt sje jafn- vel, gjörir menn öruggari og óháðari en hina, sem ekkert eiga undir sjer. þessa kosti sparisjóðsstofuana hafa menn sjeð og á þeim þreifað fyrir löngu annars- staðar. þess vegna hafa þeir, sem fyrir lög- um og landsstjórn ráða annarsstaðar, eigi einungis veitt þeim ýmisleg hlunnindi um fram aðrar penÍDgastofnanir, eins og hjer, heldur lagt þá skyldu á herðar fjölmennum sveitum meðal síns þjónustulýðs, embættis- mannanna, að gegna daglega jafnframt öðr- um embættisönnum hinum sömu störfum fyrir almenning, hvern sem þess æskir, sem sparisjóðsstjórnendur eru vanir að hafa á hendi. Póstafgreiðslur allar eru gerðar að sparisjóðsútibúum, og þar tekið við spari- sjóðsinnlögum jöfnum höndum eias og brjefum og sendingum, til þess að gjöra almenningi sem allra ómaksminnst að leggja í sparisjóð og bjóða tækifærið til þess nærri hvar sem er. Slíkir sparisjóðir eru kallaðir , pbstspari- sjóðir. Önnur ráðstöfun i sama skyni eru spari- merkin. það eru sams konar merki og póst- frímerki. þau eru höfð á boðstólum í sölu- búðum, gilda fáeina aura; ogsafnar kaupandi þeim — límir þau — í bók, eu að sýna þá bók í sparisjóð og láta ónýta merkin þar er sama sem að leggja þar inn þá upphæð í peningum, sem merkiu hljóða upp á. þjóð- ráð þykir að venja börn og unglinga á að draga samau í sparisjóð með því að kaupa sjer sparimerki. Eru börn auðfengin til þess miklu fremur en til þess að geyma sjálfa aurana, sem þau eignast. Sparimerkjabæk- urnar geta þau látið sjer þykja eins vænt um og leikglingur eða sælgæti, sem þeim hættir við annars við að fleygja út íyrir pví sem þeim kann að áskotnast af pen- ingum. Hjer er nú ekki svo hátt hugsað að sinui. Hjer þarf fyrst að hugsa um að fjölga hinum algengu sparisjóðum miklu meira eu orðið er. þeir munu vera 8—9 alls á land- inu ; þeir ættu að vera 20—30 að minnsta kosti. Vandinn að koma á fót sparisjóð ætti að vera orðinn auðnuminn. Svo margar allgóð- ar fyrirmyndir hafa menn fyrir sjer. það er naumast annað sem brestur en áhugi og framtakssemi. f>að er varla nokkurt kaup- tún á landinu of smátt til þess að geta haldið uppi sparisjóð. það getur þá ekki kauptún heitið, ef það hefir ekki eitthvað viðskiptahjerað í kriug um sig, og eiga íbúar þess að bæta upp mannfæðina í sjálfum verzlunarstaðnum. Enda sýnir og reynslan með sparisjóðsstofnanir þær, sem þegar eru upp komnar hjer og það fyrir löngu surnar, að slíkt fer ekki eptir stærð kauptúnauna. Siglufjörður t. a. m. er með minnstu kaup- túnum landsins; þó er þar einn með eldri sparisjóðum þess. Á Vopnafirði er stofnaður sparisjóður; en í hinum austfirzku kauptún- um 3, sem munu vera viðlíka stór, og eitt, Seyðisfjörður, jafnvel miklu stærra,—þar er enginn. Afleitt er líka, að ekki skuli vera sparisjóður í Stykkishólmi. |>á ætti líka að geta þrifizt sparisjóður í jafu-fjölmennu kaup- túni og sjóplássi og Skipaskagi er á Akra- nesi. Sumir kunna ef til vill að vilja svara svo, að þaðan sje svo hægt að ná til höfuð- staðarins, með sínum stóra og volduga spari- sjóð, Landsbankanum, að ógleymdum Söfn- unarsjóðnum, og því sje óþarfi að setja þar upp sparisjóð. En hvað hafa eigi Hafnfirð- ingar gjört fyrir löngu, og vel blessazt ? Er þó hálfu hægra fyrir þá að ná til Reykja- víkur. Euda er það einmitt aðalatriðið fyrir sparisjóðina, að sem allra hægast sje að ná til þeirra. Akurnesingar og nærsveita-

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.