Ísafold - 20.09.1890, Page 4
304
Sv.: Hálf visitazíulaun (10 áln.) verður hún
sjálfsagt að borga. En með því að einfaldir vextir
af byggingarskuldinni eru 60 kr., og vaxtalaus af-
borgun getur heldur eigi minni verið, þá geta í
þessu dæmi með engu móti orðið Í4 kr. afgangs
frá nauðsynlegum útgjöldum kirkjunnar, en það en
skilyrði fyrir fullum vísitaziulaunum (20 áln.).
672. Er ekki hverjum þeim manni heimilt að
vera lausum, sem einhverja iðn ætlar að læra eða
eitthvert nám að stunda,og hvort það er í heima-
skólum eða öðrum skólum ?
Sv.: Jú, Bje það aðal-iðja hans, svo sannað
verði.
673. Má þá ekki sá sami maður, sje hann
kvæntur, hafa konu sina hjá sjer til að þjðna og
matbúa handa sjer, án þess að sækja um bæjar-
leyfi ?
Sv.: Jú.
674. Kemur nokkuð undir eignum manna að
fá bæjarleyfi ?
Sv.: Engin lög til um ákveðna eignar-upphæð
sem skilyrði fyrir hóliestuleyfi í kaupstöðum
landsins (3), en full heimild samt til að miða leyfið
við efnahag sækjanda með fram.
BEJEFASKEÍNA
•0-^-0«
— a. Sagan ekki notandi.
4-\-7. Ljelega kveðin erfiljóð um fáþekkta menn
ekki tekin í ísafold.
Hjebinn. ísafold tekur ekki óþrifa-samsetning.
Bezt að láta FjósatUHndin fá allt þess konar.
J>að er þar vel meðtekið.
G.-T- klúbburinn opinn annað kvöld kl.
8. Til umræðu ofdrykkja og hófdrykkja.
Aðgangur að eins fyrir G.-T.
TVÖ HEE.BEKGI til leigu fyrir einhleypa
menn, með húsgögnum. Ritstj. ávisar.
HÚSIÐ NK. 4 í Tjarnargötu, með ágætri lóð,
fæst til kaups. Lysthafendur snúi sjer til eigand-
ans, skólakennara St. Thorsteinson.
B-deild Stjórnartíð- 1883 kaupi jeg
fyrir 2 krónur, ef hún er öll og óskemmd.
Einstök nr. af sömu deild kaupi eg einnig fyr-
ir 10—2ð aura, eptir því, hvaða nr. það eru.
Reykjavík, 17. sept. 1890.
Sigfús Eymundsson.
Skrifstofa fyrir almenning
10 Kirkjustræti 10
opin hvern rúmhelgan dag kl 4—5 e- h.
vel vanur; en rúmið var of stutt, og svo
voru fjandans flugurnar að ónáða hann. |>ær
suðuðu við eyrað á honum, stungu hann og
áreittu, svo að honum fannst hann vera
horfinn aptur á stórgripaskörina á eimreiðinni.
Nei, hann gat ekki gleymt því ferðalagi.
Honum var aumur allur skrokkurinn ; hann
þóttist heyra hvininn í eimreiðinni og sjá
skuggana þjóta fram hjá. f>egar leið undir
dögun og flugurnar tóku að spekjast, sofnaði
hann loks vært og draumlaust. En hann
var ekki óðara bdinn að festa svefninn, en
lamið var á dyrnar hjá honum.
»Hver er þar?« kallaði hann.
»f jer verðið að fara á fætur«, var svarað
fyrir atan; það var húsmóðirin sjálf.
»Fara á fætur«, át Kobbi eptir, »jeg sem
er nýsofnaður*.
»|>að varðar okkur ekkert um, við verðum
að búa til morgunverðar«.
»Já, búið þjer til morgunverðar eins og
þjer viljið fyrir mjer«.
>En þá verðið þjer að fara á fætur«.
»|>arf jeg að fara á fætur fyrir það, þó þið
búið til morgunverðar kl. 5 á morgnana?«
f>ví eigum vjer að koma?
Til þess að fd góð kaup
og hressa upp hugann.
Föstudaginn 3. okt. 1890
verður haldið
stórt alþjóðlegt
uppboð
í pakkhúsinu nýa hjá undirskrifuðum og þar
seldar ýmislegar vefnaðarvörur, svo sem mill-
umskirtutau, millumskirtúr, ný föt, ljerept
línlakaefni, tvisttau, yfirsængurver.’borðdúka-
efni, svuntutau og fleira.
Sveitamenn, sem koma til Beykjavíkur, œttu
að muna eptir þessu.
Stólar fyrir kvennfólkið að sitja á.
Reykjavik 20. sept. 1890.
f>orl. O. Johnson-
Fullorðnir sauðir og dilkar fást
keyptir í fyrstu Arnakróksrjett 23. þ. m. hjá
Eggert og Skúla Guðmundssonum í Elliða-
koti.
TAPAST hefir 10.—15. þ. mán. frá Lauganesi
við Reykjavík dökkgrá-skjótt folald (hryssa), ó-
mörkuð, með hvítan sporð á lend og hvítan lokk
í tagli, og er hver sá er hitta kynni tjeð folald
beðinn að láta mig vita sem allra fyrst.
Skálholtskoti 20. septbr. 1890.
Benidikt Samsonsson.
Uppboðsauglýsing.
Eptir beiðrd hlutaðeigenda verður stórt
bókauppboð haldið í húsinu nr. 10 i Kirkju-
strceti hjtr í beenum dagana Í27. 29. og 30. þ.
m., sem eru laugardagur, máwudagur og
þriðjudagur. Bcehurnar, sem seldar verða,
eru eign ddnarbús H. E. Helgesens skólastjóra
og fyrv. adjunkts Halldórs Guðrrmndssonar
og eru bceði innlendar og útlendar i mörgum
vísindagreinum.
Vppboðið byrjar kl. 11 f. had. á Laugar-
daginn 27., og sökwhilmálar verða þá birtir á
uppboðsstaðnum.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 17. september 1890.
Halldór Daníelsson.
LEIÐ ARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐ AR fæst
ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med. J. Jönas-
sen sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja
lif sitt allar nauðsynlegar upplýsingar.
»Já, þjer megið til að fara á fætur«.
»Má jeg til að fara á fætur ! Hef jeg þá
ekki borgað reiðilega fyrir rúmið? Jeg fer
ekki á fætur, fyr en mjer sýnist«.
»Jæja, þá berjum við á dyrnar«, sagði
húsmóðirin blátt áfram, og tók að lemja af
alefli í hurðina, svo húsið skalf og nötraði.
»Hvaða horngrýtis-kerling er þetta 1 Getið
þjer ekki látið mig vera í friði ?«
»Nei, þjer verðið að fára á fætur«.
»En hvern fj..........kemur mjer yðar
morgunverður við ?«
»Liggið þjer svo sem ekki á borðdúknum,
má jeg spyrja ?«
»Ligg jeg — á — borðdúknum ?«
Kobbi fór að átta sig, og skoða í rúmið.
J>að stóð heima: — þar var borðdúkurinn,
mórauður og með matarklessum. Hann dró nú
þessa snyrtilegu rekkvoð undan sjer og
fleygði henni út í gegnum gættina, og hallaði
sjer svo aptur á eyrað og vaknaði ekki fyr
en kl. 10, að sólin var komin hátt á lopt og
skein inn í herbergið. Hann klæddi sig í
snatri, gekk niður að brunninum og þvoði
sjer. |>ar mætti húsbóndinn honum og sagði
Meltingarskortur.
Mjög lengi hafði jeg þjáðzt af meltingar-
leysi, uppgangi, svefnleysi og þjáningarfullum
brjóstþyngslum, sem jeg varla gat andað fyrir.
Nú er jeg alheill orðinn, og skal það vera
mjer gleði, að votta, að jeg eingöngu á hin-
um fræga Kína-lífs-elixir herra Valdemars
Peterscns batann að þakka.
Kaupmannahöfn, 1. marz 1885.
E n g e 1,
frá verzlunarfjelagi því, sem kennt er
við stórkaupmann L. Friis.
Kína-lífs-elixírinn fæst ekta hjá :
Hr. E. Felixsyni í Reykjavík,
— Helga Jónssyni í Reykjavík,
— Helga Helgasyni í Reykjavík,
— Magnúsi Th. 8. Blöndahl í Hafnarfirði,
— Jóni Jasonssyni á Borðeyri,
— J. V. Havsteon á Oddeyri,
sem hefir aðalútsölu á Norðurlandi.
Valdemar Petersen,
sem einn býr til hinn ekta Kína-lífs-elixír.
Erederikshavn.
Danmark.
Munntóbak fyrir aðeins l kr 60 a-
pundið og neftóbak fvrir aðeins 1 kr
25 a. pundið fæst í verzlun N. H. Thom-
sens Aðalstræti nr 7.
Bitið um sættamál á íslandi, eptir há-
yfirdómara |>. Jónasson sál., fæst hjá póst-
rneistara Ó. Finsen, fyrir 50 a.
Forngripasafnió opið hvern mvd. og ld. kl. I—6
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. ij—3
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—3
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóðurinn opinn l. mánud. 1
hverjum mánuði k). t;—3
Veðurathuganir í Reykjavik, eptir Dr. J. Jónassen.
Sept. | Hiti (á Celsius) Loptþyngdar- mælirjmillimet.) Veðurátt.
á nótt«| ím hád. fm. em. fm. em.
Mvd.17. + 5 + Io 746.8 744.2 O b Nhb
Fd. 18. + 1 + 9 749-1 754.4 A h d O d
Fsd. 19. + » + 9 754-4 756.9 Na hv b A. h d
Ld. j 0. + 3 756.9 A h b
Eptir hádegið h. 17. gekk hann til norðurs og
var bjart veður og logn komið að kveldi; h. 18.
logn og rigning og 19 hvass á landnorðan að
morgni með miklu regni fram undir hádegi er
hann birti upp og hægði og komið logn að ltveldi.
í morgun 20. hæg austanátt, all-bjartur.
III.- II, — IH——
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.
þurrlega: »Yið borðum miðdegisverð kl. 12«.
Kobbi sá nú, að hann hafði líka farið á mis
við morgunmation. Hvenær mundi þessu
ólátii hans ljetta ? Hann gekk út í þungu
skapi. |>á sjer hann hvar ekið er glæsilegum
vagni nýjum með 2 hestum fyrir. Og hver
mundi sitja í vagnsætinu, nema — ekkjan,
konuefnið hans tilvonandi, og — Svíinn ein-
eygði hjá henni! »Komdu nú sæll, Kobbi«,
kallaói hún, hress í bragði; »ætlarðu að lypta
þjer upp á stórgripaskörinni aptur í dag?
Annars þakka jeg þjer fyrir folaldið og svínið.
Svíninu höfum við nú slátrað í veizluna
okkar, því nú komum við einmitt úr kirkj-
unni, jeg og maðurinn minn hjerna«.
»Vill ekki signor Kobbi vera í veizlunni ?«
tók Svíinn fram í, og drap um leið þrælslega
titlinga með heilbrigða auganu.
Kobbi sneri sjer undan snúðuglega, gekk
inn í veitingahúsið og beiddi um í staupinu.
Settist síðan á stól í þungu skapi og sat þar
stundarkoru hugsandi. J>á rofaði allt í einu
til í andliti hans; hann hýrnaði á svipinn og
bljes frá sjer mæðinni. Honum var sýnilega
ljettara fyrir brjósti og hann þakkaði hinum